Þjóðviljinn - 17.08.1988, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 17. ágúst 1988 183. tölublað 53. árgangur
Geðsjúklingar
Þjónustan skorin við nögl
EndurhœfingardeildKleppsspítala lokað um óákveðinn tíma. Starfsfólkiðfréttiraflokun með hálfsmánaðarfyrirvara.
Bráðamóttakafyrir geðsjúka á Landsspítala lögð niður
Einu endurhæfingardeild sinn-
ar tegundar í heilbrigðiskerfinu
sem er sérstaklega ætluð geðsjúk-
um, hefur verið lokað um ó-
ákveðinn tíma, sennilega fram að
áramótum. Starfsfólk deildarinn-
ar frétti af þessu í miðju sumarfríi
og telur að komið hafi verið aftan
að því en deildin átti að opna
þann 28. ágúst. Sparnaður er
sagður vera orsök lokunarinnar.
Fjármálaráðherra hefur verið í
stríði við heilbrigðisstofnanir í
landinu vegna þess að þar sé
mikið af fólki í hiutastörfum, sem
vinni ómælda yfirvinnu og
sprengi launarammann. Þjóðvilj-
inn hefur heimildir fyrir því að á
endurhæfingardeildinni vinni
yfirgnæfandi meirihluti starfs-
fólks í 100% vinnu.
Bráðadeild geðsjúkra á Land-
spítalanum hefur einnig verið
lokað.
Sjá bls. 3
Salbjörg Á Bjarnadóttir deildar-
stjóri endurhæfingardeildar segir
starfsfólk undrandi á hvað því er
skýrt frá lokun með skömmum
fyrirvara. Ekki sé Ijóst hvernig
mál sjúklinga deildarinnar verði
leyst. Mynd: Ari
Sara (Erla B. Skúladóttir) býr sig undir að taka á móti elskhuganum.
Mynd: Eiríkur.
Leikhús
Ógnin liggur í loftinu
„Það er erfitt að segja ná-
kvæmlega hvað það er sem gerir
þetta fólk svona ógnvekjandi.
Ógnin liggur í loftinu. Það eru
augnablik bæði í Elskhuganum,
og eins í öðrum leikritum Pinters,
þar sem manni finnst að á næsta
augnabliki grípi ein persónan
hníf og ráðist á þá næstu.“
Ógnin í verkum Pinters var
meðal annars til umræðu þegar
blaðamaður ræddi við aðstand-
endur sýningar Alþýðuleikhúss-
ins á Elskhuganum. Leikritið
verður frumsýnt annað kvöld í
Ásmundarsal við Freyjugötu.
Sjá síður 8 og 9
Goðgá
Loksins í gjaldþrot
Útgáfufyrirtœki Helgarpóstsins til gjaldþrotameðferðar ígœr. Ríkissak-
sóknari skoðar kœrurfrá Blaðamannafélaginu og síðasta stjórnarmeiri-
hluta
Goðgá, útgáfufyrirtæki Helg-
arpóstsins var tekið til gjald-
þrotameðferðar í gær. Reyndar
hafði verið búist við að fyrr hefði
komið til þess, þar sem öll starf-
semi lagðist niður eftir að fyrir-
tækið hætti að greiða starfsmönn-
um laun og vinna lagðist niður
fyrir rúmum tveimur mánuðum.
Goðgá fékk hins vegar greiðslust-
öðvun í tvo mánuði sem nú er
útrunnin.
Reyndar eru nú í athugun hjá
ríkissaksóknara tvær kærur á
hendur Goðgá hf, önnur frá lög-
fræðingi Blaðamannafélagsins
þar sem fyrirtækið hafði ekki
greitt skatta til Gjaldheimtunnar
en þó dregið þá af launum starfs-
manna. Hin er frá síðasta stjórn-
armeirihluta Goðgár, þar sem
krafist var opinberrar rannsókn-
ar á bókhaldi fyrirtækisins, sem
að fyrrverandi stjórnarmeirihluti
hafði borið ábyrgð á. Loks er von
á enn frekari málaferlum, þar
sem fyrrverandi meirihluti
stjórnar er óánægður með kæru
síðasta meirihluta stjórnar og tel- —7Z—"T
ur hana byggða á rangfærslum. SIOU 3
Sjónvarpið
Sumardagskráin ógnarslöpp
Endursýningar Sjónvarpsins ísumarað keyra um þver-
bak. Fjárskortur hamlarflutningum Sjónvarpsins uppí
Efstaleiti. Hvað verður á nœstu fjárlögum?
Sumardagskrá Sjónvarpsins
hefur að margra mati verið ógn-
arslöpp sem aldrei fyrr. Endur-
sýningar hafa sett sterkan svip á
hana og framhaldsþættir hafa
ráðið ríkjum.
Þjóðviljinn kannaði sumar-
dagskránna og leitaði viðbragða
við gagnrýninni.
Sjá síðu 5