Þjóðviljinn - 19.08.1988, Blaðsíða 7
Geir Hallgrímsson, seðla-
bankastjóri og fyrrum ráð-
herra og þingmaður hefur
um árabii setið fundi
Bilderberg-hópsins og á nú
sæti í stjórnarnefnd sam-
takanna. Hann tók við af
Bjarna Benediktssyni,
fyrrum forsætisráðherra.
Geir hefur um nokkurra ára
skeið haft sér til fylgdar
Björn Bjarnason, aðstoð-
arritstjóra Morgunblaðsins,
son Bjarna heitins Bene-
diktssonar. Björn var einn-
ig fylgdarmaður Geirs á sið-
asta fundi samtakanna sem
haidinn var sl. vor í Austur-
ríki.
„Þjóðviljinn hefur löngum vilj-
að láta líta út sem þessi hópur sé
voðalega dularfullur og valda-
mikill og síst ætla ég að fara að
draga úr því,“ sagði Geir í gam-
ansömum tón, þegar tíðindamað-
ur Helgarblaðsins ræddi við
hann. „Lengst af hef ég mætt einn
á þessa fundi. Ég er nú ekki viss
um hvernig það kom til að mér
var boðin þátttaka, en ég held að
það hafi æxlast þannig að vinir
Bjarna heitins Benediktssonar
innan samtakanna hafi stungið
upp á mér,“ sagði Geir. Hann
sagði ennfremur að kvóti væri á
fjölda þáttakenda eftir löndum,
en eftir að fulltrúum frá íslandi
var fjölgað í tvo hefði Einar Ben-
ediksson, sendiherra í London,
orðið sér samferða á fund sem
haldinn hafi verið í Bretlandi.
Björn Bjamason hefði hins vegar
komið með á eina tvo til þrjá
fundi, þar með talinn síðasta fund
sem haldinn var í júní í Austurr-
fki.
Val þeirra Einars og Bjöms á
sínar eðlilegu skýringar, sem vart
þarfnast útlistunar; Einar var við
hendina þegar fundurinn var
haldinn í Bretlandi en Bjöm fetar
í fótspor föður síns. Það vakti
hins vegar eftirtekt að fylgdar-
maður Geirs á næsta fundi þar á
undan var Davíð Oddsson, borg-
arstjóri í Reykjavík. Hefur það
verið túikað þannig að Geir væri
að leggja lóð sitt á vogarskál Da-
vfðs sem framtíðarforingja Sjálf-
stæðisflokksins með því að velja
borgarstjórann en ekki forsætis-
ráðherrann, Þorstein Pálsson.
Miðað við mannaval á fundi Bild-
erbergs væri ugglaust eðlilegra að
forsætisráðherra og formaður
stærsta stjórnmálaflokksins sæti
þessa fundi, en ekki borgarstjóri
smáborgar eins og Reykjavíkur.
Hins vegar er greinilegt að nokk-
urrar íhaldssemi gætir hjá stjóm
Bilderbergs við val á meðlimum,
og því gæti hugsast að stjórnarm-
eðlimir, samkvæmt ábendingum
kunnugra, velji frekar mann sem
talinn er eiga framtíðina fyrir sér,
heldur en hinn sem talinn er eiga
skammt eftir í æðstu embættum.
Aðspurður sagðist Geir velja
sjálfur hverjir væru með honum á
fundum, en það hlyti þó formlegt
samþykki stjórnar samtakanna.
Það væri kvóti á fjölda fundar-
manna frá hverju landi og þeir
þyrftu helst að vera framámenn á
sínu sviði, hvort sem það væri á
sviði stjórnmála, peningamála
eða verkalýðsmála. Hann hefði
valið Davíð Oddsson vegna þess
að honum litist vel á hann sem
forystumann, hann væri góður
fulltrúi íslands á þessum vett-
vangi og hefði hugmyndir fram
að færa. Um það hvort val hans
mætti túlka sem sérstaka stuðn-
ingsyfirlýsingu við Davíð Odds-
son, sagði Geir að það væri ljóst
að Davíð væri maður sem hann
styddi og treysti til góðra verka.
Þó svo að Davíð hefði ekki mætt
á síðasta fund Bilderberg-hópsins
sagði Geir að eflaust ætti Davíð
eftir að koma þar oftar.
Aðspurður hvort ekki hefði
verið eðlilegra að Þorsteinn Páls-
son forsætisráðherra hefði orðið
samferðamaður hans á fundi,
sagði Geir að það væri ekkert
sem útilokaði að Þorsteinn kæmi
á fund í framtíðinni. „Mönnum er
skipt nokkuð út og þótt ég hafi
verið nokkurs konar fastafulltrúi
þá er það vegna þess að ég á sæti í
stjórnarnefnd samtakanna."
Um það hvort hann teldi Davíð
Oddsson hafa burði til þess að
verða formaður Sjálfstæðis-
flokksins í framtíðinni, sagði
Geir að það væri ekki vímabært
áð ræða. „Þorsteinn Pálsson er
formaður og það eru engar
breytingar fyrirhugaðar á því
hvað ég veit. Ég styð þá báða,
Þorstein og Davíð,“ sagði Geir.
En hvað segir Geir sjálfur um til-
gang samtakanna? „Samtökin
miða að eflingu samstarfs vest-
rænna lýðræðisþjóða, en að öðru
leyti er þetta óformlegur félags-
skapur þar sem heyrast margar
raddir. Olof Palme var þarna af
vinstri vængnum og Margaret
Thatcher hefur verið þarna af
hinum vængnum, svo dæmi séu
tekin. Fulltrúar verkalýðsfélaga
hafa einnig komið,“ sagði Geir.
„í anda þess hversu óformleg
samtökin eru, eru ekki bomar
fram formlegar tillögur heldur
hittast menn þarna til að geta rætt
mál sín á milli á frjálsan og
óþvingaðan hátt, án þess að þurfa
að hafa áhyggjur af að það fari
um heimsbyggðina í gegnum fjöl-
miðla,“ sagði Geir Hallgrímsson
að lokum.
I
I
k
J
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7