Þjóðviljinn - 16.08.1988, Page 8

Þjóðviljinn - 16.08.1988, Page 8
FLÖAMARKAÐURINN Tröppur yfir girðingar til sölu. Uppl. í síma 91-40379. Ford Escort GL 1300 Fallegur, vel útlítandi Ford Escort GL, 1300 árg. ’83 til sölu. Ekinn 52.000 km. Ný sumardekk og ágæt nýleg vetrardekk fylgja. Útvarp. Bíll í toppstandi. Verðtilboð. Upplýsing- ar í síma 681310 eða 681331 á daginn. Húsnæði óskast Ung og reglusöm snyrtileg og reyk- laus hjón með 2 börn 8 og 11 ára, óska eftir að taka á leigu 4-5 her- bergja íbúð frá 1. okt. n.k. Upplýs- ingar í síma 16249 á kvöldin og 11640 á daginn, Margrét. Ritvél óskast Óskum eftir að kaupa góða en ódýra rafmagnsritvél. Hringið í síma 681310 eða 681331 á daginn. Viltu fara til Spánar (Barcelona)? Ég er með húsnæði í Barcelona í skiptum fyrir húsnæði á fslandi eða upp í leigu. Má vera hjá fjölskyldu- fólki. Heppilegt fyrir fólk sem vill læra spænsku. Ég heiti Jordi og er að læra jarðfræði við Háskóla ís- lands. Get kennt spænsku ef fólk vill. Upplýsingar í síma 625308 eftir kl. 21.00. Tanzaníukaffi Gerist áskrifendur að Tanzaníu- kaffinu í síma 621309 þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13-22. Áskrif- endur geta sótt kaffið á sama tíma. Tak eftir Ef þú átt í fórum þínum gamla VW sendibifreið sem þú vilt endilega losna við hið fyrsta fyrir I tið sem ekkert þá hafðu samband. Bifreiðin má vera vélarlaus. Ég bíð við símann sem hefur númerið 672378. Sigurbjörn. Til sölu vegna brottflutnings Atari ST1040, sv./hv. skjár og Steinberger músikforrit. Yamaha FB01 „sound“banki, Epson LX-86 prentari með „tractor”, Peavey TKO-65 bassamagnari, Fender jazzbassi, Shure SM-58 míkrófónn, „byssu“Shure, Electric, Mistress Flanger, míkrófónstatív, Fender Strat '64, Martin D-35, Schaller pick-up. Yamaha G5 gítarmagnari, spænskur linguaphone, Panasonic NV-G10 vídeótæki, Sohlmans musiklekskion. Upplýsingar í síma 37766 eða 74147. Til sölu Nýtt, ónotað Goldstar vídeótæki. Verð kr. 24.000 kr. stgr. Upplýsing- ar í síma 24329. Til sölu 100 lítra rafmagnssuðupottur. Góð- ur í sláturtíðinni. Einnig rafmagns- ofn (veggofn) og þríhjól. Upþlýsing- ar í síma 51643 í hádeginu og á kvöldin. Danskur háskólakennari óskar eftir 2-3 herbergja íbúð með húsgögnum nærri háskólanum frá 15. sept.-15. des. Upplýsingar gef- ur Svavar Sigmundsson í síma 694406 eða 22570. Mávafinka Óska eftir mávafinku, karli eða kerl- ingu, handa einmana maka. Upp- lýsingar í síma 74304. Myndsegulband óskast Upplýsingar í síma 83968 eftir kl. 17.00. 3 herbergja íbúð Tvær tvítugar stúlkur með sitthvort barnið óska eftir að taka á leigu 3 herbergja íbúð. Góðri umgenani, reglusemi og skilvísum greiðslum heitið. Upplýsingar gefur Fjóla í síma 79665 eftir kl. 19.00. Barnavagn Splunkunýr barnavagn til sölu. Lítill, léttur og þægilegur. Upplýsingar í síma 98-21460 eða 91-24432. Millihurð Óska eftir að kaupa millihurð í sam- liggjándi stofur, má gjarnan vera með gleri. Upplýsingar í síma 18681. Uretan jarðlagnarör fást gefins, ca. 18-20 metrar. Upp- lýsingar í síma 41831. Til sölu ekta æðardúnn, sem ný Candy þvottavél, ónotuð útihurð og frysti- kista. Upplýsingar í síma 15989. Barnagæsla Barngóð kona óskast til að gæta tveggja telpna í vesturbæ eftir há- degi í vetur. Upplýsingar gefa Val- gerður í síma 26926 og Guðrún í síma 10253. Falleg ársgömul svört læða af blönduðu síamskyni fæst gefins á gott heimili. Upplýs- ingar í sima 11287. Til sölu er 2x15 vatta Samsung samstæða með útvarpi, plötuspilara, tveimur segulböndum og equalizer. Gott verð. Sími 18681. Dýravinir 2 mánaða kettlingar af góðu kyni fást gefins. Upplýsingar í síma 84023. Herbergi óskast Ungur, reglusamur, rólegur maður óskar eftir herbergi til leigu. Upplýs- ingar í síma 39844. Til sölu svefnbekkur og borðstofusett: borð, stólar, skenkur og hilluskápur úr tekki. Upplýsingar í síma 21985 og 672106 eftir kl. 19.00. Til sölu Tauþurrkari (D 49 cm, br. 49 cm og h 67 cm) til sölu á kr. 10 þús. og amerísk eldavél (Frigidaire) á kr. 10 þúsund. Upplýsingar í síma 25198. Félagi - vinur Roskna konu sem er mikið ein lang- ar að kynnast konu sem eins er á- statt fyrir. Ef einhver hefur áhuga þá vinsamlegast sendið nafn og sím- anúmer „verkakona" á auglýsinga- deild Þjóðviljans. Dagmamma nálægt Melaskóla Tek 6 ára börn í gæslu fyrir hádegi í vetur. Hef uppeldismenntun. Upp- lýsingar í síma 28257. Hjónarúm til sölu. Upplýsingar í síma 672283. Svefnbekkur fæst gefins Upplýsingar í síma 37418. Hef herbergi til leigu í vetur. Aðgangur að eldhúsi og baði. Upplýsingar í síma 10154. Fururúm til sölu 120x200 cm, með dýnu. 2 mánaða gamalt. Verð kr. 25.000.- Upplýs- ingar í síma 28912. Gólfteppi Til sölu ca. 40 ferm. gólfteppi. Vel útlítandi. Upplýsingar í síma 50848. Nýtt leðursófasett 3+1 + 1 til sölu. Selst ódýrt. Upplýs- ingar í síma 28623 eftir kl. 18.00. Þorpið í Flatey. Þar er flest með sömu ummerkjum og um 1920. Allaballar í Flatey SíðbúinferðarollaafVestfjörðum Það er óhætt að segja að veðurguðirnir hafa brosað af sinni allra náðarsamlegustu miskunn í kampinn þegar Alla- ballar af Vestfjörðum lögðu upp í árlega sumarferð sína 2. júlí síð- astliðinn, og var förinni heitið í Flatey á Breiðafirði. Nei annars, sennilega er rétt að segja að þeir (veðurguðirnir) hafi verið skæl- brosandi, því hvergi sást ský á himni og öll náttúran flíkaði sínu fegursta. Ferðir sem þessar eru fastur liður á ári hverju og hefur í gegnum tíðina oft verið góð þátt- taka í þeim, enda leiðin oft legið um forvitnilega staði og fagra sem vestfirsk náttúra er svo rík af. Sá sem þessar línur ritar var hafður með í förinni rétt eins og sagnaritari sem rómverskar her- deildir tíðkuðu að hafa í farteski sínu og skyldu þeir skrá hetju- dáðir og afrek legíónanna. Ferðin hófst á ísafirði í háfættri rútu sem Elías Sveinsson rútubíl- stjóri ísfirskur hefur nýlega erft frá kollega sínum Guðmundi Jónassyni. Skyldi hann smala saman flokksþegnum vítt af fjörðum. Sumir fóru þó á einka- bflum að Brjánslæk en þaðan skyldi sigla til Flateyjar. Á gatna- mótum í mynni Breiðadals í Ön- undarfirði, var höfuðpaur ferðar- innar, Magnús Ingólfsson óðals- bóndi á Vífilsmýrum hirtur upp ásamt nokkrum glaðbeittum Flateyringum, konum og börn- um. Magnús er með á þriðja tug mjólkandi kúa í fjósi og var ekki laust við að hugurinn væri heima við mjaltir á stundum. En engu að síður sinnti hann hlutverki far- arstjórans af nokkurri alúð og var úrræðagóður þegar breyta þurfti áætlunum. Sóttist oss nú vel aksturinn suður um heiðar og var óhætt að mæla „sursum corda“, þ.e.: upp hjörtun, við hverja beygju, að hætti Djúnka trúboða sem Gröndal lýsir svo skemmtilega í Heljarslóðarorustu. Var ekið yfir Gemlufallsheiði og látið gluða fyrir Dýrafjörð í svartalogni og sól. Nú eru á döfinni nánast nagl- fastar áætlanir um að brúa Dýr- afjörð við Lambadalsodda og verður það mikil samgöngubót þegar nær fram að ganga. Það styttir leiðina milli ísafjarðar og Þingeyrar um 15 km. Ekki var linnt akstri fyrr en á Hrafnseyri. Þar var gert svokallað „sjoppu- stopp“. Vanir ferðalangar gera skýran greinarmun á þeim og „ælustoppum" og „fótóstopp- um“. Enginn sýndi áhuga á því að skoða safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri. Fullorðnir lögðust í grasið og reyktu en börnin röð- uðu sér á garðann í sjoppunni og reyndu að vingjast við syfjulegan heimiliskött sem sleikti kampa sína á stéttinni í morgunsólinni. Afar stéttvís skepna. Var nú ekið sem ákafast um stund og ekki drepið niður dekki fyrr en á Brjánslæk, ef frá er talið eitt „ælustopp". Á Brjánslæk beið okkar hraðskreið ferja frá Eyjaferðum í Stykkishólmi sem svífa skyldi með okkur til Flat- eyjar. Er mér skylt að geta þess að hér er um afar vandað skip að ræða, og er meðal annars sjoppa um borð. Var gerður að því góð- ur rómur. Á leið til Flateyjar voru lagðar lykkjur á siglinguna til þess að skoða eyjar og sker. Við dóluðum í rólegheitum fram- hjá Vaðsteinabergi í Hergilsey. Ekki hefði Gísli Súrsson verið í vandræðum með að sleppa úr greipum Barkar digra forðum, ef hann hefði haft vit á að taka sér far með Eyjaferðum. Klukkan var farin að halla að nóni þegar komið var að bryggju í Flatey. Þar beið formaður flokks- ins á bryggju og tók móti spott- um. Menn tóku sér góðan tíma til þess að slá tjöldum á túni í Flatey og koma sér sem haganlegast fyrir. Því verður ekki með orðum lýst hvað vist í slíkri náttúrupara- dís hefur góð áhrif á stressaða og firrta kaupstaðarbúa. Þar er ilm- ur úr grasi og angan af fugladriti og niður aldanna ómar undir ef grannt er hlustað. Við fengum síðan fylgd um eyjuna og skoðuð- um kirkjuna og gömul hús undir leiðsögn ungrar stúlku sem virtist vera hundkunnug staðháttum og sögu eyjarinnar. Þuldi hún sem ákafast ártöl og örnefni í bland við frásagnir af sögulegum við- burðum. Bráðgreind stúlka og ef- laust fluglæs í þokkabót. Best gæti ég trúað að hún væri ættuð að vestan. Um kvöldið færðist nokkur ró yfir ferðalangana. Sátu menn tíð- um í grasi við hugleiðslu eða á kaffihúsi eyjamanna þar sem lagað er besta kaffi í Breiðafjarð- areyjum og er falt við vægu verði. Magnús Ingólfsson höfuðpaur gekk í það með góðra manna hjálpa að taka til í fornu samkom- uhúsi Flateyinga en þar vildi hann ómur hafa einhverskonar gleðskap um kvöldið. Magnús hafði í farteski sínu loforð um harmonikkuleikara sem hugðist koma frá Stykkishólmi og skemmta vestfirskum verkalýðs- hetjum. Það loforð brást, sjálf- sagt hefur amma hans dáið eða eitthvað, hver veit hvað skeður þarna uppi á fastalandinu. Magn- ús dó ekki ráðalaus þrátt fyrir vanefndir Hólmara. Lét hann hvorki laust né fast fyrr en fundist hafði nikkari (frekar tveir heldur en einn) í hópi karlakórsferðalag sem voru að frflysta sig í Flatey. Aukinheldur hafði hann upp á harmoniku í nærliggjandi húsi. Kvöldsólin var farin að skína inn um gluggana þegar hjörðin hnappaði sig saman í samkomu- húsinu í Flatey. Fyrst var fjölda- söngur að hefðbundnum hætti en því næst rak nokkurn hval á fjörur okkar. Var þar kominn Guðmundur Ólafsson líffræðing- ur sem var búsettur í Flatey um 12 ára skeið þar sem hann stundaði rannsóknir á lífríki fjörunnar. Guðmundur er maður fjölfróður og hundvís. Hélt hann afar fróð- lega tölu sem upphaflega átti að fjalla um það hvernig Breiða- fjarðareyjar urðu til. Flæmdist fljótlega fyrirlesturinn með inn- skotum frá Ólafi formanni, um sögu Flateyjar, hlutverk inn- byggjara í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og fleira og fleira. Öldungis stórmerkilegt. Samkoman var síðan rofin þeg- ar karlakórsmenn mættu á svæð- ið. Voru þeir teitir vel og vopnað- ir harmonikku og gítargarmi. Var slegið upp heljarballi í gamla samkomuhúsinu. Þar dansaði hver við annan. Læknar við verkamenn, franskir fuglaskoð- arar við reykvískar yfirstéttar- konur, vestfirskir sjómenn við flateyskar blómarósir og kór- stjórar við konurnar sínar. Kötturinn dansaði kúna við, afturábak og útá hlið. „Dansaði Jónas út skjön, kné við kné og grön við grön“. Það var ekki laust við að rykfallnar þiljur gamla hússins gengju í endurnýjun líf- daganna þegar hæst lét. Þegar sunnudagur rann tóku ferðalangar lífinu með stóískri ró. Sumir röltu um þorpið í Flatey eða tóku sér spássértúr á bjarg til að skoða ritur á hreiðrum. Sumir sváfu í sólinni og vöknuðu skaðbrunnir á trýn- inu. Enn aðrir gengu í fjörunni og hlýddu á samhljóm allífsins, eins og sagt er að Nóbelsskáldið hafi gert þegar hann á sínum yngri árum dvaldi í Flatey og safnaði innblæstri fyrir hinar mögnuðu fjörulýsingar í Sölku Völku með því að liggja löngum stundum í þarabrúki. Einhverjir brugðu sér meira að segja í skoðunarferð útí Hergilsey, en heimamenn í Flatey eru allir af vilja gerðir til þess að gera ókunnugum kleift að njóta dýrðarinnar í eyjum Breiðafjarðar. Klukkan fimm lagðist Hafrún að bryggju í Flatey. Kvöddust menn með svardögum um að hitt- ast að ári í næs.u ferð og var ekki laust við að litið væri með söknu- ði um öxl til Flateyjar. Myndir og texti: Páli Ásgeir Ásgeirs- son ísaflrði. Vestfirskir Allaballar hlýða með andakt á leiðsögumenn útlista forna menningarsögu Flateyjar. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 16. ágúst 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.