Þjóðviljinn - 19.08.1988, Side 29
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Enn eitt uppgjör
Kasparovs og Karpovs
Línur skýrast
á Skákþinginu
Línur eru þegar teknar að
skýrast í landsliðsflokki á Skák-
þingi íslands sem nú stendur yfir í
Hafnarfirði. Að loknum þrem
umferðum hafa þeir Margeir Pét-
ursson og Hannes Hlífar Stefáns-
son tekið forystuna, hafa hlotið 3
vinninga, en Jón L. Árnason
kemur í humátt á eftir með 2'/2
vinning. Margeir hefur unnið
Benedikt Jónasson, Ágúst Karls-
son og Þráinn Vigfússon en
Hannes Ágúst, Þráinn og Davíð
Ólafsson. Jón L. Árnason gerði
jafntefli í 3. umferð við Þröst Þór-
hallsson. Búast má við harðri
keppni þriggja efstu manna, en
þeir Þröstur Þórhallsson og Karl
Þorsteins ættu að geta blandað
sér í þá baráttu þótt Karl hafi tap-
að óvænt í þriðju umferð fyrir
Ágústi Karlssyni.
Töfluröðin á Skákþinginu er
þessi: 1. Jón L. Árnason 2. Jó-
hannes Ágústsson 3. Þröstur Þór-
hallsson 4. Hannes Hlífar Stef-
ánsson 5. Margeir Pétursson 6.
Karl Þorsteins 7. Ásgeir Þ. Árna-
son 8. Benedikt Jónasson 9. Ág-
úst Karlsson 10. Þráinn Vigfús-
son 11. Davíð Ólafsson 12. Ró-
bert Harðarson.
Margar af úrslitaskákum mót-
sins fara fram í fyrstu umferðun-
um. Þannig tefla þeir Margeir
Pétursson og Jón L. Árnason í 5.
umferð.
Skákþing
Sovétríkjanna
Keppnin á Skákþingi Sovétr-
íkjanna er nú orðin geysihörð og
spennandi þótt erfitt hafi reynst
að fá fréttir af mótinu. Eftir ró-
lega byrjun hafa Kasparov og
Karpov báðir sótt í sig veðrið og
er Kasparov að loknum 13 um-
ferðum einn í efsta sæti með 9
vinninga. Hann vann Judasin í
12. umferð og Smirnin í 13. um-
ferð eftir j afntefli í 11. umferð við
Alexander Beljavskí. Staða efstu
manna var þá þessi: 1. Kasparov
9 v. 2. Karpov 8 v. + biðskák 3.
Beljavskí7 v. + biðskák. 4. Salov
6V1 v. + 3 biðskákir.
Salov er enn með sæg biðskáka
og er enn sem fyrr huldumaður-
inn í þessu móti. Hann mátti þó
lúta í lægra haldi fyrir Judasin í
11. umferð. Karpov getur náð
Kasparov með því að sigra góð-
vin okkar íslendinga, Gurevic,
en biðstaðan er honum greinilega
Karpov - Gurevic
Það er greinilega heilmikið
eftir af þessari skák þó Karpov
eigi allgóða vinningsmöguleika.
Valeri Salov hlýtur að vera
lúinn eftir að hafa teflt hverja
maraþonskákina á fætur annarri.
Skák hans við Judasin úr 11. um-
ferð fylgir hér:
Skákþing Sovétríkjanna
1988, Moskva
11. umferð:
Judasin - Salov
Sikileyjarvörn
(Hvítur hefur náð rýmri stöðu
út úr byrjuninni svo Salov bregst
hart við. „Peðsfómin“ 15. Dxb5
byggir úr hugmyndinni 15. ...
Rxg4! 16. Rxg6Dh2+ ogmátar).
15. Rg2-c4
16. f4-Bc5+
17. Khl-Hae8
(Hindrar 18. .. f5 vegna lepp-
unarinnar eftir e-línunni)
18. Rf3-Rd7 24. gxf5-e4
19. Rgh4-f6 25. Rg5-Rf6
20. Rxg6-hxg6 26. Dg2-Hd8
21. e5-fxe5 27. Re6-Hxe6
22. Bxg6-He7 29. fxe6-Hd3
23. f5-exf5 29. Hfl-Hg3
30. Bf4!-Hxg2
31. Bf7+!-Kf8
32. Bxc7-Hxb2
33. Hf5-Ba3
34. Hgl-Re7
35. Hxf6!
(Glæsilegur leikur sem byggir á
hugmyndinni 35. .. gxfó 36. Bf4
Rf5 37. Hg8+ Ke7 38. He8 mát.)
35. .. Rd5
36. Hf4-Rxc7
37. Bg6+-Ke7
1. e4-c5
2. Rf3-d6
3. c3-Rf6
4. Bd3-Rc6
5. Bc2-Bg4
6. 0-0-e6
7. h3-Bh5
8. d3-Be7
9. Rbd2-d5
10. Hel-0-0
11. De2-Dc7
12. g4-Bg6
13. Rh4-dxe4
14. dxe4-b5
38. Hf7+-Kd6
39. Hd7+-Kc6
40. Bxe4+-Kb6
41. e7
- og Salov gast upp í fyrsta skipti á
mótinu.
FJÖLMIÐLAR
Er þetta hægt,
Stundum kemur það fyrir að
maður fyrirverður sig fyrir að til-
heyra íslenskri blaðamannastétt.
Hafandi verið í þessu samfélags-
mengi um fimmtán ára skeið hélt
ég að ég væri kominn með nógu
þykkan skráp til að þola flest það
sem upp á kynni að koma í ís-
lenskum blöðum. En það má
alltaf koma manni á óvart.
Á DV starfar íþróttafrétta-
maður að nafni Stefán Kristjáns-
son og hefur gert um nokkurra
ára skeið. Framan af ferli sínum
gat hann sér einkum orð fyrir æsi-
fréttamennsku og tókst ótrúlega
oft og víða að koma illindum til
leiðar í íþróttahreyfingunni.
Hann hefur þó stillst með árun-
um, sem betur fer fyrir blaðið og
hann, að ekki sé minnst á okkur
lesendur.
En sumir íþróttafréttaritarar
eru þannig gerðir að það er eins
og heimssýn þeirra takmarkist
ekki bara við flatarmál eins
knattspyrnuvallar heldur bún-
ingsklefaíþróttamanna, af
karlkyni vel að merkja. Ég hef að
vísu afar takmarkaða reynslu af
slíkum stöðum en samkvæmt
þeim heimildum sem mér eru
handbærar mun ríkja þar töff
mórall, menn eru ýmist hetjur
eða bleyður og konur ekki hátt
skrifaðar. Sjálfsagt er þetta þó
mismunandi.
Hins vegar má ætla að Stefán
Kristjánsson hafi mótast í svona
andrúmslofti. Hann skrifaði
íþróttapistil í blað sitt um síðustu
helgi. Þar fj allar hann um sam-
keppni sjónvarpsstöðvanna á
sviði fþróttafrétta og kemst að
þeirri niðurstöðu að þar halli
mjög á Ríkissjónvarpið. Það hafi
komið mjög á óvart að Ingólfur
Hannesson skuli hafa verið ráð-
inn yfirmaður nýstofnaðrar
íþróttadeildar RÚV og Bjarna
Felixsyni þar með vikið til hliðar.
Ég kem nánar að þessu á eftir en í
endann á þessum hluta pistilsins
klykkir Stefán út með svofelldri
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
Jónas?
klausu:
„Og það held ég að sé búið að
sanna í eitt skipti fyrir öll, að
kvenfólk getur ekki séð um
íþróttaþætti í sjónvarpi. Þær tvær
konur sem það hafa reynt, hjá
Sjónvarpinu og Stöð 2, hafa ekki
verið starfi sínu vaxnar. “
Þetta segir maðurinn á því
herrans ári 1988. Rétt eftir að
mikilli ráðstefnu norrænna
kvenna lauk í Noregi. Og eftir að
Sigrún Stefánsdóttir hefur birt
niðurstöður rannsókna sinna á
hlut kvenna í íslenskum fjölmiðl-
um. Er þetta hægt, Jónas?
Það er meira blóð í kúnni. Eftir
að hafa kveðið upp þennan úr-
skurð sinn um takmarkanir
kvenkyns sjónvarpsmanna snýr
Stefán sér að öðru máli sem er
fjársöfnun til handa fötluðu
íþróttafólki sem vantar íþrótta-
hús.
Sú umfjöllun er sannarlega
þörf og tímabær þótt orðalagið sé
sums staðar eins og það er („Þrátt
Hart barist við
ísafjarðardjúp
Eftir þrjár umferðir á alþjóð-
lega skákmótinu við ísafjarðar-
djúp er undirritaður í efsa sæti
með 2Vi vinning en á eftir kma
Lars Schandorff, Glenn Flear og
Orest Popovich með 2 vinninga.
Eftir á að dæma í óvenjulega
máli. Þeir Rantanen, Finnlandi
og Johanson eiga eina skák sem
farið hefur í dóm en þar kom upp
sú undarlega staða að báðir féllu
á tíma og var ekki nokkur leið að
úrskurða hvor fékk á undan en
fjöldi vitna var að atvikinu. Er
því búist við að skákin verði
dæmd jafntefli.
Þetta er fyrsta alþjóðlega.
mótið sem Vestfirðingar standa
fyrir en það gera þeir í samvinnu
við Tímaritið Skák. Mótstjóri er
Högni Torfason. Fulltrúar
Vestfirðinga eru þeir Guðmund-
ur Gíslason, Ægir Páll Friðberts-
son, Magnús Pálmi Örnólfsson,
Guðmundur Halldórsson og
Helgi Ólafsson frá Hólmavík.
Þeir fjórir sem fyrst voru taldir
upp hafa allir getið sér gott orð á
skáksviðinu og mynda kjarnann í
hinu harðsnúna 1. deildarliði
Vestfirðinga. Nafni minn frá
Hólmavík hefur ekki teflt svo
heitið geti í nær 25 ár er hann
sigraði með eftirminnilegum
hætti á Skákþingi íslands 1964.
Hann kann ýmislegt fyrir sér í
skákinni og er endataflið úr 2.
umferð við Guðmund Gíslason
gott dæmi um það.
8 Iff
7 m- ¥*■ -m s
6 i
5 m b * a
4 a. Xh *
3 jjp 9 19
2 .
1 ® ^ §!
ab cdefgh
Helgi - Guðmundur
Þetta hróksendatafl virðist
enda í jafntefli. T.d. e5-Hxc5 48.
e6- Hcl 49. Hh8+-Kg7 50. He8-
Hgl+ 51. Kf4-Hf 1 + 52. Ke4-
Hel+ 53. Kd3-Kf6 54. Hf8-Ke5
og hvítur kemst ekkert áleiðis.
En Helgi lumaði á óvæntum leik.
47. f6!-exf6
48. Kf5!-Kg8
(Það grátlega við stöðu svarts
er sú staðreynd að c6-peðið er
eiginlega fyrir. Að því slepptu
væri staðan ekkert annað en jafn-
tefli.)
49. Hc7-Hxc5+
50. Kxf6-Hcl
51. e5-Hfl+
52. Ke6-Hcl
53. Kd7-c5
54. e6-Hdl+
55. Ke8-Hcl
56. e7
- og Guðmundur gafst upp.
PS.
Fyrir síðustu umferðina á
Skákþingi Sovétríkjanna eru
þeir fjandvinir í skákinni,
Karpov og Kasparov, efstir og
jafnir með 11 vinninga. Jusup-
ov er svo í 3. sæti með 9Vi vinn-
ing.
/ífjþessafólks?!?
fyrir að úrgangurinn sé þegar
kominn í buxumar er enn hægt að
taka sig saman í andlitinu...“).
En það er mín trú að fatlaðir séu
ekki eins hrifnir af lokaorðum
Stefáns þar sem hann segir að
íþróttahús sé sjálfsagður hlutur í
„annars tilbreytingarlausu lífi
þessa fólks.“ Ja, margt veit Stef-
án um hagi mannfólksins, ég segi
nú ekkiannað.
En svo var það þetta með 111.
meðferð á Bjarna Fel. Þar étur
nú hver úr annars skál og harmar
það hvernig vegið sé að þessum
sómamanni með því að ráða ein-
hverja stráklinga sem yfirmenn
hans. Égveitekki hvernigBjarni
hugsar sj álfur enmérhefurnú
stundum heyrst á honum að hann
sé orðinn dálítið lúinn eftir
margra ára streð í einsemd sinni á
deildinni. Væntanlega getur
hann nú í kjölfar breytinganna
snúið sér að því að skipuleggj a
íþróttaumfjöllunina. Þar mun
hann eflaust njóta þeirra sam-
banda sem hann hefur aflað sér á
undanförnum árum, td. meðal
erlendra kollega og sjónvarps-
stöðva.
Ég held að það sé allt í lagi að
leyfa Bjarna að hvfla sig dálítið á
því að lýsa íþróttaleikjum. Mér
hefur aldrei fundist hann sérlega
góður og þótt frasarnir hans séu
vissulega skemmtilegir á köflum
geta þeir orðið ansi þreytandi.
Það ernæsta víst.
Mér finnst líka tímabært að
hleypa nýjum mönnum í beinu
útsendingarnar. Þarhafaýmsir
sýnt lit, ekki síst Jón Óskar Sóln-
es sem átti marga góða leiki í Evr-
ópukeppni landsliða í vor.
NÝTT HELGARBLAÐ - IÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 29