Þjóðviljinn - 20.08.1988, Page 1
Laugaidagur 20. ágúst 186. tölublað 53. árgangur
Tékkóslóvakía
Tuttugu ár
fíá innrás
*
I dag eru 20 ár liðin frá þvíRauði herinn tróð
vorið í Prag undir járnhœlnum
Nákvæmlega fyrir tuttugu
árum sýndu sovéskir stjórnar-
herrar nágrönnum sínum í Tékk-
óslóvakíu það vinarþel sem seint
mun gleymast. Tilburðir tékkn-
esku þjóðarinnar til að siíta af sér
helsi Stalínismans og koma á fót
sósíalísku lýðræði, sem gjarnan
er kennt við vorið í Prag, voru
brotin á bak aftur með hervaldi.
í Þjóðviljanum í dag eru þessir
atburðir rifjaðir upp, birt er grein
eftir tékkneska útlagann Lynar
um áhrif perestrojkunnar á
austantj aldslöndin.
Einnig er rætt við fimm íslend-
inga - á ýmsum aldri um það
hvernig þeir brugðust við er þeir
fréttu af innrás Rauða hersins.
Þeir sem talað er við eru Einar
Kárason, Hjörleifur Guttorms-
son, Magnús Torfi Ólafsson,
Svanfríður Jónasdóttir og Vil-
borg Harðardóttir.
Sjá síður 7-10
og leiðara
í sól og sumaryl. Haffi, Vigga og Sirrý bergja á mjólkurhriisting i veðurblíðunni á Lækjartorgi í gær. Á
Torginu var margt um manninn enda lítt sést til sólar undanfarið og því full ástæða tii þess að láta sálartetrið
njóta veðurblíðunnar. Mynd Ari.
Grái markaðurinn
Opinbera heilbrigðisskoðun
Bankaeftirlitinu verðifalið að hafagœturmeðfjárreiðumfjárfesting-
arfyrirtœkja og verðbréfasjóða
Forsvarsmenn fjárfestingarfyr-
irtækja og verðbréfasjóða vísa
orðum Ólafs Ragnars Gríms-
sonar algerlega á bug að eitt ef
ekki fleiri fyrirtækja sem fiska á
gráa fjármagnsmarkaðnum
kunni að komast í þrot á næstu
vikum eða mánuðum.
Ólafur segist óttast keðjuverk-
andi hrun þessara fyrirtækja,
með ófyrirséðum afleiðingum
fyrir allan þann fjölda sparifjár-
eigenda sem hefur treyst þessum
fyrirtækjum fyrir ávöxtun spari-
fjár síns.
Ólafur segir að það sé skýlaus
krafa af hálfu Alþýðubandalags-
ins að fram fari opinber
heilbrigðisskoðun á fjárhags-
stöðu fyrirtækja á gráa markaðn-
um og þeim verði gert að starfa
eftir ströngum lögum eins og
bankastofnunum. Jafnframt
segir hann það eðlilegt að Banka-
eftirlitinu verði falið að hafa gæt-
ur á fjárreiðum þeirra eins og
gildi um bankana.
Hann segir að samkvæmt upp-
lýsingum endurskoðenda og ann-
arra sem þekki til á fjármagns-
markaðnum, sé veruleg hætta á
hruni. Sum fjárfestingarfyrir-
tækin hafi fjárfest í stórum stíl í
fyrirtækjum sem orðin séu
greiðsluþrota eða við það að
verða það.
Sjá síðu 3
Húsnœðislánin
Vaxtahækkun þegar ráðin
Formenn stjórnarflokkanna einhuga um hœkkun húsnœðislánavaxta úr3,5% Í7%. Ari Skúlason, ASÍ: Vaxtahœkkun
húsnœðislána vœri glórulaus. Aukinni greiðslubyrði aldrei mœtt í gegnum skattakerfið
Formenn ríkisstjórnarflokk-
anna hafa þegar komið sér saman
um hækkun húsnæðislánavaxta
með útgáfu bráðabirgðalaga.
Samkvæmt staðfestum heimild-
um Þjóðviljans felst í samkomu-
lagi formannanna að raunvextir
lána til húsnæðiskaupa og bygg-
inga hækki úr 3,5% í 7%, en enn
á eftir að útfæra hvernig aukinni
greiðslubyrði lántakenda verði
mætt með hliðaraðgerðum.
Ari Skúlason, hagfræðingur
Alþýðusambandsins, sagði í sam-
tali við Þjóðviljann í gær að væri
þessi raunin, þýddi það í reynd
aukna greiðslubyrði fyrir þá sem
væru komnir uppá náð og miskun
húsnæðislánakerfisins.
- Slík vaxtahækkun væri gjör-
samlega glórulaus. Það er yfírlýst
stefna ríkisstjórnarinnar að vext-
ir eigi að lækka. En ef leiðin til
vaxtalækkunar er fólgin í því að
hækka vexti á útlánum húsnæð-
iskerfisins er betur heima setið en
af stað farið, sagði Ari.
Ari sagðist ekki hafa trú á íviln-
anir í gegnum skattakerfíð til þess
að mæta aukinni greiðslubyrði í
kjölfar vaxtahækkunar, en Jó-
hanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, telur slíkt koma til
álita.
- Uppbætur fyrir aukna vaxta-
byrði í gegnum skattakerfið
koma aldrei til framkvæmda fyrr
en eftir mitt næsta ár og fólk fengi
aldrei lausnarmeðulin fyrr en í
ágúst. Ég get ómögulega séð
hvernig ríkisstjórnin ætlar að fara
að því að finna út hverjir það eru
sem helst er þurfi fyrir slíkar
skattaívilnanir, ekki síður en hér
um árið þegar láglaunabótunum
var útdeilt, sagði Ari.
Ari sagðist ómögulega geta séð
hvemig núgildandi raunvextir á
húsnæðislánum kæmu rekstrar-
vanda útflutningsatvinnuveg-
anna við, eins og forstjóranefnd-
in sk. teldi sig vita. - Þeirri spurn-
ingu er því gjörsamlega ósvarað
hvað vaxtahækkun á húsnæðisl-
ánum eigi að leysa, sagði Ari.
Sjá síðu 5