Þjóðviljinn - 16.08.1988, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 16.08.1988, Qupperneq 14
Hræddirvið blýlaust bensín íslendingar eru á margan hátt einkennileg þjóð eins og marg- sinnis hefur komið í Ijós. Það er ekki síst í bílamenningu eða ó- menningu sem íslenskiröku- menn hafa þótt hafa sérstöðu á ýmsum sviðum. Sérkennilegur akstursmáti, almennur hraðak- stur, ölvunaraksturog almennt virðingarleysi fyrir umferðarregl- um hefurkostað mörg mannslíf í umferðinni. Á sama tíma og mörgum finnst að almenn hugarfarsbreyting sé að eiga sér stað meðal öku- manna, þeirvirði betur þaer regl- ursem settareru í umferðinni, fylgi löglegum hámarkshraða í flestum tilfellum, spenni beltin, hafi Ijósin kveikt og séu á margan hátt betur vakandi um öryggis- mál en áður fyrr, er sérviskan enn söm þó á öðrum sviðum sé. Fyrir nokkrum vikum var vakin athygli á því hér í Þjóðviljanum að aðeins lítill hluti bifreiðaeigenda notar blýlaust bensín á bifreiðar sínar. Nú erökumönnum aðeins boðið upp á tvær tegundir af bensíni, blýlaust eða svokallað „superbensín" 98okt. Sterka bensínið er bæði dýrara og marg- falt meiri mengunarvalduren blý- lausa bensíniö en samt notar stærsti hluti bifreiðaeigenda það. Það vekur óneitanlega furðu að á sama tíma og almenningur kvartar undan sífellt aukinni mengun af völdum umferðinni, einkum og sér í lagi í höfuðborg- inni, þá velur þessi sami almenn- ingur þann orkugjafa á bif reiðar sínar sem veldur mun meiri mengun en gamla venjulega 92 okt. bensínið sem stóð eitttil boða fyrir fáeinum misserum. Hverersvoskýringin? Ekki heyrast menn kvarta undan of háu bensínverði. Jú, segja bens- ínafgreiðslumenn. Bíleigendur eru hræddir við blýlausa bensín- ið. Hræddir um að það eyðileggi bílmótorinn. Sérfróðirmenn segja hins vegar að nær undan- tekningarlaust geti allar bifreiða- tegundir sem hér þekkjast notað blýlaust bensín, í mesta lagi þurfi smávélastillingu. Það hefur því sannst hér sem oft áður að hjá íslenskum ökumönnum er það hjarta bílsins sem er þeim hugl- eiknara en lungun í þeim sjálfum. -ig- ídag er 16. ágúst, þriðjudagurí sautjándu viku sumars, tuttugasti og fjórði dagur heyanna, 229. dagur ársins. Sól kemur upp í Reykjavík kl. 5.22 en sest kl. 21.40. Tungl vaxandi á fyrsta kvartili. Viöburöir Friðþjófur Nansen leggur upp í leiðangur sinn um Grænlands- jökul á skíðum og með hunda- sleðum1888. Þjóöviljinn fyrir 50 árum Japanir hafa ráðist að nýju á Saosernaja-hæðirnar. Aðeins4- 5 metrar milli fremstu raðanna í norður hlið hæðanna. Bræðslusíldin er þriðjungi minni en á sama tíma í fyrra. Garðar frá Hafnarfirði er hæstur með 12098 mál. Reykjavíkurmótið. Valursigrar Fram með3:2. Thor Vilhjálmsson. Fuglaskottís Rás 1 klukkan 21.30. í kvöld byrjar Thor Vilhjálms- son lestur á einni af sögum sínum, Fuglaskottís, sem fyrst kom út árið 1975. Sagan Fuglaskottís gerist í Suð- urlöndum og segir frá fjórum ís- lenskum persónum sem eru þar á ferð. Þar á meðal er íslenskur burgeis, þjóðlegur hugsjónamað- ur sem er í eins konar heimspó- litískri kynnisferð en á sér líka einkaerindi. í sögunni kemur fyrir sægur fólks sem er lifandi og auðkennilegt en jafnframt ævin- lega myndrænt á einhvern hátt einsog gerist í sögum Thors. íslendingum er Thor vel kunn- ur fyrir snörp skrif sín og einnig fyrir þær sakir að hann hlaut fyrr á árinu bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir bók sína Grámosinn glóir. UM ÚTVARP & SJÓNVARP Lína langsokkur í Suðurhöfum Rás 1 klukkan 9.03 Sagan um Línu langsokk í Suðurhöfum er nú á dagskrá litla barnatímans á Rás 1, klukkan 9.03 á hverjum morgni, ásamt með öðru skemmtilegu efni fyrir smáfólk. Astrid Lindgren samdi söguna um Línu langsokk í Suðurhöfum í framhaldi af fyrstu sögunni um Línu þegar hún bjó á Sjónarhóli ásamt apanum Níels. Nú lætur hún sér ekki duga neitt minna en ferð til Krúsídúllueyja, ásamt leiksystkinum sínum Önnu og Tomma, til að hitta Langsokk skipstjóra, pabba sinn. Þegar þangað kemur lenda þau í ýmsum ófyrirséðum ævintýrum. Sagan er full af óvæntum atvik- um og sprenghlægilegum við- burðum, en um leið hlý og full af skilningi á högum barna og því smáa sem oft verður útundan í heimi hér. Guðríður Liilý Guðbjörns- dóttir les þýðingu JakobsÓ. Pét- urssonar. Valur Glslason og Þorsteinn Ö. Stephensen við hljóðnemann. Alla leið til Ástralíu Rás 1 klukkan 22.30. Síðasta laugardag var flutt leikritið „Alla leið til Ástralíu“ eftir Úlf Hjörvar og er það endur- tekið í kvöld. Leikritið segir frá tveim gömlum fyrrverandi lista- mönnum sem leigja saman íbúð. Tilbreytingarleysi og einangrun frá ysi hins daglega lífs setur svip sinn á samkomulagið, sem ekki er alltaf upp á það besta. Innst inni er þeim þó ljóst að án félags- skapar hvors annars yrði tilveran þeim býsna erfið. Með hlutverk gömlu mann- anna tveggja fara þeir Valur Gíslason og Þorsteinn Ö. Step- hensen. Leikstjórn er í höndum Þorsteins Gunnarssonar og tæknimaður er Georg Magnús- son. GARPURINN KALLI OG KOBBI Heimboð?! Hverjum* dytti í hug að bjóða þér heim? Múg og margmenni, og vert'ekki spældur. Þetta hljóta að vera V Ég hef mistök. Tígrisdýrum/ er aldrei boðið neitt. Tryggingafélögin stræka á það. nú samt fengið heimboð hvað sem þú segir. Reyndu þá að drullast til að lesa það! x Ábyggilega verið að bjóða mér í mat í Höfða. Vonandi finn ég ólina mína. i-zo FOLDA Nýbúin? Hún hefur verið búin að því áður > -. en hún giftist? ' J Þau giftu sig meðan þau voru bæði að læra ) IJI I ^Ha? Meðan þau ) voru að læra? A Hugsa sér að vera svona’i ógiftur þegar maður / . -r gift'r sig- Jr*1 ( lí í Já ) V y- ** ’ © Bulls / I ii£ /¥ ) f/WÍ BB » w/ J Ky 1 Wm I - - - - *, j-*7 I/M ' (Jahérna C'úm 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 16. ágúst 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.