Þjóðviljinn - 19.08.1988, Side 9
• •
facti tt\ a p CFDirnrn r>
T v/kj 1 UJLf/VvxI3jj FvUí JL JL JJtV
Bandarískir repúblikanar
Bush
tilbúinn
í slaginn
Varaforsetinnformlega útnefndurframbjóð-
andi í ígœrkveldi. Brást varaforsetaefnið
höfuðskyldu hvers hœgrimanns?
George Bush var formlega út-
nefndur forsetaframbjóoandi
repúblikana á þingi flokksins í
New Orleans í gærkveldi (kl. 2,30
að íslenskum tíma). Hann sagðist
í gær vera afar bjartsýnn og
hvergi hræddur hjörs í þrá þótt
komið hafi á daginn að væntan-
legur varamaður hans hafi ekki
gegnt herskyldu af þeim myndar-
brag sem hægrimönnum vestra
þykir tilhlýðilegur.
„Ég er í stuði og tilbúinn í
slaginn,“ heyrðist Bush segja við
kampakáta þingfulltrúa úr
heimafylki sínu, Texas. Hann
sagðist bíða þess með óþreyju að
hefja kosningabaráttuna og
„gera þjóð minni grein fyrir því á
heiðarlegan og hlutlægan hátt
hvaða viðhorf og hugmyndir and-
stæðingur minn hefur.“
Bush og félagar gera sér miklar
vonir um að þakkarræðan sem
hann flutti í nótt muni dubba
uppá fremur þokukennda ímynd
hans og auka álit kjósenda á hon-
um. Fá þá til að gleyma því að
hann er ekki varamaður Ronalds
Reagans heldur frambjóðandinn
George Bush.
En alltaf leggst þeim eitthvað
til, niðurrifsmönnum fjölmiðl-
annna, laundemókrötunum.
Sjónvarpsmenn sem tóku varaf-
orsetaefni varaforsetans, öld-
ungadeildarþingmanninn Dan
Quayle, á beinið höfðu grafið
það upp að hann barðist ekki í
Víetnam einsog þorri jafnaldra
hans neyddist til að gera fyrir
tveim tugum ára. Quayle þessi
hefur einn um fertugt.
Þetta kann að virðast smáatriði
hér á hjara veraldar en því er
þveröfugt farið um bandaríska
hægrimenn. Þess vegna kann
þetta mál að verða Bush fjötur
um fót í kosningaslagnum við
Dukakis.
Þessa þóttust fréttamenn þegar
sjá merki í gær er þeir hjuggu eftir
því að Quayle var fjarri góðu
gamni á blaðamannfundi vara-
forsetans í gærmorgun og eins
boðaði Quayle forföll þegar hann
átti að koma fram í sjónvarps-
Ekki veitir af að dubba svolítið uppá (í)mynd Georges Bush og þoka
honum út úr skugga Reagans.
þætti um hádegisbilið.
Sjálfur sagði Bush að þetta
væri ofur eðlilegt þar eð félagi
sinn væri að semja ræðu. En hátt-
settir „starfsmenn framboðsins"
viðurkenndu að þeir hefðu fund-
að stíft með Quayle í því augna-
miði að fara ofaní saumanna á
ferli hans svo komist yrði hjá
fleiri „slysum".
Hermennskuglöp Quayles eru
semsagt þau að hann notfærði sér
„sambönd" moldríkrar fjöl-
skyldu sinnar í Indíanafylki til
þess að vera kvaddur í þjóðvarð-
liðið svonefnda en ekki sjálfan
Bandaríkjaher. Þjóðvarðliðar
gera aldrei strandhögg erlendis
og því þurfti Quayle ekki að ótt-
ast að hann yrði látinn bera
beinin í Víetnam.
Reuter/-ks
Einn af þingfulltrúunum í New Or-
leans, Robert nokkur Tate frá
New York.
Skák
Jafnt hjá
löndum
Einvígi ensku stórmeistaranna
Nigels Shorts og Jonathans Speel-
mans er haflð. Það er liður í
heimsmeistarakeppninni í skák.
Þeir félagar eru þriðji og flmmti í
röð sterkustu skákmanna ef
marka má elóstigalistann.
í gær hafði Short hvítt og atti
kóngspeði sínu á foraðið að
vanda. Speelman kom honum á
óvart með franskri vöm, náði
frumkvæðinu og stóð vel um
tíma. Með því að taka á honum
stóra sínum náði Short að jafna
taflið og sömdu þeir um skiptan
hlut eftir 33 leiki.
I:e4 e6. 2:d4 d5. 3:Rc3 Rf6.
4:Bg5 dxe4. 5:Rxe4 Rbd7.
6:Rxf6 Rxf6. 7:RO h6. 8:Bh4 g6.
9:Bc4 Bg7. 10:0-0 0-0. Il:c3 b6.
12:De2 Bb7. 13:Hadl a6.
14:Hfel Dd6. 15:Bb3 a5. 16:Bg3
Dc6. 17:Dfl Ba6. 18:c4 Had8.
19:Re5 Db7. 20:Ba4 c5. 21:dxc5
bxc5. 22:De2 Hxdl. 23:Hxdl
Rh5. 24:b3 Rxg3. 25:Hxg3 Dc7.
26:f4 Hd8. 27:Hxd8 Dxd8.
28:Bc6 Bc8. 29:Kh2 h5. 30:BO
h4. 31:De3 Hxg3+. 32:Kxg3
Dd6. 33:Kf2 Bd7. Jafntefli.
Reuter/-ks.
Pólland
Verkföll fyrir nýsköpun
Walesa hvetur verkamenn til dáða og segir vinnustöðvanir neyðarúr rœði
usundir pólskra verkamanna
eru nú í verkfalli og liggur öll
vinna niðri í fímm kolanámum og
við aðalhöfnina í Szczecin. Lech
Walesa kveðst styðja verkfalls-
mennina heilshugar og búast við
langvarandi átökum á pólskum
vinnumarkaði.
8.500 námamenn í fimm kola-
námum í suðurhéruðum Póllands
hafast ekki að. Að sögn frétta-
manna sem komið hafa að máli
við þá krefjast þeir þess allir sem
einn að starfsemi Samstöðu verði
heimil á ný, að aðbúnaður á
vinnustöðum verði færður í við-
unandi horf og ennfremur aukins
fjár fyrir störf sín.
Hafnarverkamennirnir í
Szczecin krefjast hins sama. Alls
munu um 1.800 þeirra eða megin-
þorrinn halda að sér höndum.
Pólska útvarpið greindi frá því
í gær að 16 stór vöruflutningaskip
biðu afgreiðslu í Szczecinhöfn,
væri ýmist hvort ferma þyrfti þau
ellegar afferma.
Embættismaður í pólska sam-
gönguráðuneytinu sagði frétta-
manni í síma að allmargir starfs-
menn strætisvagna Szczecinborg-
ar hefðu lagt niður vinnu í
samúðarskyni vegna aðgerða
hafnarverkamanna.
Pólska sjónvarpið skýrði frá
því í gærkveldi að 2.500 náma-
menn af alls 8.000 sem starfa við
Jastrzebie kolanámuna í sam-
nefndum bæ hefðu lagt niður
vinnu í eftirmiðdaginn í gær.
Jastrzebie liggur á námasvæði,
steinsnar frá landamærunum að
Tékkóslóvakíu. „Við hefjum
ekki vinnu á ný fyrr en Samstaða
Málsvari bandaríska varnar-
málaráðuneytisins skýrði
frá því í gær að stjórn sín hygðist
senda sérfræðingalið til Pakistan.
Þeir væru gerðir út af örkinni í
því augnamiði að reyna að
grafast fyrir um það hvað olli
flugslysinu sem varð Zia-ul-Haq,
forseta landsins, að fjörtjóni við
32. mann. Sem kunnugt var
bandariski sendiherrann á meðal
er orðin lögleg aftur,“ hefur Re-
uter eftir einum verkfallsmanna,
Jerzy Swidersky að nafni.
Fréttamenn hittu Walesa að
máli á hafnarsvæði Gdansk.
Hann kvað nú svo komið að hann
hvetti menn fremur en letti til
vinnustöðvana, þær væru eina
færa leiðin til þess að knýja ráða-
menn til nýsköpunar í pólsku
samfélagi. Hann bætti því við að
þeirra er fórust sem og rjóminn
úr herforingjasveit Pakistans.
Málsvarinn kvað hér um átta
, manna „slysanefnd" ráðuneytis-
ins að ræða og væri þetta hið
mesta einvalalið. Hann sagðist
ekki hafa neinar upplýsingar um
orsök skaðans og enga ástæðu til
að ætla að um hryðjuverk hafi
verið að ræða þótt ýmsir pakist-
anskir embættismenn hafi ekki
tregða valdhafa til þess að stíga á
og feta umbótabraut, einsog kol-
legar þeirra í Moskvu hafá verið
að reyna, væri óskiljanleg út frá
sjónarmiði stjórnvisku og
heilbrigðrar skynsemi, greinilegt
væri að ráðamenn væru annað-
hvort gersamlega rænulausir um
þjóðarhag eða þá bara svona ó-
skaplega hiokafullir eiginhags-
munaseggir. Reuter/-ks.
viljað útiloka þann möguleika.
Nokkrir votta segjast hafa
heyrt tvær sprengingar áður en
brakið úr flugvélinni féll til jarðar
í gær, um 10 mínútum eftir flug-
tak. Auk sendiherrans fórst helsti
hermálafulltrúi Bandaríkja-
manna í Pakistan, Herbert Wass-
om að nafni.
Reuter/-ks.
Pakistan
Sérfræðingar að vestan
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 9