Þjóðviljinn - 19.08.1988, Qupperneq 20
Joni MitcheU
D/íGURMÁL
ANDREA
JÓNSDÓniR
Alveg afbragð
Joni Mitchell sendi frá sér al-
veg afskaplega góða plötu fyrr á
þessu ári, sem nefnist Chalk
Mark in a Rain Storm. Hún hefur
þá sent frá sér 16 plötur, þar af
tvö tvöföld albúm og er annað
þeirra með hljómleikaupp-
tökum.
Fyrir þá sem fylgst hafa með
Joni Mitchell frá því að hún gaf út
sína fyrstu plötu árið 1967, eða þá
kynnst hæfileikum hennar heldur
síðar, eru það engar fréttir að hún
gefi út góða plötu - hins vegar ber
nú nýrra við þegar erlendir mús-
ikgagnrýnendur hlaupa upp til
handa og fóta til að dásama lista-
verkið. Betra er seint en aldrei og
ég vona bara að þetta tilhlaup
þeirra sé ekki til komið vegna
þess að Peter Gabriel syngur lag
með Joni á plötunni (My Secret
Place) og að platan var að nokkru
leyti tekin upp í hljóðveri hans í
Bretlandi... Pétur kom reyndar
ekkert nálægt þeirri hlið mála -
Joni Mitchell kvað fullfær á slík-
um stöðum.
Joni Mitchel) byrjaði að flytja
lög sín og ljóð í þjóðlagastílnum,
en söng reyndar aldrei þjóðlög
inn á plötur sínar - ekki fyrr en nú
að skemmtileg útgáfa af Corrina,
Corrina birtist á þessari nýju
plötu hennar. Strax á fyrstu
plötunni kom fram þessi kristal-
tæri fullkomleiki - ég leyfi mér að
nota þetta orð enda þótt mann-
skepnunni beri að vera svo lítillát
að hún geri sér grein fyrir að
fullkomleiki er ekki til nema í
orði og hún geti aidrei náð lengra
en að keppa að honum - en það er
einmitt svo áberandi í verkum
Joniar Mitchell, hvað hún leggur
sig fram og það eins langt og hún
getur til að ná þessu marki, þann-
ig að í mannlegum eyrum hljóm-
ar árangurinn sem fullkom-
leikinn sjálfur... en svo við mið-
um nú listræna hæfileika hennar
við mælikvarða sem yfirleitt er
lagður á konur og augsýnilegri en
þetta óljósa dæmi, þá er sagt að
Joni Mitchell sé fyrsta konan sem
hafi staðið bestu karlmönnum al-
gjörlega jafnfætis og vel það hvað
varðar laga- og textasmíðar,
hljóðfæraleik (leikur á gítar og
píanó) og flutning á verkum sín-
um. Og í tímans rás hefur hún
ósjaldan rutt brautina inn á óf-
arnar músikslóðir, og má þar til
dæmis nefna að hún blandaði
eigin músik djassi af afríkanskri
tónlist á plötum sínum löngu á
undan þeim Sting og Paul
Simon... sá fyrrnefndí hefur
reyndar sagt Joni Mitchell hafa
haft mikil áhrif á sína þróun.
Ef Joni Mitchell er borin sam-
an við samtíðarfólk sitt í rokk-
músiksögunni held ég að hún
verði að teljast sú endingarbesta
af sinni kynslóð - hún hefur
nefnilega alltaf eitthvað nýtt fram
að færa, bæði tæknilega og í list-
rænni hugmyndaauðgi... ég veit
að þetta eru stór orð og jafnvel
háfleyg, en öðruvísi verður ein-
faldlega ekki talað um jafn fág-
aða konu. Hlustið til dæmis á
lagið sem hún syngur með Peter
Gabriel... raddir þeirra blandast
með svo fínlegum hætti að eyrað
nemur vart þegar hvort tekur við
af öðru... talandi um meðreiðar-
söngvara er rétt að nefna líka
Eagles-manninn Don Henley
(Lakota og Snakes and Ladders),
gamalgróna kúrekasöngvarann
Willie Nelson (Cool Water) og
loks þá Tom Petty og Billy Idol
sem syngja með Joni í skondnu
lagi (Dancin’ Clown)... sérstak-
lega fer Billy á kostum, en ekki
segir hann þetta hafa verið
auðvelt hlutverk, þar sem hann
sé ekki vanur svo nákvæmum
vinnubrögum, t.d. hvað varðar
að telja inn í lagið þar sem söng-
varinn á að koma inn... og lög
Joniar Mitchell eru þar að auki
mörg heldur af flóknari gerð-
inni... Billy stakk svo upp á að
hafa gítarleikarann sinn, Steve
Jones, með í spilinu í þessu lagi,
hvað var gert.
Allt of langt mál yrði að fara
frekar út í hina ýmsu snilldar-
takta á Chalk Mark in a Rain
Storm - titillinn er annars bend-
Joni, maðurinn og kötturinn.
ing úr laginu The Beat of black
wings, sem Joni er búin að burð-
ast með í maganum í 20 ár...
óþægilegar minningar bundnar
við ungan hermann bandarískan
sem barðist í Víetnam - Peim sem
vilja nákvæmari frásögn af þessu
öllu saman vísa ég í maí-hefti
blaðsins Musician... já, heyriði.
ekki væri nú fallegt að gleyma því
að eiginmaður Joniar Mitchell,
Larry Klein, leikur á bassa á
plötunni og semur sumt og „pró-
dúserar" með henni, og það var
einmitt út á hann sem þau fengu
innhlaup í stúdíóið hjá Peter Ga-
briel, því að Larry spilaði með
honum á plötunni. So.
Dylan
Kannski ekkert merkileg, en...
Bob Dylan hlýtur ekki náð fyrir
eyrum gagnrýnenda þetta árið
fyrir nýju plötuna sína Down in
the Groove... mér finnst hún þó
bara nokkuð skemmtileg - kann-
ski fyrir það hvað hún er eitthvað
afslöppuð, eða réttar sagt andinn
yfir henni... hún er dálítið eins og
upp á gamla lagið, þegar menn
einfaldlega létu lögin deyja út
þegar þau voru komin upp í á-
kveðinn mínútufjölda, sem lík-
lega væri talinn mínútufæð nú á
tímum... þá er líka broslegt að sjá
þarna að Mark Knofler og Eric
Clapton hafa tekið sér ferð á
hendur til að spila með Bob
gamla hvor í sínu lagi og maður
hefur á tilfinningunni að heldur
sé skrúfað niður í þeim en hitt.
Þetta er sem sagt afskaplega
heimilisleg plata, bæði að gerð og
í notkun, einföld í sniðum og svo
sem alveg óþarfi að vera að pæla
sérstaklega í henni... nema hvað
þarna er mjög góð útsetning af
þjóðlaginu Shenandoah, og svo
má hafa gaman af eða hræðast
tvöfalda merkinguna í textanum
Death is not the end... þá finnst
mér alltaf skemmtilegt að hlusta
á fólk í því erfiða hlutverki að
syngja bakraddir með Bob Dylan
- líklega álíka erfitt og með Meg-
asi - hvað um það, þau eru alveg
indæl í bakraddabandinu Madel-
yn Quebeck, Clydie King, Bobby
King og Willie Green.
Bob Dylan.
Vandaðar og ódýrar
Veggskápasamstæður
frá Finnlandi
BÆSUÐ EIK - VERÐ KR. 64.500.-
Erlendar skemmti-
gestakomur
Eitthvert slangur af útlendum
skemmtikröftum er væntanlegt
til landsins á næstunni og þar-
næstunni, og er þar misjafn
sauður í fé. Ekki verður það talið
upp hér í mannvirðingaröð, held-
ur samkvæmt tímans rás.
Mirage nefnist diskó-tríó frá
Bretlandi og hefur sungið og
dansað inn á litlar plötur með
syrpum af þekktum diskó-
lögum... nokkurs konar Disco-
Stars on 45... þessi gjörningur
Mirage-fólksins hefur einu sinni
komið þeim í Topp 10 í Bret-
landi. Hér kemur Mirage fram í
Lækjartungli 18. til 21. ágúst.
Hans Blues & Boogie kallar sig
tæplega fimmtugur Þjóðverji,
sem nú er á sinni 5. hljómleika-
ferð um Evrópu á eigin blús-
rennireið, með hljóðmann í
farangrinum. Hann spilaði hér á
landi í fyrra, hélt sig reyndar þá
við Norðurlandið... Núna kemur
hann við í Reykjavík og syngur
og spilar gamlan blús og auk þess
frumsamda söngva. Hann verður
í Bíó-kjallaranum 21. til 23. ágúst
og byrjar öll kvöld kl. 22.
Maxi Priest, sem nú er hvað
vinsælastur hér sem víða annars
staðar fyrir að endurvekja lag Cat
Stevens, öðru nafni Högna Stef-
ánssonar, Wild World, mun
koma til íslands til söngs í
Breiðvangi 26. og 27. ágúst...
nefna má að hann endurvakti líka
Som guys have all the luck sem'
Rod litli Stewart söng fyrir ekki
svo mörgum árum.
Kiss, þeir litskrúðugu (þunga)-
rokkarar, spila í Reiðhöllinni 30.
ágúst... þess má geta að sætaferð-
ir verða á hljómleikana, og þá
ekki síður í bæinn aftur að þeim
loknum...
London Rhyme Syndicate
heitir tríó frá Lundúnum kennt
við hipp-hopp-músik... einhvers
konar blanda af rappi, sálartón-
list og fönki... þeir syngj a í Lækj -
artungli 15. til 24. sept... Ekki hef
ég tríó þetta eyram barið, en lesið
jákvæða umsögn um það í Melo-
dy Maker... (en mikið andskoti
er það annars orðið leiðinlegt
blað!)
Oklahoma, þ.e.a.s. úrval úr
þeim þekkta söngleik Rogers og
Hammersteins, verður á dagskrá
á Hótel íslandi helgarnar 16.-17.
’og 23.-24. september. Sýning
þessi er á vegum listamanna frá
Oklahoma og er eins og hálfs
klukkutíma löng... auk söng- og
dansatriðanna frá Oklahoma
verða matur og drykkir
heimfærðir upp á fylkið.
Pere Ubu, með söngvarann
víðfeðma David Thomas í fylk-
ingarbrjósti, syngur og leikur í
Lækjartungli 1. október... gestir
verða líklega að sjá um dansinn
sjálfir.
Kim Larsen kvað væntanlegur
í nóvember, og ef af verður spilar
hann og syngur á Hótel íslandi.
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN, - NÝTT HELGARBLAÐ