Þjóðviljinn - 18.08.1988, Qupperneq 16
'SPURNINGI
r
Telur þú aö aðgerðir
Greenpeace-samtak-
anna eigi eftir að hafa á-
hrif á fiskmarkaði íslend-
inga erlendis?
Jónína Firth
einkaritari:
Já, ég held að þær eigi örugglega
eftir að hafa áhrif. Ég bý í Bret-
landi og þar er fólk æ meir farið
að taka mark á áróðrinum gegn
hvalveiðum íslendinga. Áróður-
inn gegn íslenskum fiskafurðum
hefur verið mikill og ég held hann
fari að skila árangri á næstunni.
Hálfdán Gústavsson
trésmiður:
Nei, ég vil meina að þessi áróður
eigi eftir að minnka og dvína
smátt og smátt þegar frá líður.
Þetta hefur engin áhrif.
Halldóra Skúladóttir
sjúkraliði:
Ég vona ekki.
Ingibergur Óskarsson
rafvirki:
Ég get ímyndað mér að þær eigi
eftir að hafa einhver áhrif, en þó
ekki mikil. Best gæti ég trúað að
þau yrðu afar takmörkuð.
Kristbjörg Ásmundsdóttir
húsmóðir:
Ég vona ekki. Ég held það sé nú
takmarkað sem hlustað er á þá.
Ég stend altént ekki með þeim.
PIÓÐVILIINN
Fimmtudagur 18. ógúst 1988 184. tölublað 53. órgangur
íran
Ofsóknir sakir tníarskoðunar
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Ruhi Huddleston: Baháíar algjörlega réttlausir. Bróðir minn fangelsaður og
pyntaðurfyrirengarsakiraðrarentrúna. Kvenfrelsi óþekkt hugtak
Ruhi Huddleston: Forsenda friðar í heiminum í dag er að konur fái
völd, án þess að þurfa að tileinka sér vinnubrögð og viðhorf karla.
Mynd E.OI
I' íran eru trúsystkin mín svipt
öllum mannlegum réttindum,
þau eru tekin af lífi, fangelsuð,
pyntuð, svipt atvinnu og börn
þeirra rekin úr skóla. Allar þess-
ar ofsóknir eru eingöngu vegna
þeirra trúar sem fólkið aðhyllist,
sagði Ruhi Huddleston sem er ír-
önk kona búsett í Bandaríkjunum
og er í stuttri heimsókn hér á landi
um þessar mundir. Hún er Baháí
trúar en í íran eru átrúendur Ba-
háía fjölmennir og hafa sætt mikl-
um ofsóknum af klerkastjórninni
í íran síðan byltingin var gerð
1979.
Ruhi á fjölda ættingja í íran og
getur sagt margar sögur af órétti
því sem þau eru beitt vegna trúar
sinnar.
Læknar neituðu móður minni
um mikilvæga augnaðgerð vegna
þess að hún er Baháí og hún fær
ekki einu sinni vegabréf til að
geta yfirgefið landið og fengið
læknishjálp erlendis. Bróður
mínum og konu hans var nýlega
sleppt úr fangelsi þar sem þau
hafa sætt pyntingum. Það er í
raun kraftaverk að þeim skuli
hafa verið sleppt því vanalega á
fólk ekki afturkvæmt úr fangels-
um. Ég gæti haldið áfram að tí-
unda fleiri dæmi um ofsóknir og
ömurlegan aðbúnað, það er sama
hvar maður grípur niður, rétt-
leysið er algjört.
Baháía trúin, sem eru yngstu
trúarbrögð í heiminum í dag,
vilja vinna að einingu alls
mannkyns og alheimsfriði. Eitt af
því sem Baháíar leggja áherslu á
að sé forsenda friðar er jafnrétti
kynjanna en sem kunnugt er er
staða kvenna í íran sem og öðrum
íslömskum ríkjum mjög bágborin
og þar litið á þær sem eigur karl-
manna á svipaðan hátt og önnur
húsdýr.
- Það eru allir jafnir fyrir guði,
sama af hvaða kynþætti þeir eru
eða kynferði. Við höldum því
ekki fram að það sé enginn mun-
ur á konum og körlum heldur að
þrátt fyrir þennan mun þá eru
kona og karl tveir jafnmikilvægir
einstaklingar sem eiga að hafa
sömu möguleika. Konur eiga að
vera stoltar af þeim eiginleikum
sem þær búa yfir og samfélagið
hefur ekki efni á því að vannýta
krafta þeirra. Með því einu að
konur fái tækifæri til að taka þátt í
stjórnun og ákvarðanatöku ríkja
án þess að þurfa að tileinka sér
karlleg sjónarmið og vinnubrögð
þá er von tii þess að friður komist
á í heiminum, sagði Ruhi.
Svo virðist sem eitthvað hafi
dregið úr ofsóknum á hendur Ba-
háíum í íran á síðastliðnu ári
einkum vegna þess að augu ann-
arra ríkja hafa í auknum mæli
beinst að þeim mannréttindar-
brotum sem þar erú framin, en
Ruhi telur að um leið og raddir á
alþjóðavettvangi þagni þá aukist
ofsóknir á ný.
- Vissulega er það mikilvægt
að aðrar þjóðir beiti sér gegn of-
sóknunum í íran og þrýstingur er-
lendis frá hefur hjálpað, en það
er ekki síður mikilvægt verkefni
að upplýsa fólk um út á hvað okk-
ar trú gengur. Baháíar eru ekki
bara í austurlöndum, þetta eru
alheims trúarbrögð, útbreidd um
allan heim og vinna að því að var-
anlegur friður komist á alls stað-
ar.
»Þ