Þjóðviljinn - 17.08.1988, Blaðsíða 4
ísafjarðardjúp
Sameining kolfelld
Oddviti Nauteyrarhrepps: Getur haft afdrifa-
ríkar afleiðingarfyrirþróun byggðar við
Djúp. Málið í höndum félagsmálaráðuneytis
Urslit kosninganna komu flatt
upp á mig og ég held að af-
leiðingin geti orðið ansi afdrifarík
fyrir byggðina hér við Djúp.
Unga fólkið mun flytja í burtu,
samdráttur verður í byggðinni og
ég er ansi hræddur um að hér-
aðsskólanum í Reykjanesi verði
þá að loka. Þar fyrir utan var
búið að gefa okkur vilyrði af
hálfu samgönguráðuneytisins um
ef af sameiningu hreppanna fjög-
urra yrði, sagði Ástþór Ágústsson
oddviti Nauteyrarhrepps í N-Isa-
Ijarðarsýslu.
Um síðustu helgi fóru fram
kosningar um hvort sameina ætti
hreppana fjóra við innanvert ís-
afjarðardjúp í einn hrepp. Niður-
stöður kosninganna urðu þær að
sameining var felld í þremur en
samþykkt aðeins í einum. í
Snæfjallahreppi voru 17 á kjör-
skrá og greiddu 12 atkvæði. 9
vildu sameiningu en 3 á móti. f
Nauteyrarhreppi voru 46 á kjör-
skrá en 37 greiddu atkvæði. 14
voru með sameiningu en 23 á
móti. í Reykjafjarðarhreppi voru
43 á kjörskrá en 30 kusu. 11 vildu
sameiningu en 19 voru á móti. í
Ögurhreppi voru 32 á kjörskrá en
25 kusu. 2 vildu sameiningu en 21
á móti og 2 skiluðu auðu. Á kjör-
skrá í hreppunum fjórum voru
138 en 104 neyttu atkvæðisréttar
síns. 66 voru á móti sameiningu
en aðeins 36 með henni og 2
skiluðu auðu.
Að sögn Ástþórs er sameining
þessara hreppa í pattstöðu um
þessar mundir og ekki morg-
unljóst hver framvindan verður
og er málið nú í höndum félags-
málaráðuneytisins.
Bændur við Djúp eru á fullu
um þessar mundir við heyskap í
blíðunni og má búast við að flestir
verði búnir að hirða í vikulokin.
Fæstir verka í súrhey og verða því
að stóla á Guð og lukkuna um
nægan þurrk. Hey eru víðast hvar
mjög góð og næringarrík.
Lagt verður malbik á 19 kíló-
metra vegarkafla í Lágadal í
sumar sem er fagnaðarefni öllum
sem þurfa að aka um norðanvert
Djúpið. Heimamenn versla nú í
æ ríkari mæli en áður við Hólma-
vík í Strandasýslu enda fara
bændur þangað með fé sitt til
slátrunar á haustin eftir að hætt
var að slátra á ísafirði.
-grh
Síld, tunnur, salt og fólk á gullárunum í sögu Siglufjarðar.
Siglufjörður
Afmælisveisla í viku
70 ára kaupstaðarréttindi og 170 ára verslun-
arafmæli
ASiglufirði standa nú yfir mikil
hátíðarhöld í tilefni þess að 70
ár eru frá því að bærinn fékk
kaupstaðarréttindi auk þess sem
staðurinn á 170 ára verslunaraf-
mæli á þessu ári.
Afmælisdagskráin sem stendur
í eina viku hófst á laugardaginn
var með því að tekið var á móti
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
íslands.
- Það var mikil viðhöfn á flug-
vellinum þegar tekið var á móti
frú Vigdísi. Karlakórinn Vnsir
söng fyrir hana og hún skoðaði
sýningar hér og drakk kaffi með
bæjarbúum, sagði ísak J. Ólafs-
son, bæjarstjóri á Siglufirði.
Að öðru leyti var fjölbreitt
dagskrá um helgina, m.a. voru
opnaðar málverka- og ljósmynd-
asýningar þar sem myndefnið er
sótt til Siglufjarðar fyrr og nú,
sýning brúðuleikhúss fyrir yngri
börnin og dansleikur fyrir þau
eldri.
Á sunnudaginn var haldin há-
tíðarmessa í Hvanneyrarskál þar
sem sr. Þór Árnason prédikaði og
kirkjukórinn söng við undirleik
Blásarakvintetts Siglufjarðar.
Skemmtileg stemmning skapað-
ist þegar hestamenn komu ríð-
andi fylktu liði til messu og höfðu
prestinn með sér. Ekki hefur
áður verið messað í skálinni enda
hefur staðurinn löngum verið
vinsælli til rómantískra ástar-
funda en messugjörða.
ísak sagði að bæjarbúar hefðu
tekið virkan þátt í hátíðarhöldun-
um og auk þess væri mikið um
gesti í bænum um þessar mundir.
- Það sem af er hátíðinni hefur
tekist með afbrigðum vel og mik-
íll undirbúningur bæjarfélagsins,
fyrirtækja og einstaklinga á eftir
að skilja eftir varanlegan ávinn-
ing þar sem allir hafa lagst á eitt til
að snyrta bæinn og fegra undan.
farnar vikur, sagði Isak.
Fram á næsta laugardag verður
daglega eitthvað um að vera en
afmælishátíðinni lýkur með því
að bæjarbúum öllum verður boð-
ið í grillveislu seinni part laugar-
dagsins.
'Þ
íbúð til sölu
Ibúð-Osló
Til sölu mjög góð 3ja hb. kaupleiguíbúð í norð--
austur Osló. Hentar vel fyrir barnafj.sk., stutt í
skóla og aðeins 12 mín. með lest til miðbæjar.
Laus. Uppl. s. 91-23967.
FRÉTTIR
búðaverð hefur hækkað mest á Akureyri á síðustu árum.
Ibúðaverð
Hækkar mest á Akureyri
38% hækkun umfram almennt verðlagfyrir norðan og20% hœkkun í
Reykjavík. Á Suðurnesjum stendur verðið ístað
r
AAkureyri hækkuðu einbýlis-
hús um rúmlega 60% frá ars -
lokum 1986 til ársloka ’87 sem er
um 38% hækkun á meðalverði
fermetra umfram almennar verð-
hækkanir á sama tíma.
Þetta er mesta verðhækkun á
landinu af þeim stöðum sem Fast-
eignamat ríkisins fylgist reglulega
með.
Næst á eftir kemur höfuðborg-
arsvæðið þar sem meðalverð á
hverjum fermetra í einbýlis- og
raðhúsum hækkaði um tæplega
40% á sama tíma, sem er um 20%
hækkun umfram almennar verð-
lagshækkanir.
Á Suðurnesjunum, í Keflavík
og Njarðvík hefur íbúðaverð hins
vegar ekki hækkað mikið meira
en sem nemur almennum verð-
hækkunum eða um tæplega 23%.
Þetta kemur fram í nýútkomnu
fréttabréfi frá Fasteignamati
ríkisins. Þar kemur einnig fram
að útborgunarhlutfall hefur líka
alls staðar hækkað en mest á Ak-
ureyri,eða um 10-11%, íReykja-
vík um 4-5% og á Suðurnesjun-
um um 3%.
Staðbundnar orsakir eins og
atvinnuástand, lóðaframboð og
aðflutningur fólks ræður miklu
um verðþróun á íbúarhúsnæði og
er skýringanna á hinum mikla
mun á verðhækkunum að finna í
þeim þáttum.
'Þ
• s
Forseti Islands
Heimsókn í Húna-
vatnssýslur
verður ekið um Vatnsdal og í fylgd með Vigdísi verða
staðnæmst við Þórdísarlund. Kornelíus Sigmundsson forseta-
Seinni part dags heldur forsetinn ritari og Inga Hersteinsdóttir
áleiðis til Reykjavíkur. eiginkona hans. iþ
Fyririestur um
stærðfræðinám
Dagana 25. til 28. ágúst verður
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, á ferð um Húnavatnssýslur
í opinberri heimsókn og mun hún
koma víða við, heilsa upp á íbúa,
planta trjám, skoða markverða
staði og sitja boð ýmissa aðila.
Tekið verður á móti Vigdísi við
sýslumörk Vestur-Húnavatns-
sýslu og ekið að Reykjaskóla þar
sem hún mun planta trjám og
skoða byggðasafnið. Að því búnu
verður opið hús og kaffiveitingar
fyrir íbúa sveitarinnar.
Síðan verður ekið til Hvamms-
tanga, þar sem forsetinn gistir,
með viðkomu í Miðfirði. Sýslu-
nefnd og hreppsnefnd bjóða Vig-
dísi til kvöldverðar og síðar um
kvöldið er opið hús í félags-
heimilinu.
Föstudaginn 26. ágúst heldur
ferð forsetans áfram til Blöndu-
óss, þar sem Vigdís mun dvelja í 2
daga, meðviðkomu við Hvítserk,
Þorfinnsstaðaskóla, Borgarvirki
og í Víðihlíð.
Frá Blönduósi ferðast Vigdís
m.a. til Skagastrandar, þar sem
hún skoðar bæinn, plantar trjám
og situr kvöldverð í boði hrepps-
nefnda Höfðahrepps, Vindhælis-
og Skagahrepps og verður síðan á
opnu húsi fyrir íbúa hreppanna á
föstudagskvöldið.
Á laugardeginum skoðar Vig-
dís Blönduvirkjun og stíflumann-
virki á Auðkúluheiði og kemur
við í Húnaveri og Húnavöllum og
fer aftur til Blönduóss síðari hluta
dags.
Á sunnudeginum, sem er síð-
asti dagur heimsóknarinnar, fer
Vigdís út á Skaga ef veður leyfir
og skoðar ýmsa markverða staði,
plantar trjám í Hrútey, skoðar
kirkjuna að Þingeyrum og þaðan
Á morgun flytur dr. Solberg
Sigurdson fyrirlestur í Kennara-
háskóla Islands. Dr. Solberg
Sigurdson er af íslenskum ættum.
Hann er prófessor við University
of Alberta í Edmonton, Kanada,
og hefur kennt kennaranemum
við þann skóla í 20 ár. Hans sér-
svið er stærðfræðikennsla, og
hefur starf hans aðallega beinst
að því að undirbúa kennaranema
fyrir stærðfræðikennsla í efri bek-
kjum grunnskóla og mennta-
skóla.
Fyrirlesturinn nefnist „Sér-
fræðinám í samhengi - þáttur
sem fæstar kennslubækur sinna.
Hann leggur sérstaka áherslu á
skilningsþáttinn í stærðfræði-
námi og samhengi - bæði sam-
hengi viðfangsefna við umhverti
og samhengi innan stærðfræðinn-
ar. I fyrirlestrinum verða gefin
mörg dæmi úr kennslu og ábend-
ingar til kennara. Er hann ætlað-
ur kennurum, bæði á grunnskóla-
og framhaldsskólastigi, og öðrum
þeim sem áhuga hafa á stærð-
fræðikennslu.
Fyrirlesturinn verður 17. ágúst
kl. 15.00 í stofu 201 í Kennara-
háskólanum við Stakkahlíð.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. ágúst 1988