Þjóðviljinn - 17.08.1988, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 17. ágúst 1988 ÞJÖÐVILJINN - SlÐA 5
Engir fjármunir til og engín vinnsla á innlendu efni.
Sjónvarp
Sumardagskráin slöpp
Vetrardagskráin betri?
Endursýningar tíðar. Innlendframleiðslaílágmarki. Fjárskortur. Fer
Sjónvarpið halloka fyrir Stöð 2?
sem raun ber vitni fréttaþætti
Nordvision. Ekki eigi það meira
erindi við íslenska sjónvarpsá-
horfendur hvað sé að gerast í
Palme-málinu, hví verkamenn í
námum í Kiruna búi við slaka ör-
yggisgæslu og þar fram eftir göt-
unum, heldur brenni mun frekar
á fólki hvað sé að gerast hér inn-
anlands og hversvegna.
íslenskir fréttaskýringaþættir
og þættir með fréttatengdu efni
hafa verið af afar skornum
skammti í sumar.
Niðurstaða þessarar athugunar
Þjóðviljans á dagskrá Ríkisút-
veg að það hafi engan veginn
staðið sig í stykkinu gagnvart sín-
um umbjóðendum. Dagskráin
hefur að mestu leyti verið saman
sett af framhaldsþáttum og að-
keyptu, heldur lítið áhugaverðu,
ódýru efni. _tt
Sjónvarp
Höfum ekki efhi á öðm
Ingimar Ingimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri: Vonum að lands-
menn sýni þolinmœði og skilning. Verðum að bíta á jaxlinn
Við neyðumst til að hafa efnis-
valið svona því við höfum ekki
efni á neinu öðru. Fjársveltið er
gífurlegt, sagði Ingimar Ingim-
arsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Sjónvarpsins, er Þjóðvilj-
inn innti hann skýringa á slakri
framgöngu Sjónvarpsins í sumar.
- Ég er þó ekki alveg sammála því
að dagskráin hafi verið ógurlega
slæm í sumar. Sumir hafa hrósað
dagskránni, þó þeir séu nú færri
en þeir sem hallmæla henni, sagði
Ingimar.
- Við vonum að landsmenn
sýni okkur þolinmæði og skilning
því sannarlega höfum við engra
annarra kosta völ. í nýju útvarps-
lögunum var okkur ætlað að fá
ákveðna prósentu af öllum inn-
fluttum sjónvarpstækjum en við
fjárlagagerð hefur það ákvæði
gleymst. Þannig höfum við orðið
af tekjuliðum svo við þurftum að
skera eitthvað niður og sumar-
dagskráin varð fyrir valinu.
- Við leggjum mikla áherslu á
að byggingu og frágangi hússins í
Efstaleitinu verði lokið sem fyrst
því með því að fá alla starfsemi á
sama stað næst fram gífurleg hag-
ræðing og mikill sparnaður.
Ingimar situr í svokallaðri hús-
nefnd fyrir hönd Sjónvarpsins, en
hún hefur það starf með höndum
að skipuleggja og fjalla um
hvernig koma eigi starfsemi
Ríkisútvarpsins fyrir í húsinu, þar
með er talin starfsemi Sjónvarps-
ins. Nú hefur nefndin ekkert á
sinni könnu af þeirri afar einföldu
og auðskildu ástæðu að allar
framkvæmdir liggja niðri.
- Það var tekin ákvörðun um
að draga verulega saman seglin
þegar við fengum þær fréttir að
við fengjum ekkert af aðflutn-
ingsgjöldunum á fjárlögum, og
bíta á jaxlinn. Það var ákveðið að
stytta dagskrána um 1 tíma á dag
og einnig að leggja meira uppúr
haust- og vetrardagskránum en
sumardagskránni. Þetta var eina
leiðin til að mæta þessu.
Reynslan verður að skera úr um
hvort þetta hafi verið rétta á-
kvörðunin.
- Okkar björtustu vonir
standa til þess að landsmönnum
megi líka vel haust- og vetrardag-
skráin okkar því þar er að vænta
mun fleiri nýjunga en í sumar og
einnig verður töluvert meira af
innlendu efni, sagði Ingimar.
-tt
Lítið hefur verið um að nýtt efni
hafi verið sent út í loftið í
sumar hjá Sjónvarpinu og hefur
æ meir borið á óánægju með hina
ríkisreknu sjónvarpsstöð fyrir
þær sakir að hún leggi niður róf-
una fyrir einkaframtakinu ein-
mitt þegar hún ætti að tvíeflast og
blómstra.
Dagskrá Sjónvarpsins hefur
verið milli tannanna á fólki í allt
sumar fyrir þær sakir að lítið hafi
verið um sýningar á nýju inn-
lendu efni og endursýningar á
eldra efni tíðar. Þjóðviljinn
kannaði dagskrá Sjónvarpsins í
sumar og það sem einna mar-
kverðast kom útúr því var að
endursýningar voru sannarlega
tíðar, eða að meðaltali um það bil
ein á dag, og skiptist þannig:
Mest var um að barnaefni væri
endursýnt, síðan unglingaefni og
loks samtals- og viðræðuþættir.
Þátturinn „Maður vikunnar"
var endurtekinn nokkrum sinn-
um en aldrei í sömu vikunni.
Þannig var, til dæmis, Karólína
Eiríksdóttir maður viknanna 22.-
28. maí og 5.-11. júní. Þó var það
ekki eina dæmið. Þátturinn um
Davíð Oddsson var sýndur nú í
þessari viku í annað sinn á árinu.
Þættirnir „Úr ljóðabókinni" voru
stöku sinnum endursýndir og
einnig gamlir Stikluþættir Ómars
Ragnarssonar. Barnaefni var
mjög oft endursýnt en þar er helst
að nefna að „Töfraglugginn“ er
hvað oftast endursýndur, enda
nokkurs konar regla að endur-
sýna hann alltaf á miðviku-
dögum. Poppkorn var einnig
endursýnt sérlega oft.
Mikið hefur einnig verið deilt á
Sjónvarpið fyrir að sýna svo oft
Stillimyndin stendur þó alltaf fyrir snu, eða hvað?