Þjóðviljinn - 19.08.1988, Blaðsíða 32

Þjóðviljinn - 19.08.1988, Blaðsíða 32
Hálft tonn Jijá Steingrími Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra hefur ekki slegið slöku við í laxveiðinni í sumar frekar en fyrri sumur. Laxveiði er dýrt tómstunda- gaman, en það er hægt að leyfa sér ýmsan munað þegar menn eru á ráðherralaunum og ekki síst þegar fyrirtæki eins og Aðalverktakar og Stöð 2 bjóðast til að borga lax- veiðileyfin fyrir mann. Hvað um það, Steingrímur er hæstánægður með vertíð- ina í sumar og tilkynnti í vina- hópi á dögunum að hann væri búinn að ná um 70 löxum á land í sumar. Ef miðað er við að meðalþyngdin hjá ráðherr- anum sé um 14 pund hver lax þá gerir heildaraflinn um hálft tonn. Það fer að verða spurn- ing hvort ekki þurfi að setja kvóta á Steingrím.B Umhverfis- verndar- sinnaður álforstjóri Svo sem kunnugt er af frétt- um mun hinn nýi forstjóri Ál- versins, Christian Roth að nafni vera mjög hlynntur um- hverfisvernd. Segir sagan að andrúmsloftið í Álverinu hafi batnað mjög eftir að hann tók við af Ragnari Halldórssyni, sem sparkað var upp á við í stjórnarformannsstöðuna. Hafi nýi forstjórinn lagt sig í líma við að vera vingjarlegur við starfsmenn álversins og orðið allvel til vina. Hins vegar mun hafa kólnað mjög milli núverandi forstjóra og þess fyrrverandi, þegar Ragnar fór þess á leit við Roth að fá að hafa skrifstofu áfram í skrif- stofuálmu álversins, í krafti embættis síns sem stjórnar- formaður. Sást til þeirra fé- laga þar sem þeir áttu langt tal sín á milli, en niðurstaðan varð sú að Ragnari var neitað um skrifstofupláss. Við það mun Ragnari hafa brugðið mjög, snúist á hæli og haldið út úr byggingunni. Á bílastæð- inu þreif hann síðan upp skilti við bílastæði sitt, sem merkti það sem einkastæði og þeytti því í skottið á bílnum og hefur Ragnar ekki sést síðan á svæðinu. Það fylgdi sögunni að nánir samstarfsmenn Ragnars á skrifstofum Álfé- lagsins og þeir sem hafi kom- ist í náðina hjá honum gegn- um árin, sitji nú og skjálfi þar sem augljóslega geti allra veðra verið von, þar sem nýi forstjórinn umhverfissinnaði fer...B ______________________ Sambandið gengur fyrir Utgerðarmenn um allt land eru ævareiðir vegna þeirrar ákvörðunar utanríkisráðherra að takmarka útflutning á ís- fiski til Bretlands með úthlutun sérstakra leyfa. Reiðin beinist ekki aðeins að takmörkuninni sjálfri, held- ur fyrst og fremst að þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru við úthlutun leyfanna. Svokölluð kvótanefnd sér um úthlutun fyrir hverja viku í senn og sækja langtum fleiri um en fá hverju sinni. Ákveðnar reglur eiga að gilda þar sem þeir hafa forgang er fluttu út á sama tíma í fyrra. Útgerðarmenn segja þess- ar reglur þverbrotnar og ekki sé einleikið hvað fyrirtæki Sambandsins fái sérstaka þjónustu hjá nefndinni og ráð- herra. Þannig fékk togari Djúpavogsbúa, Sunnutindur, að selja á dögunum en hann átti ekki forgangsrétt sam- kvæmt reglunum. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga á Höfn í Hornafirði tók yfir rekstur út- gerðar Sunnutinds fyrr á ár- inu.B Sópað undan grjótinu Það fór ekki framhjá lands- mönnum um síðustu helgi þegar borgarstarfsmenn kepptust við að rífa upp port- úgalska grjótið sem Davíð borgarstjóri lét setja niður á Laugaveginum í fyrrasumar. Tugmiljónir fóru í vaskinn vegna „mistaka" og síðan var malbikað yfir allt saman. Ástæðan fyrir „mistökunum" eða öllu heldur „mistökin" sjálf eru sögð þau að gatna- málayfirvöld borgarinnar létu öll sín sóparatæki hamast á nýlagðri steinalögninni nótt- ina áður en Davíð fékk að klippa á borðann og vígja nýja götukaflann sem átti að friða kaupmenn á Laugaveginum sem voru komnir með Kringlukast. Ekki tókst betur til í sópinu en svo að fúgan á milli steinanna hvarf að stórum hluta og losnaði fljótt um steinana. Yfirvöld vita upp á sig skömmina og töldu von- laust að ætla að fara í mál við verktakann vegna skemmd- anna í götunni.B TILKYNNING UM ÚTBOD Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs 2. flokkur D 1988 1.500.000.000,- kr. Stimpilfrjáls Lánstími Gjalddagi Vextir á ári Fjárhæð 3 ár 01.09.91 8,0% 455.000.000,- kr. 3 ár 01.09.93 7,5% 707.000.000,- kr. 8 ár 01.09 96 7,0% 338.000.000,- kr Útgáfudagur: 17. ágúst 1988 Söluaðilar: Landsbanki íslands Búnaðarbanki íslands Sparisjóðirnir Iðnaðarbanki íslands hf. Útvegsbanki íslands hf. Samvinnubanki íslands hf. Verzlunarbanki íslands hf. Fjárfestingarfélag íslands hf. Kaupþing hf. Verðbréfamarkaður Iðnaðarbankans hf. Alþýðubankinn hf. t O O Spariskírteinin verða skráð á Verðbréfaþingi íslands. Seðlabanki íslands verður viðskiptavaki.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.