Þjóðviljinn - 18.08.1988, Side 14
Ösku-
haugar
í Öskjuhlíð
- Það er með mig eins og fleiri
að þó maður hafi víða ferðast um
heiminn þá eru fjölmargir staðir í
næsta nágrenni manns þar sem
aldrei er stigið niður fæti, jafnvel
þó maður eigi leið þar f ramhjá
næstumdaglega.
Einn af þessum stöðum er
Öskjuhlíðin í Reykjavík. Auðvitað
hef ég oftsinnis horft upp í hlíðina,
og keyrt uppað hitaveitutönkun-
um og horft yfir höfuðborgar-
svæðið, en aldrei látið verða af
því að ganga um hlíðina og skoða
gróðurinn, hamrabeltin og dást af
útsýninu.
Um síðustu helgi lét ég draum-
inn loks rætast. Fór í gönguskóna
og gekk um hlíðina í hópi ættingja
sem fara galvaskir í gönguferðir
allar helgar árið um kring. Bílun-
um var lagt við Hótel Loftleiðir og
síðan gengið niður í Nauthólsvík
og þaðan afturupp íöskjuhlíð-
ina.
Þaö var ekki mikið líf við heita
lækinn en þeim mun meira af
tómum glerflöskum og plastbrús-
um undan margvíslegustu vökv-
um, bæði við og ofaní læknum. f
jsann mund er við yfirgáfum læk-
inn bar að rútubíl og út strunsuðu
tugir túrhesta í vettvangskönnun
eftir hátíð helgarinnar.
Jarðlögin ífjöruborðinu, skút-
urnar á Skerjafirðinum og
gróskumikill gróðurinn í hlíðinni
fyrirofan gera þetta svæði að
sérlegaskemmtilegu útivistar-
svæði. En það er eitt sem skyggir
á. Umgengnin og draslaraskap-
urinn er yfirgengileaur á vissum
svæðum í hlíðinni. Áldósir liggja
eins og sprengjubrot um allt,
pappafernurundan Svala, Hi-Ci
og hvað þetta nú allt heitir,
plastpokarog annað nútímadrasl
sem hefur þann sérstaka eigin-
leika að eyðast hvorki af vatni né
vindum.
Það er kannski fulldjúpt tekiö í
árinni að öskjuhlíðin sé eins og
öskuhaugur á að líta, en eitt er
víst að verði ekki tekið til hend-
inni, svæðið hreinsað og borgar-
búar og aðrir sem leið eiga um
hlíðina láti af því að fleygja þar
rusli, þá erstutt í að úr væntan-
legri hringekju ofaná hitaveitut-
önkunum gefi fátt annað að líta í
hlíðinni en hauga af tómum áldó-
sum, pappaogplastpokum.
-ig-
ídag
er 18. ágúst, fimmtudagur í átj-
ándu viku sumars, tuttugasti og
sjötti dagur heyanna, 231. dagur
ársins. Sól kemur upp í Reykjavik
kl. 5.28 en sest kl. 21.33. Tungl
vaxandi á fyrsta kvartili.
Viðburðir
Reykjavík fær kaupstaðarréttindi
1786.
Þjóðviljinn fyrir
50 árum
17 starlsmönnum símans sagt
upp. Línulagningarmennirnir
reknir eftir 10 til 20 ára starf. Og
þetta skeður á meðan menn bíða
eftir að fá inn til sín síma sem þeir
eru búniraðborga.
Spánskastjórnin endurskipu-
lögð. Orsökin: Ágreiningur um
hernaðarframleiðsluna í landinu.
Kólera í liði Japana. Sóknin til
Hanká gengur þeim seint.
UM ÚTVARP & SJONVARP
Stofan og kirkjan áður en framkvæmdir á vegum borgarinnar hófust. Áður en borgin þáði þær og það land sem þeim fylgir að gjöf frá ríkinu.
Sjónvarpsáhorfendur fá séð hvernig til hefur tekist við lagfæringar og betrumbætur. Mynd Sig
Stofan opnuð Orgelið vígt
í dag verður Viðeyjarstofa messuhaldi. Biskup íslands, kórinn syngur. Síðan verða eynni við athöfnina, en skrifstofa
opnuð með pomp og prakt og herra Pétur Sigurgeirsson, vígir haldnar ræður og hinum og þess- borgarstjóra afsakar það með
sýnir Sjónvarpið í kvöld klukkan nýtt fjögurra radda pípuorgel og um hrósað fyrir frábæra fram- plássleysi.
20.35 frá athöfninni. blessar þær viðgerðir sem unnar göngu við verndun þessarar Umsjón með útsendingu Sjón-
Prestar og prelátar gera at- hafa verið í eynni. Prestafjöld perlu, Viðeyjar. varpsins á athöfninni hefur Rún-
höfnina hina virðulegustu með tekur þátt í messunni og Dóm- Eingöngu verða boðsgestir í ar Gunnarsson.
Tónlistarkvöld
Á Tónlistarkvöldum Ríkisút-
varpsins hefur að undanförnu
verið útvarpað frá tónleikum á
Listahátíð. Að þessu sinni er
komið að tónieikum þeirra Svövu
Bernharðsdóttur og Önnu Guð-
nýjar Guðmundsdóttur á Kjar-
valsstöðum 10. júní síðastliðinn
og hefst þátturinn klukkan 20.15.
í seinni hluta Tónlistarkvöldsins
er svo útvarpað frá tónleikum
Musica Nova í Norræna húsinu
þann 10. janúar síðastiiðinn, sem
þau Þóra Johansen og Martin van
der Valk héldu.
Þær stöllur, Svava og Anna
Guðný, flytja eingöngu tónlist
eftir íslensk núlifandi tónskáld.
Þar á meðal yngstu kynslóðina,
þá Kjartan Ólafsson, Hilmar
Þórðarson, Misti Þorkelsdóttur
og Áskel Másson. En á efnis-
skránni eru einnig verk eftir stór-
laxa á borð við Þorkel Sigur-
björnsson og Jón Þórarinsson.
Þóra og Martin flytja verk eftir
Enrique Raxach, Þorkel Sigur-
björnsson og Lárus H. Grímsson
í þessum fyrri hluta tónleika
þeirra, en seinni hlutanum verð-
Sighvatur Blöndahl er annar um-
sjónarmanna Bílaþáttar Stöðvar
2 sem er á dagskrá klukkan
18.45 í óruglaðri sendingu.
urútvarpaðsunnudaginn21. ág-
úst.
Kynnir á Tónlistarkvöldinu er
Hákon Leifsson.
Bílaþáttur
Stöðvar 2
í dag hleypir Stöð 2 af stokkun-
um nýjum bflaþætti sem verður á
dagskrá síðdegis á miðviku-
dögum mánaðarlega.
Iþættinum í dag verður Citron
Ax - bifreið reynsluekið, fréttir
verða sagðar af nokkrum amer-
ískum bifreiðum og Toyota Cor-
olla verður til umfjöllunar.
Bílaþættirnir verða í umsjá
Birgis Þórs Bragasonar og Sig-
hvatar Blöndahls.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Hún hlýtur að hafa skrifað mér
sérstaklega. Hún hefur sett bréfið
í ábyrgð. Svoleiðis bréfum seinkar
stöku sinnum.
Þá þarf ég líka
að kvitta fyrir
móttöku. Hún
1 vill vera viss
um að mitt
misfarist ekki.
Heyrð'annars;
hér bætir hún við:
Þú mátt koma
með
krakkabjánann
með þér ef þú
endilega vilt.
FOLDA
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 18. ágúst 1988