Þjóðviljinn - 18.08.1988, Síða 2

Þjóðviljinn - 18.08.1988, Síða 2
___________________FRETTIR____________________ Kleppur SpAalakerfið að hrynja Ingólfur Sveinsson: Vondframkoma og eyðileggjandi stjórnun. Alvarlegt mál að loka endurhœfingardeildinni. Komiðfram við okkur eins og asna þlÓÐVILIINN Mlðvlkodoour 17. óoúit 1988 183. tólubtoð 53. óroano Geðsjúklingar Þjónustan skorin við nögl EndurhœftngardeildKleppsspítala lokaO um óákveðinn tíma. Starfsfólkiðfréttir af lokun meO hálfsmánaOarfyrirvara. BráOamóttakafyrir geOsjúka á LandsspUala lögó niOur tUnu endurturfulgudeild linn- •r tegundar 1 heilbrigAukcrfmu ■em er uCmatkga nluð ge,'»lut um. hefur venð lokað um 6- átvcðmn UiM^arnmlegifram •* oé'elur að^niðSvendíun •ð þvf en deildin átti að opna þann 28. ágúa Spamaðor ct flármálaraðhcrra befur venð 1 landmu vegna |oi að þar U mikið af fðlki f hf utattúrfum. tem vinni ónurlda yfirvtnnu og tprengl Uunarammann f|óðvilj- inn hcfur heimildir fyrir þvt að á endurhefmgardcildinni vinni yfirgnnfandi meinhluti atarfa- fc.ita 1 100% vinnu. Bráðadeild geðajúkra á Und- apiuaanum hefur e.nmg ve Sjá blt. 3 vii !fn *1 * 'i i! Ííí u ii 'n n : n II í H Grandi hf Krefst skaðabóta Fyrirtækið Brekkcs í Hull hef- ur krafið löndunarfyrirtæki þar í borg um skaðabætur vegna mis- taka sem starfsmenn þess voru valdir að við stærðarflokkun fisks þegar Grandatogarinn Ás- geir RE seldi þar 1. ágúst sl. Mis- tökin leiddu til þess að mun minna verð fékkst fyrir aflann en eðlilegt þótti miðað við markaðs- verð á þeim tíma. Að sögn Sigurbjörns Svavars- sonar útgerðarstjóra Granda hf. krefst fisksölufyrirtækið Brekk- es, sem sá um fisksöluna fyrir Granda, skaðabótanna fyrir hönd fyrirtækisins. Ekki hefur verið sett fram krafa um upphæð skaðabótanna og sagðist Sigur- björn vonast til að samningar næðust án þess að þurfa að fara í hart. Ails seldi Ásgeir RE þennan dag í Hull 185 tonn og fékk fyrir aflann aðeins 11,1 milljón króna og meðalverðið einungis 60,45 krónur. Að öllu jöfnu og sam- kvæmt því verði sem fékkst þann sama dag í Grimsby hefði verið nærri lagi að fá 13,7 milljónir króna fyrir aflann og að meðal- verðið fyrir hvert kíló hefði átt að vera um 75 krónur. -grh Ingólfur Sveinsson geðlæknir á endurhæfíngardeild Klepps- spítala segir þá ákvörðun að loka deildinni með svo skömmum fyrirvara vera vonda framkomu við starfsfólk og ákaflega eyði- leggjandi. Þetta sé dæmi um harða og gamaldags stjórnun sem víðast hvar hafí verið lögð niður. Starfsfólk deildarinnar hafí verið liðlegt í tilhliðrunum í sumar en nú sé komið fram við það eins og asna. Ingólfur sagði stafsfólkið hafa hliðrað til með sumarleyfi og aðr- ar deildir hefðu fengið afnot af húsnæði deildar 11. „Við höfum mikið hliðrað til í þessu gjald- þrotaástandi spítalans en síðan er gengið á lagið og komið fram við okkur eins og asna,“ sagði Ingólf- ur. Ef allt spítalakerfið fari inn á föst fjárlög geti hann ekki betur séð en hrun þess blasi við. Það væri verið að brjóta niður heilbrigðisþjónustuna. „Ég veit ekki um neina stofnun eða ráðu- neyti sem ekki brýtur fjárlög,“ sagði Ingólfur. Að mati Ingólfs er það mjög alvarlegt mál að taka deild eins og endurhæfingardeildina í burtu. Á deild 11 hefði verið lögð áhersla á að aðstoða ungt fólk sem ætti við þunglyndi og önnur geðræn vandamál að stríða, fólk sem hefi jafnvel aldrei komist út í atvinnulífið á sinni ævi. Með þessu væri verið að reyna að rjúfa vítahring endurkomusjúklinga og mjög mikilvægt væri að þessi þjónusta væri fyrir hendi. Nú hefðu foreldrar enga þjónustu af þessu tagi fyrir sín börn. Ingólfur sagði að þessir sjúk- lingar yrðu nú að bíða og yrðu krónískir og kæmu oftar inn á móttökudeildir. Það gerði spítal- ann að verri spítala að hafa ekk- ert annað en móttöku- og hjúkr- unardeildir. Þá væri vont mál að sérhæft starfsfólk deildarinnar sem hefði náð góðri samvinnu væri nú tvístrað. Það væri ekkert sem tryggði að þetta fólk biði þol- inmótt eftir að deildin opnaði á ný. „Við höfum átt eitt besta heilbrigðiskerfi í heimi en nú er verið að eyðileggja það með því að nota það sem hagstjórnar- tæki,“ sagði Ingólfur. Réttur fólks til heilbrigðisþjónustu væri skertur og eins og ástandið væri í dag, væri það góðviljuð glæpa- starfsemi að hafa heilbrigði- skerfið undir stjórn ríkisins. Tómas Helgason yfirlæknir á Kleppi vildi koma eftirfarandi á framfæri vegna fréttar Þjóðvilj- ans af málinu í gær: Að áfram yrði tekið á móti sjúklingum á almennri bráðamóttöku og það ástand sem nú ríkti væri tíma- bundið. -hmp Hjónin Ingvar Helgason og Sigríður Guðmundsdóttir þiggja hér góðan viðurgjörning úr hendi Klaus Bredow, sendifulltrúa Þýska alþýðulýðveldisins hér á landi. Utanríkisviðskiptaskrifstofa Þýska alþýðulýð- veldisins veitti við þetta tækifæri Ingvari Helgasyni viðurkenningarskjal fyrir vandaðan og ötullegan framgang til aukinna og batnandi samskipta sem og viðskipta, íslendinga og Austur-Þjóðverja. Mynd Ari. Útflutningskvótinn Skerðir kjör sjómanna Ekki verið athuguð gœðiþess fisks sem fiskvinnslanflytur út. að er mikil óánægja meðal sjómanna vegna kvótans sem settur hefur verið á útflutning físks héðan til Englands og Þýska- lands með gámum og skipum. Hversu tekjuskerðing sjómanna vegna kvótans er mikil er erfitt um að segja en víst er að hún er umtalsverð, sagði Hólmgeir Jóns- son framkvæmdastjóri Sjómann- asambands íslands við Þjóðvilj- ann. Utanríkisráðuneytið ákvað fyrr í sumar að stemma stigu við taumlausum útflutningi fisks í gámum og sölu upp úr skipum á Bretland og á Þýskaland til að koma í veg fyrir verðfall á mörk- uðunum vegna offramboðs. Á hverjum föstudegi verða útflutn- ingsaðilar að sækja um útflutn- ingsleyfi til viðskiptaskrifstofu utannícisráðuneytisins þar sem kvótanefndin svokallaða fer yfir umsóknirnar og vinsar út þá sem fluttu út á sama tíma í fyrra. Þeir ganga fyrir með leyfisveitingar en nýliðarnir fá ekki útflutningsleyfi vegna þess að þeir hafa ekki áunnið sér „söguleg útflutnings- réttindi" eins og það nefnist á fínu máli. Að sögn Hólmgeirs þarf að sinna vel ferskfiskmörkuðunum ytra þar sem þeir taki við þeim fiski sem fiskvinnslan getur ekki unnið með góðu móti hér heima. Hólmgeir sagði að það hefði aldrei verið skoðað að neinu marki afhverju verðföll verða á mörkuðunum nema vegna of- framboðs. „Fiskur getur einnig fallið í verði vegna lélegra gæða og það er áleitin spurning hvort vinnslan sé ekki oft á tíðum að flytja út fisk sem ekki er neitt sér- stakur að gæðum til þess að geta unnið þann ferskasta sem verið er að landa upp úr viðkomandi skipi,“ sagði Hólmgeir Jónsson. Hann sagði að vissulega gætu alltaf komið toppar í veiðarnar hér sem orsökuðu offramboð en það réttlætti ekki eitt sér kvóta á útflutninginn. Samkvæmt út- flutningstölum frá Fiskifélagi ís- lands nam útflutningur á þorski í júnímánuði 1986 um 6 þúsund tonnum, 1987 í júní nam hann 4 þúsund tonnum og í júní sl. var flutt út um 3 þúsund tonn. „Þetta sýnir okkur hvað tonn- afjöldinn getur sveiflast til eftir því hvernig veiðist á hverjum tíma og hvernig vinnslan er í stakk búin til að vinna þann afla sem berst að landi með góðu móti,“ sagði Hólmgeir Jónsson framkvæmdastjóri Sjómanna- sambandsins. -grh Dráttarvextir Innanhúsmál í Amarhváli Magnús Guðjónsson: Hefurekki verið rœtt við Samband íslenskra sveitarfélaga. Vangoldnir dráttarvextir tœpur miljarður h a® hefur ekki verið rætt við ■ sveitarfélögin um neinar hug- myndir á niðurfellingu dráttar- vaxta vegna vangoldinna gjalda. Enda þætti mér fáránlcgt að slík ákvörðun yrði tekin án þess, þetta virðast vera einhverjar . innanhúsvangaveltur í Arnar- hváli sem ég skil ekki hvernig komust í fjölmiðla - sagði Magn- ús Guðjónsson formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga í samtali við Þjóðviljann. Hann sagði einnig tölvuverðan mun á stöðu þessara mála hjá sveitarfé- lögum og ríki. Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra kynnti þá hug- mynd sína á ríkisstjórnarfundi á föstudag að dráttarvextir vegna vangoldinna gjalda fyrir skatt- kerfisbreytingu, yrðu felldir nið- ur. Guðmundur Vignir Jósefsson hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík sagði Þjóðviljanum að þetta hefði ekki verið rætt við Gjald- heimtuna af hálfu fjármálaráðu- neytisins. Eftirstöðvar gjald- heimtugjalda, útsvars og að- stöðugjalds væru um 4,1 miljarð- ur og dráttarvextir af þeim væru tæpur miljarður. Magnús Guðjónsson sagði þessi mál horfa öðruvísi við sveitarfélögunum en ríkinu. Sveitarfélögin hreinsuðu reglu- lega upp hjá sér það sem þau teldu óraunhæft að innheimta, til að mynda gjöld sem tengdust dánarbúum. En ríkið hefði verið miklu stirðara. „Ríkið hefur ver- ið eins og staður klár og þess vegna hafa safnast upp óinnheimt gjöld vegna dánarbúa og annarra hluta og þar af leiðandi hlaðist upp dráttarvextir." Ef fjármálaráðherra ætlast til að þessi niðurfelling nái einnig til sveitarfélaganna, segir Magnús að það verði að vera Alþingis að breyta því. Ráðherrann geti ekki ákveðið þetta fyrir sveitarfé- lögin. Og ef Alþingi ætli að setja nýja löggjöf ættu sveitarfélögin að fá að vera með í mótun hennar sem hagsmunaaðili. Annað væri fáránlegt. _hmp ísafjörður Góð veiði í dragnót Góðceri ísjónum og hátt hitastig „Við höfum verið með svona 50-60 tonn yfir vikuna í sumar og það þykir bara nokkuð gott. Við lönduðum í gærmorgun 25 tonn- um af úrvals þorski sem við feng- um á einum og hálfum sólarhring og erum nú hérna fyrir utan Dýr- afjörðinn í ágætisveðri,“ sagði Gísli Skarphéðinsson skipstjóri á Víkingi 3 IS við Þjóðviljann. Aðspurður um tillögu Haf- rannsóknastofnunar að ekki megi veiða meira en 300 þúsund tonn af þorski á næsta ári sagði Gísli að við því væri svo sem ekki neitt að segja. Aftur á móti sýnd- ist honum ástand sjávar vera gott úti fyrir Vestfjörðum og ekkert nema góðæri að sjá og mikið um æti í sjónum. „Hitastig sjávar hér er um 10,8 gráður sem er fínt fyrir fiskinn þar sem hann er að alast upp. Hins vegar ef menn eru að leita að einhverju neikvæðu, þá má alltaf finna bletti þar sem ástand sjávar er slæmt. En við sem erum alla daga á sjó hér vestra sjáum ekki neitt nema góðæri í sjón- um,“ sagði Gísli Skarphéðinsson skipstjóri á Víkingi 3 frá ísafirði. -grh 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. ágúst 1988

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.