Þjóðviljinn - 19.08.1988, Qupperneq 15
Palestínskur piltur sendir ísraelskum fjanda slnum kalda kveðju. Á innfelldu myndunum eru þeir Jassír Arafat, Saddam
Hussein og Yitzhak Shamir.
PLO á tímamótum
Fréttaskýrendur telja nær víst að leiðtogar Frelsissamtaka Palestínu-
manna séu reiðubúnir að veita ísrael viðurkenningu gegn því að
Palestínumenn fái sitt eigið ríki á Gaza og vestan Jórdanar
Spekingar í austri og
vestri gera því nú skóna aö
Jassír Arafat, leiðtogi
Frelsissamtaka Palestínu-
manna, hyggist friömælast
við ísraelsmenn og fallast á
„sögulega málamiölun" í
fertugri deilu Palestínuar-
aba og ísraelsgyðinga um
„landið helga“. Hann sé
reiðubúinn að viðurkenna
ísrael gegn því að Palest-
ínumenn fái að stofna sjálf-
stætt ríki á svæðunum
tveim, Gaza og vestur-
bakka Jórdanar, sem ísra-
elsmenn hafa hersetið í
rúma tvo áratugi.
„Vissulega tekur hann
mikla áhættu með þessu
en ég fæ ekki séð að hann
eigi annarra kosta völ,“
sagði vestrænn sérfræð-
ingur í málefnum Mið-
austurlanda nýlega í viðtali
við Reutersmann.
Tvennt gæti
hindraö hann
Tvennt er einkum taliö getað
orðið þessu ráðabruggi Arafats
fjötur um fót. Annarsvegar
ósætti og sundurlyndi í röðum
hans eigin manna, félaga PLO.
Hinsvegar óbilgirni og ósveigjan-
leiki ráðamanna í ísrael sem sæju
hag sínum best borgið með því að
halda áfram að mála skrattann á
vegginn hverju sinni sem einhver
ympraði á því að ganga til samn-
inga við PLO.
Fréttaskýrendur þykjast einnig
sjá fyrir hverjar yrðu afleiðingar
þess fyrir Arafat að flétta hans
færi út um þúfur; hinir heimul-
legu forystumenn uppreisnarinn-
ar á herteknu svæðunum myndu
verða fyrir vonbrigðum og
jafnvel snúa baki við foringja sín-
um.
Hinsvegar myndi vegur Frels-
issamtaka Palestínumanna auk-
ast til muna á alþjóðavettvangi ef
Arafat tækist að draga næstu rík-
isstjórn ísraels að samninga-
borði. Pá yrði t.a.m. ókleift fyrir
næsta forseta Bandaríkjanna að
sniðganga samtökin öllu lengur.
Maður er nefndur Róbert Neu-
mann, fyrrum sendiherra Banda-
ríkjanna í ýmsum löndum og ráð-
gjafi ríkisstjóma um utanríkis-
mál. Hann stendur á því fastar en
fótunum að næsti forseti lands
síns verði að bera víumar í PLO,
hvort heldur það verði Michael
Dukakis eða George Bush.
„Staðreyndin er náttúrlega sú,
hvort sem Bandaríkjamönnum
líkar betur eða verr, að PLO er
eini fulltrúi palestínsku þjóðar-
innar,“ sagði hann nýverið við
Reutersliða nokkurn.
Pað er alkunna að hingaðtil
hafa Bandaríkjaforsetar harð-
neitað að eiga nokkur mök við
PLO nema samtökin fallist fyrst á
tilvemrétt Ísraelsríkis.
Útlegöarstjórn
eða bráöabirgöa-
stjórn heima-
manna?
Fréttaskýrendur telja fullvíst
að hreyfing Palestínumanna,
frelsissamtökin og Þjóðarráðið,
hin útlæga „löggjafarsamkunda",
muni ríða á vaðið einhvemtíma á
næstu vikum með því að lýsa því
yfir að þau hyggist mynda út-
legðarstjóm fyrir herteknu svæð-
in ellegar bráðabirgðastjóm
heimamanna.
Háttsettur félagi Arafats
greindi Reutersmanni frá því í
Bagdað um helgina að æðsta
stjórn PLO myndi mæla með
fyrri kostinum á fundi Þjóðarr-
áðsins í Alsír. Ekki hafi verið af-
ráðið hvenær þingheimur fundi
enþað dragist vart lengi úr þessu.
Ófannefndir spámenn og spek-
ingar segja afar líklegt að Arafat
geri síðan umheiminum grein
fyrir stefnubreytingu samtaka
sinna í ræðu sem hann hyggst
halda á Evrópuþinginu í Strass-
borg þann 12. næsta mánaðar.
Það er mál manna að ráða-
menn í Bagdað, Saddam Hussein
og félagar, eigi sinn þátt í að
stuðla að framgangi nýrra við-
horfa í forystusveit PLO. Þeir
geti nú farið að láta til sín taka í
arabaheiminum á ný eftir að hafa
verið önnum kafnir við að lumbra
í írönum og láta þá lumbra á sér
um átta ára skeið.
Einn hinna sérfróðu en nafn-
lausu heimildamanna Reuters
hefur orðið: „Það er lýðum ljóst
að viðhorf hafa breyst og að and-
rúmsloft er nú allt annað en áður í
forystusveit PLO. Ég tel það ekki
nokkrum vafa undirorpið að
þetta séu áhrif frá ráðamönnum í
Bagadað en þeir hafa ætíð haldið
tryggð við Fatah samtökin."
Valdatafl íraka
og Sýrlendinga
Fatah er sem kunnugt er fé-
lagsskapur Arafats sjálfs, helstu
samtökin innan PLO samfylking-
arinnar. Sérfræðingurinn víkur
óbeint að því að Sýrlendingar,
bandamenn írana og trúbræður,
hafa tekið uppreisnarforingjann
Abu Musa uppá sína arma og att
sveitum hans gegn skæruliðum
Arafats í Líbanon. Markmið
Sýrlendinga með þessu er vita-
skuld að efla enn áhrif sín í Líban-
on.
Fyrir skemmstu lýsti Saddam
Hussein því yfir að Assad ætti að
kveðja hermenn sína heim frá
grannríkinu, hætta að vasast í því
sem honum kæmi ekki við. Þessi
orð hans benda til þess sem koma
skal í náinni framtíð: togstreitu
Sýrlendinga og íraka um forystu
fyrir Arababandalaginu en eitt
helsta einingartákn þess og áróð-
ursvopn er hinn margsvikni „mál-
staður palestínsku þjóðarinnar.“
Hugmyndin um að kaupa
landssvæði við friði er vitaskuld
jafngömul deilum Palestínu-
manna og ísraela og á sér ötula
formælendur í búðum beggja
þótt þeir hafi ekki mátt sín mikils
í röðum hinna síðamefndu und-
anfarin ár.
En nú virðist hinum varkám
hafa vaxið það ásmegin í PLO að
hinir herskáu, sem enn vilja að
ísraelar láti af hendi svæði innan
landamæranna einsog þau voru
dregin 1948, hafa sig lítt í frammi.
Menn þykjast hafa numið þá lær-
dóma af átta mánaða uppreisn
landa sinna á herteknu svæðun-
um, sem kostað hefur 255 palest-
ínsk mannslíf, uppreisn óvopn-
aðs fólks gegn hermönnum með
alvæpni, að ísraelsmenn verða
ekki sigraður á vígvelli. Miklu
sigurstranglegra sé fyrir Palest-
ínumenn að heyja áróðursstríð í
heimspressu og í alþjóðastofnun-
um ef þeir grípa ekki til vopna,
jafnvel ekki í vamarskyni.
-ks.
STÓ RKOSTLEG
VERÐLÆKKUN
Verð f rá
Garðsett, 4 stólar og borð 3.569,-
Garðstólar 650,-
Einnota grill 229,-
Royal Oak grillkol, 2.27 kg 112,-
Vatnsbrúsar m/krana 445,-
Kælibox 743,-
Skrúfjárn 40,-
Vaskaföt 20,-
^ SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR
KRÓKHÁLSI 7 SÍMI 8 20 33
ÞÆR GERAST
EKKIBETRI
Blomberq
hafa unnið sér traust fyrir
gæði og góðan þvott.
Getum nú boðið þessar úrvals þýsku
þvottavélar á verulega lækkuðu verði.
VM 1220
1200 snúninga
tölvustýrður mótor
E-sparnaðarkerfi
áfangavinding
5 mismunandi vatnshæðir
flæðiöryggi
Verð kr. 59.900.-
Verð kr. 56.905.- stgr.
VM 900
650/900 snúninga
E-sparnaðarkerfi
áfangavinding
5 mismunandi vatnshæðir
flæðiöryggi
ullar- og gardínukerfi
Verð kr. 54.900.-
Verð kr. 52.155.- stgr.
íslensk handbók fylgir vélunum.
Hagstæö greiöslukjör.
Einar Farestveit & Co .hf.
BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆOI
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15