Þjóðviljinn - 17.08.1988, Qupperneq 10
FRETTIR
Fóstra
Á Blönduósi er barnaheimilið Barnabær með 60
leikskólaplássum og 14 dagheimilisplássum.
Fóstru vantar að leikskólanum sem fyrst. Hús-
næði er tryggt. Umsóknarfrestur er til 24. ágúst
nk. Nánari upplýsingar gefur forstöðukona í síma
95-4530 og undirritaður í síma 95-4181.
Bæjarstjóri.
Auglýsið í Þjóðviljanum
4LÞÝÐUBANDALAGIÐ
ísland - herstöð eða friðarsetur
Ráðstefna á Hallormsstað 27.-28. ágúst
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi og Norðurlandi
eystra gangast í sameiningu fyrir opinni ráöstefnu helgina 27.-28.
ágúst um baráttuna gegn erlendum herstöðvum og hlutdeild Is-
lands í baráttu fyrir friði og afvopnun.
Ráðstefnan verður haldin í Hótel Eddu á Hallormsstað þar sem
þátttakendur geta fengið gistingu og fæði á sérkjörum. Sólarhring-
urinn með f æði og gistingu í eins manns herbergi kostar kr. 3.500,-
en kr. 3.100,- á mann, ef gist er í 2ja manna herbergi. Einnig er
svefnpokapláss til reiðu.
Væntanlegir þátttakendur í ráðstefnunnl eru beðnir að skrá
sig hjá Hótel Eddu Hallormsstað, sími 11705, fyrir 22. ágúst.
Dagskrá ráðstefnunnar
Laugardagur 27. ágúst:
Kl. 13-18:30 Setning: Hjörleifur Guttormsson. Olafur Ragnar
Grímsson: Afvopnunarmál og erlendar herstöðvar. Albert Jóns-
son, starfsmaður Öryggismálanefndar: ísland og hernaðarstaðan
á Norður-Atlantshafi. Svavar Gestsson: Alþjóðamál - ný viðhorf.
Tómas Jóhannesson, eðlisfræðingur: Geislavirkni í höfunum og
kjarnorkuvetur. Fyrirspurnir milli erinda. Kynnt drög að ávarpi ráð-
stefnunnar. Almennar umræður.
Kl. 20.30 Skógarganga og kvöldvaka.
Sunnudagur 28. ágúst:
Kl. 09-12 Gegn herstöðvum og hernaðarbandalögum: Steingrím-
ur J. Sigfússon: Staðan á Alþíngi og íþjóðfélaginu. Sólveig Þórðar-
dóttir, Ijósmóðir: Nábýli við herstöð. Ingibjörg Haraldsdóttir: Bar-
átta herstöðvaandstæðinga. Ávörp fulltrúa frá Norðurlandi eystra
og Austurlandi.
Kl. 13-15 Framhald baráttunnar, næstu skerf. Umræðurog niður-
stöður.
Ráðstefnustjórar: Sigríður Stefánsdóttir og Magnús Stefánsson.
Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki.
Fjölmennum í Hallormsstað.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
Norðurlandi eystra og Austurlandi
Hvað ber að gera?
Skipbrot stjórnarstefnunnar: Gjaldþrot atvinnulífs og heim-
ila
Almennur fundur í Þinghóli í Kópavogi fimmtudag kl. 20.30
Framsögurmenn: Ólafur Ragnar Grímsson, Svavar Gestsson,
Svanfríður Jónasdóttir.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið
ÆSKULÝÐSF YLKIN GIN
Úthafsrækja á úrvalsverði
Erum að selja úthafsraekju, stóra og girnilega. Frábært verð. Sendum heim.
Upplýsingar í síma 17500 á skrifstofutíma.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Lindifura, gróðursett 1910. Myndin frá 1986.
Skógrækt
„Þýtur í skógi...“
Skógarfréttirfrá Hallormsstað
Páll Guttormsson er sannkall-
aður „skógarmaður“. Heita má
að hann sé fæddur í Hallorms-
staðarskógi, ólst þar upp með
trjánum og í skóginum liggur
lífsstarf hans, mikið og gott. Við
Páll töluðumst við í síma fyrir
nokkru og þá var fest á blað sú
frásögn hans, sem hér fer á eftir.
í vor og sumar hafa vart verið
finnanlegar birkimaðkslirfur í
Hallormsstaðarskógi. Er þetta
ellefta sumarið sem svo er. Hefur
það ekki verið svo mörg ár í röð á
þessari öld. Það hjálpar til að
nærri samfelldur skógur þekur nú
svokallaða Ása, 500 ha land, fyrir
sunnan Hallormsstað. En landið
var friðað að fullu fyrir 10 árum.
Vöxtur lerkiskógarins á Hall-
ormsstað hefur verið hinn ágæt-
asti undanfarin 15 ár. Þó dró dá-
lítið úr vextinum um tveggja ára
skeið, eftir kalda sumarið 1979. í
lerkiskóginum fer fram aðal
skógarhöggið og viðarvinnslan.
Furuteigarnir, stafafura og
lindifura, hafa verið lausir við
trjásjúkdóma. Því er t.d. blómg-
un lindifurunnar í Gróðrarstöð-
inni, sem gróðursett var 1906,
mjög ríkuleg í sumar.
Vöxtur grenitrjánna í skógin-
um er ekki alveg eins jafn og góð-
ur og vöxtur furunnar og lerkis-
ins. En yfirleitt var grenið með
væna og langa' árssprota í fyrra-
sumar. Var það að þakka ríku-
legum hita í júní 1986.
Trjámaur hefur tafið dálítið
vöxt rauðgrenisins síðustu 20
árin, einkum þar sem jarð-
vegsraki er ekki nægilega mikill.
Svokölluð sitkagrenilús, er fór að
verða talsvert vart á sitkagreni
hér á landi fyrir 1960, var al-
lágeng við grenið í Hallormsstað-
arskógi heitu mánuðina
nóvember-desember sl. vetur.
Nú eru þau tré yfirleitt á góðum
vegi með að jafna sig.
Birkiskógurinn var fullút-
sprunginn 8. júní í vor, og lerki-
skógurinn viku fyrr. Góður vöx-
tur allra trjáa í skóginum byrjaði
- jafnt yfir - rétt fyrir 20. júní.
- mhg.
Úr Jónsskógi. Trén gróðursett 1951. Myndin tekin 1986.
Blágreni. Myndin tekin 1978.
Úr Guttormslundi. Trén gróðursett 1938. Myndin tekin 1983.
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 17. ágúst 1988