Þjóðviljinn - 12.08.1988, Page 29
SKAK
HELGI
ÓLAFSSON
Salov ógnar
Æsispennandi keppni á skákþingi
Sovétríkjanna. Kasparov og Beljavskí efstir,
Karpov getur náð þeim, Salov vinningi neðar
en á þrjár biðskákir
Það er langt í frá öruggt að skákmeistarar sem hafa rutt sér
Kasparov eða Karpov hreppi So-
vétmeistaratitilinn á skákþinginu
sem nú stendur yfir í Moskvu.
Þrátt fyrir að þarna fari óumdeil-
anlega tveir sterkustu skákmenn
samtíðarinnar þá eiga þeir í harð-
ri keppni um efsta sætið við þá
Alexander Beljavskí Sovét-
meistara og Valeri Salov hina
ungu hetju sem hefur staðið sig
frábærlega ve! á mótum undan-
farið. Þegar fréttist af mótunum
eftir tíu umferðir voru Beljavskí
og Kasparov í efsta sæti með 6V2
vinning og biðskák hvor. Karpov
var ekki langt að baki með 6 vinn-
inga og biðskák og síðan kom
Valeri Salov með 51/2 vinning og
eigi færri en þrjár biðskákir.
Þetta þýðir að hann hefur fengið
vinninga úr sjö skákum og gæti
auðveldlega skotist upp í efsta
sætið. Jusupov var í 5. sæti með 5
vinninga og biðskák.
í þeim sjö umferðum sem eftir
eru teflir Kasparov við Beljavskí
með svörtu í 11. umferð en við
Salov með hvítu í 14. umferð.
Karpov hefur teflt við alla þessa
þrjá. Hann á eitthvað léttara
prógramm eftir þó erfitt sé að tala
um létt prógramm í sambandi við
svona mót. Mótið er eitt það
sterkasta síðan 1973 er Boris
Spasskí fékk uppreisn æru eftir
einvígið við Fisher með eftir-
minnilegum sigri. Hann hlaut
III/2 vinning úr 17 skákum og
vinningi á eftir honum komu
Karpov, Kortsnoj, Petrosjan,
Polugajevskí og Kusmin. Þetta
reyndist jafnframt síðasta
meistaramót Spasskís og Korts-
nojs.
I ár mæta til leiks allir sterkustu
ungu skákmenn Sovétmanna,
braut gegnuin ótal úrtökumót.
Stigahæsti alþjóðlegi meistari
heims Ivantsjúk vann eitt slíkt
mót og Smirnin annað. Margir
frábærir skákmenn verða að
fylgjast með mótinu úr fjarlægð.
Karpov og Kasparov eiga at-
hygli allra hvar sem þeir tefla og
því er ekki úr vegi að birta skákir
þeirra úr 1. umferð:
Moskva 1988,
sovéska meistaramótið
1. umferð:
Jusupov - Kasparov
Griinfelds-vörn
7. Bc4-c5
8. Re2-Rc6
1. d4-Rf6
2. c4-g6
3. Rc3-d5
4. cxd5-Rxd5
5. e4-Rxc3.
6. bxc3-Bg7
9. Be3-0-0
10. 0-0-Bg4
11. f3-Ra5
12. Bd3
þremur biðskákum gæti Salov komist uppfyrir Kasparov.
(Hér skiljast leiðir. Karpov
hefur ávallt leikið 12. Bxf7+
gegn Kasparov og getur státað af
tveimur sigrum gegn einum
Kasparovs. Leiðin sem Jusupov
velur er mun algengari en þó hef-
ur Kasparov aldrei mætt henni
eftir að hann tók að tefla
Grúnfeld-vörnina.)
12. .. cxd4
13. cxd4-Be6
14. Hcl
20. Bf2-b5
21. Rd4
(Vitaskuld ekki 21. Bxb5 Hb8!
o.s.frv.)
21. .. Rc4
22. Rc6
(Annar möguleiki var 22. Bxc4
sem svartur getur svarað með 22.
.. a5ogsíðan-bxc4.22. Rxb5 má
svara með 22. .. Rb2 o.s.frv.)
22. .. Bxc6
23. dxc6-Rb2!
(Án þessa leiks væri staða
svarts ekki uppá marga fiska.)
24. Bxb5!
(Jusupov verður ekki sakaður
um heigulshátt. Hann lætur glað-
ur hrókinn á dl af hendi og
treystir á mátt c6-peðsins.)
24. .. Rxdl
25. c7-Dd5
26. Bxe8
(Hvað skal svartur nú til
bragðs taka? Hann getur trauðla
leikið 26. .. Hxe8 vegna 27. c8
(D) og vinnur.)
26. .. Rxf2
27. c8 (D) Hxc8
28. Hxc8
(Skiptamunsfórnin 14. d5 er H
eitt höfuðafbrigðið en leikur Jus-
upovs er einnig býsna vinsæll.) Mk
14. .. Bxa2
15. Da4-Be6 lHI
16. d5-Bd7 UjL'
17. Db4-e6
18. Hfdl
(Hér er mun algengara að leika /ý/y/:, m/j
18. Rc3. Nú upphefjast gífurlegar UIP
flækjur.)
18. .. exd5 19. exd5-He8 11 ■
(Riddarinn á sér engan griða-
stað og í flóknu bragði virðist
Kasparov vera í bullandi tap-
hættu. En hann hefur séð lengra
og fundið björgunina.)
28. .. Rh3+!
29. gxh3-Ddl +
30. Kg2-De2+
31. Kgl
(Reynandi var 31. Kg3 en
svartur á alltaf jafntefli t.d. 31. ..
Be5+ 32. f4 De3+ 33. Kg4 f5 +
34. Kg5 Bxf4+ 35. Dxf4 De7+
36. Kh6 Dg7+ 37. Kg5 De7+
o.s.frv. í þessu afbrigði ber að
hafa í huga að svartur getur ekki
teflt til vinnings með 37. .. h6+
38. Kh4 g5+ vegna 39. Kh5! gxf4
40. Bg6+ og vinnur.)
Á meðan á þessari skák stóð
átti Karpov í höggi við Haritonov
sem er alls óvanur því að fást við
svo öflugan skákmann. Ég kann
vart betra dæmi um þann mun
sem er á skákstíl Kasparovs og
Karpovs. Karpov var ekkert að
flýta sér, byggði upp stöðu sína
hægt og bítandi með smápoti hér
og þar og þar kom að svarta stað-
an lét undan þrýstingnum. E.t.v.
vandaði Haritonov sig um of í
þessari skák. Hann hefði betur
reynt að skapa sér mótfæri á
kóngsvæng þó það sé nú kannski
hægara sagt en gert. Byrjunar-
leikir Karpovs 12. Hfcl og 14.
Habl eru athyglisverðir í 18. leik
hefur náð greinilegu frumkvæði,
18. .. dxc5 19. dxc5 Rxa4? 20. b3
og eftir 24. b4 má svartur fara að
vara sig. Þegar svartur fer loks af
stað með gagnsókn, 32. .. Re4
grípa menn hans á kynlegan hátt í
tómt. Með 37. a6 brýtur hvítur
upp stöðuna og vinnur peð. Hari-
tonov gefst upp er hann sér fram
á annað peðstap, 42. .. Hal+ 43.
Kh3 Ha2 44. Hc2!
Moskva 1988
sovéska meistaramótið
1. umferð:
Karpov - Haritonov
Drottningarbragð
1. c4-e6
2. Rc3-d5
3. d4-Rf6
4. cxd5-exd5
5. Bg5-Be7
6. e?-Rbd7
7. Rf3-c6
8. Bd3-0-0
9. Dc2-He8
10. 0-0-R18
11. h3-Be6
12. Hfcl-R6d7
13. Bf4-Rb6
14. Habl-Bd6
15. Re2-Rg6
16. Bxd6-Dxb6
17. a4-Hac8
18. Dc5-Db8
19. Da3-a6
20. Hc3-Dc7
21. Hbcl-Ha8
22. Rd2-a5
23. Hbl-Rc8
24. b4-axb4
25. Dxb4-Rd6
26. Rb3-Bc8
27. a5-Re7
28. Rg3-g6
29. Hccl-h5
30. Halh4
31. Rfl-Bf5
32. Be2-Re4
33. Rc5-Rxc5
34. Dxc5-Be6
35. Rd2-Rf5
36. R13-Dd8
37. a6-bxa6
38. Hxa6-Hxa6
39. Bxa6-Da8
40. Dxc6-Dxc6
41. Hxc6-Ha8
42. Bd3
- Svartur gafst upp.
Skákþing
íslands
Keppni í landsliðsflokki á
Skákþingi íslands hefst sunnu-
daginn 14. ágúst í Hafnarfirði.
Keppendur verða 12 talsins þar af
fjórir titilhafar, stórmeistararnir
Jón L. Árnason og Margeir Pét-
ursson og alþjóðlegu meistararn-
ir Karl Þorsteins og Þröstur Þór-
hallsson. Þá verður heimsmeist-
ari sveina Hannes Hlífar Stefáns-
son einnig meðal þátttakenda.
Aðrir þátttakendur eru Jóhannes
Ágústsson, Ágúst Karlsson, Þrá-
inn Vigfússon, Benedikt Jónas-
son, Ásgeir Þ. Árnason, Davíð
Ólafsson og Róbert Harðarson.
HARALDSSON
Konungleg fréttamennska
f vikunni kom til landsins hans
konunglega tign Karl Filippusson
prins af Wales og krónprins
Bretaveldis. Erindi hans var að
renna fyrir lax í uppsveitum
Borgarfjarðar ásamt nokkrum
vinum sínum og eins og starfs-
menn breska sendiráðsins
þreyttust ekki á að taka fram þá
var þessi heimsókn á engan hátt
opinber. Kalli var hér í einkaer-
indum og á eigin vegum.
En þótt sendiráðsmönnum
þyki eðlilegt að konunglegar per-
sónur geti átt sitt prívatlíf þá þyk-
ir fjölmiðlungum það ekkert
sjálfsagt. Og íslenskir fréttamenn
reyndu af mismiklum krafti að
fylgjast með ferðum hinna
bresku tignarmanna. Útkoman
úr eltingarleiknum virtist þó
heldurrýr.
Bylgjan, sem hefur verið held-
ur rislág í hlustendakönnunum
síðustu mánaða, lagði mest á sig
við að skýra oss frá ferðum hins
konunglega laxveiðimanns og
kumpána hans. Þrátt fyrir mikinn
niðurskurð taldi fréttastofa Byl-
gjunnar það ekki eftir sér að
halda heilum fréttamanni úti við
að fylgja Kalla eftir. Hann fékk
þó ekki að koma nálægt veiði-
mönnunum heldur var hann
stöðvaður í talsverðri fjarlægð af
tveimur stæðilegum fulltrúum
valdsins sem héldu öllum forvitn-
um í skefjum, hvort sem þeir
veifuðu blaðamannapassa eður
ei.
EnBylgjan lét sigekki. Það
hafði greinilega verið ákveðið að
veiðiferð Karls skyldi verða einn
af „áherslupunktum“ fréttastof-
unnar og á mánudaginn var prin-
sinn maður dagsins. Það voru
sagðar fréttir af honum og því
sem önnur ensk hávelborinheit
eru að gera þessi misserin og á
sjöunda tímanum var símalínan
opnuð og hlustendum gefinn
kosturáað tjásig um Kalla. Mest
bar á heldur óviðurkvæmilegum
athugasemdum um vissa andlits-
parta prinsins og blöskraði
greinilega fleirum en mér sú um-
ræða.
Nú er Karl prins að mörgu leyti
óvenj ulegur af konungbornu
fólki að vera fyrir þær sakir að
hann brýtur virkilega heilann um
stöðu sína og hlutverk ílífinu.
Maður verður ekki oft var við að
slíkar vangaveltur beinlínis þvæl-
ist fyrir hátignum Evrópu. Sagt er
að siðameistarar bresku krún-
unnar hafi naumlega getað af-
stýrt því á sínum tíma að Karl
gengi í málfundafélag jafnaðar-
manna. Hann ersagðuraðhyllast
hugmyndafræði sem nefnist á
ensku Small Is Beautiful og
gengur út á að vilja brjóta upp
stórar einingar í efnahagslífi og
stjórnkerfiþjóðfélagsins. Hann
hefur ekki látið sér nægja að vera
skrautfjöður á opinberum góð-
gerðarsamkomum heldur beitt
sér á virkan hátt gegn mann-
skemmandi áhrifum sem niður-
níðsla breskra borga hefur á unga
fólkið sem í þeim býr, ekki síst
fyrir tilverknað stjórnarstefnu
Thatchers. Fyrir allt þetta og ým-
Bylgjan hafdi eingöngu áhuga á nýjustu slúðursögunum um Kari Bretlands-
prins og Diönu eiginkonu hans en fjallaði ekkert um áhuga prinsins á félags-
legum umbótum.
islegt fleira komst Karl á forsíðu
bandaríska fréttatímaritsins
Timeívor.
Ekki var það þó þessi hlið á
Karli sem Bylgjan hafði áhuga á.
í umfjöllun stöðvarinnar voru
fjölskyldumál hans öll rækilega
tíunduð og tónninn í þeim frá-
sögnum á köflum í sama stfl og
hj á breskum hasarblöðum. Það
var nú allur metnaðurinn. Ef
þetta er nýja línan í fréttaflutn-
ingi Bylgj unnar gæti stöðin
kannski átt séns í Stjörnuna aft-
ur. Hverveit?
En talandi um samkeppni
poppstöðvanna tveggja þá get ég
ekki stillt mig um að segj a stutta
sögu sem ég heyrði á dögunum.
Þeir urðu heldur undrandi starfs-
menn íþróttadeildar Ríkisút-
varpsins þegar hringt var í þá frá
Stjörnunni til að spyrja um það
hvenær Rás 2 yrði með beinar út-
sendingar frá Spánarmótinu í
handknattleik. Jú, Stjarnan ætl-
aði að sýna RÚ V þá velvild að
auglýsa útsendingarnar ókeypis.
íþróttafréttamenn RÚ V brutu
um það heilann af hverju þessi
skyndilega og óvænta velvild
Stjörnunnar í garð stofnunarinn-
ar stafaði. Loks duttu þeir niður á
skýringuna: Bylgjanhafðisent
Hemma Gunn á vettvang og hét
hlustendum sínum beinum frá-
sögnum hans frá leikjum íslands
áSpáni. Og þáfannstStjörnunni
skömminni skárra að lýðurinn
hlustaði á ríkisþursinn en helsta
keppinautinn.
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 29