Þjóðviljinn - 19.08.1988, Síða 11

Þjóðviljinn - 19.08.1988, Síða 11
FOSTUDAGSFRETTIR Húsnœðislánin Jóhanna neitar hækkun Félagsmálaráðherra: Vaxtahœkkun húsnæðislána ein ogsér ekki til umræðu afminni hálfu. Endurskipulagning húsnœðiskerfisins íburð- arliðnum Ölduselsskóli Fletri flýja Sex kennarar hafa nú sagt upp störfum sínum við Ölduselsskóla vegna ráðningar Sjafnar Sigur- björnsdóttur sem skólastjóra við skólann. Fyrstur til að hætta var yfirkennarinn sjálfur, Daníel Gunnarsson, einsog kom fram í Þjóðviljanum í gær, en nú hafa fimm kennarar til viðbótar sent inn uppsagnir sínar. Flestir kennaranna biðu þess að Daníel gerði upp hug sinn til þess hvort hann vildi vera eða hverfa frá skólanum eftir að að- stæður breyttust á þann veg sem flestir kannast við. Kennarar við skólann segjast nú vera komnir í nokkra klemmu vegna þess hve seint Daníel hafi látið endanlega uppi um áform sín því nú er erfitt fyrir þá að segj a störfum sínum lausum og fylgja dæmi fyrrum yfirkennarans og núverandi skólastjóra Banka- mannaskólans. Þannig er farið um flesta kenn- ara í Ölduselsskóla að þeir telja sig verða að vera um kyrrt því nú er búið að ráða í flestar þær kenn- arastöður sem þeir hefðu getað ráðið sig í í vetur. -tt Bílasala Staðfest með gíró Pósthúsin taka við af Bifreiðaeftirlitinu. Af- greiðslustöðum fjölgar um hundrað Frá og með 1. september gjör- breytist skriffinnska kringum kaup og sölu notaðra bfla. Þá hætta afgreiðslur Bifreiðaeftir- litsins að taka á móti tilkynning- um um eignarbreytingar og á að skila tilkynningum um slfkt á pósthús. Bifreiðaeftirlit ríkisins og Póstgíróstofan sem hafa samstarf um þetta í samráði við dóms- og kirkjumálaráðuneytið. Póstgíró- stofan hefur gefið út nýtt póst- eyðublað sem nefnist „Tilkynn- ing um eigendaskipti ökutækis“. Það má fá á öllum pósthúsum landsins án endurgjalds. Með nýja fyrirkomulaginu fjölgar afgreiðslustöðum þessara tilkynninga um hundrað í öllum byggðum landsins og tíminn sem líður frá því að eigendaskipti eru tilkynnt og þar til innfærsla fer fram, styttist að mun. Þau atriði sem skrá skal á nýja eyðublaðið eru hin sömu og áður nema að á nýja eyðublaðið skal einungis skrifa fast númer ökutækisins, ekki skráningarnúmerið. -grh ykist á ári úr 35.000 krónum mið- að við 3,5% vexti, í 85.000 krón- ur hækki vextirnir í 8,5%. Jóhanna sagði að hún vildi í sjálfu sér ekki tjá sig um einstak- ar hugmyndir sem nefndin væri að fjalla um fyrr en hún hefði séð nefndarálitið í heild. Hún sagði að ljóst væri að lengi hefði vakað fyrir mönnum að samræma þyrfti útlánavexti hús- næðislána þeim vöxtum sem líf- eyrissjóðirnir lánuðu ríkinu í húsnæðiskerfið. - En það verður ekki gert með einhliða vaxtahækkun sem yrði mjög þung fyrir heimilin. Lág- launafjölskyldur þyldu ekki slíka einhliða hækkun, sagði Jóhanna, sem sagði að vaxtahækkun yrði þá að mæta með niðurgreiðslum í gegnum skattakerfið svo tryggt væri að vaxtabyrði þeirra sem væru að kaupa eða byggja í fyrsta sinn eða eru að stækka hófiega við sig vegna fjölskyldustærðar ykist ekki frá því sem nú væri. Jóhanna sagði að nefnd sem nú vinnur að endurskoðun húsnæð- islánakerfisins myndi væntanlega skila áliti fyrir þingbyrjun í haust. -rk Viöeyjarhátíð á 202 ára afmælinu. Vigdís Finnbogadóttir forseti, Davíð Oddsson borgarstjóri og eigin- kona hans við athöfnina í eynni í gær þarsem framkvæmdum viö endurbyggingu Viðeyjarstofu og -kirkju lauk formlega og staðarhaldaranum nýja, Þóri Stephensen, voru afhentir lyklar. (Mynd: Ari). r Ee hef margoft lýst því yfir bæði a þingi og vio samráðherra mína að hækkun á útlánsvöxtum húsnæðislána er ekki til umræðu af minni hálfu nema í tengslum við endurskoðun húsnæðislána- kerfisins i heild, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, fél- agsmálaráðherra í samtali við Þjóðviljann í gær. Ein af þeim tillögum um hlið- arráðstafanir í efnahagsmálum sem forstjóranefndin hefur kom- ið sér saman um að sögn Morgun- blaðsins er að vextir húsnæðis- lána verði hækkaðir til samræmis við markaðsvexti. Jóhannes Nor- dal Seðlabankastjóri hefur einnig ámálgað nauðsyn á slíkri vaxta- hækkun. Verði húsnæðislánavextirnir hækkaðir um 5% til samræmis við markaðsvexti, þýddi það að vaxtabyrði af miljón króna láni r AS/ Ofyrirleitin hugmynd Miðstjórn ASÍmótmœlir. Greiðslubyrðin mundi tvöfaldast. Rökrétt- ara að lœkka aðra vexti Davíð Gunnarsson: Okkarfjárfesting ífólki. Ríkisspítalar óska eftir viðræðum við fjármálaráðuneytið Davíð Gunnarsson forstjóri rflrisspítalanna segir rekstrar- vanda þeirra felast í launamálum. Aætlanir um launakostnað stand- ist ekki meðal annars vegna þess að of margir séu i hlutastörfum og vinni mikla yfirvinnu. Davíð segir geðheilbrigðissviðið vera komið 15 til 16 mil|jónum fram úr áætl- un og það hefði verið mat stjórn- enda á því sviði að illskásti kost- urinn væri að loka deild 11 tíma- bundið. Davíð sagði í gær að ríkisspítal- arnir hefðu óskað eftir viðræðum við fjármálaráðuneytið um launamálin. Fyrirtæki eins og ríkisspítalarnir, þar sem 70% út- gjalda væru laun, gæti ekki gengið án þess að það hefði meiri áhrif á kjarasamninga. Ríkisspít- alarnir væru að slást um fólk á vinnumarkaði og bjóða því laun sem það vildi ekki vinna á. Þá væri samið um alls konar leiðir til að redda málum fyrir horn og launaáætlanir gengju ekki upp. Að sögn Davíðs átti geð- heilbrigðissviðið að koma halla- laust út á þessu ári þrátt fyrir það að unglinga- og barnageðdeild hefði verið stofnuð. Á miðju ári hefði hins vegar komið í ljós að eitthvað var að fara úrskeiðis og kostnaður fór framúr því sem áætlað var. Það hefði síðan verið mat þeirra sem fara með stjórn þessa sviðs að illskásti kosturinn væri að loka endurhæfingar- deildinni. Davíð sagði að allir vildu að reksturinn héldist innan fjárlaga. En þegar hann gerði það ekki þyrfti annaðhvort að lækka launin eða draga úr þjónustu. Spítalarnir hefðu oft þurft að .loka deildum. Nú væri til dæmis svo kölluð fimm daga deild lokuð um tíma. „Okkar fjárfesting er ekki í tækjum, hún er mest í fólki. Við þurfum gott fólk og vel menntað sem er ánægt með sín laun,“ sagði Davíð. -hmp ekki launin Verði útlánavextir húsnæðis- kerfisins færðir upp til sam- ræmis við markaðsvexti mun greiðslubyrði húsnæðislána meira en tvöfaldast frá því sem nú er. Þetta segir í ályktun miðstjórn- ar Alþýðusambandsins í gær þar- sem mótmælt er hugmyndum um að efnahagsvandinn verði að hluta leystur með því að auka byrðir húsnæðiskaupenda. „Slíkt heljarstökk í vöxtum væri ófyrirleitin atlaga að lífs- kjörum þess fólks sem berst við að koma þaki yfir höfuðið,“ segir í ályktuninni. Miðstjórnin hafnar því alfarið slíkum vaxtahækkunarhugmynd- um og bendir á að rökréttara væri að stjórnvöld gripu til ráðstafana til þess að færa markaðsvexti í 3,5% eins og húsnæðislánavext- irnir eru. -rk Ríkisspítalar Fólk vill NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.