Þjóðviljinn - 24.08.1988, Side 9
MENNING
Efnahagsástandið, eftir Kristínu, „mér varð hugsað til íslands og...“
ákveðið nafn. Petta er einmitt
eitt þeirra.
- Þetta verk sem ég er með
mynd af heitir Efnahagsástandið,
segir Kristín. - Ég fór að fást við
að mála fiska þegar ég var á
ferðalagi í Mexico í janúar síð-
astliðnum. Þá kom ég meðal ann-
ars í lítið fiskiþorp þar sem lífið
var ákaflega einfalt, eiginlega
eins og beint út úr Sölku Völku
þar sem lífið er saltfiskur, allt
snýst um fiskinn. Mér varð hugs-
að til íslands, og þar við bættist
að þeir íslendingar sem maður
hitti töluðu helst ekki um annað
en efnahagsmálin.
Myndverkur
Hvernig hefur þér gengið að
starfa sem listamaður á þessum
tveimur árum eftir að þú laukst
námi?
- Þegar ég var búin í skólanum
var ég mjög spennt að reyna að
stjórna sjálf minni vinnu, og sjá
hvort mér yrði eitthvað úr verki. í
skóla er alltaf visst aðhald sem er
hvati við vinnuna, það er fylgst
með manni, maður fær gagnrýni
á það sem maður vinnur að, og
þar er alltaf einhver umræða í
gangi.
- Mín reynsla af þessum
tveimur árum hefur verið mjög
jákvæð, ég hef getað unnið úr
mínum hugmyndum á persónu-
legri hátt en ég hefði annars gert,
en hinsvegar sakna ég umræð-
unnar, og finnst mig stundum
vanta viðbrögð annarra við því
sem ég er að gera. Mér finnst ég
hafa grætt mikið á þessu, og er
fegin að ég fór ekki beint yfir í
annan skóla, þó að núna geti ég
vel hugsað mér að fara í fram-
haldsnám í eitt til tvö ár.
- Heyrðu, ég er búinn að skíra
verkið, segir Jóhannes. - Það
heitir Myndverkur. Eins og ég
minntist á áðan er þetta eitt af
þeim verkum þar sem útkoman
er allt önnur en upphaflega hug-
myndin, og samfara þeirri þróun
komu upp ýmsar hugmyndir sem
ollu vandræðum með nafngiftina.
Hún varð eiginlega hálfgerður
verkur hjá mér þessi nafngift, og
þess vegna er réttast að þetta
heiti Myndverkur. Annars er
þetta verk sem hefur ákveðna
höfðun til verkamannavinnu.
Þú átt við vegavinnu?
- Nei, almennrar
verkamannavinnu. Annars finnst
mér ekki vera mitt verk að
ákvarða hvað fólk á að upplifa
þegar það horfir á verkin. Ég
held að það verði sjálft að ákveða
hvaða áhrifum það verður fyrir
við skoðun myndverka.
Aldrei fullnuma
Einhver framtíðaráform?
- Ég klára skólann í vor, og þá
kemur að því að fara að vinna
„sjálfstætt" ef svo má að orði
komast. Svo er ég með þessa hug-
mynd í kollinum um áframhald-
andi nám við skóla, en í sjálfu sér
held ég ekki að fólk verði nokk-
urn tíma fullnuma. Það er þannig
endalaust nám sem maður á fyrir
höndum.
- En ég ætla að minnsta kosti
að reyna að vinna eins mikið og
ég mögulega get að minni list í að
minnsta kosti tvö ár að loknu
námi, og þá verður kannski kom-
inn tími til að ákveða hvort ég fer
út í framhaldsnám, eða held
áfram á mínu eigin róli.
- Mér hefur tekist að sanna
fyrir mér að ég hætti ekki að mála
án aðhalds skólans, segir Kristín,
- svo ég held áfram. Núna í haust
flyt ég til Hvanneyrar í Borgar-
firði þar sem ég verð með vinnu-
aðstöðu og ætla að reyna að vinna
sem mest. Ég hef trú á því að þar
sé meira næði til að vinna en í
stórborg, og verður örugglega
mjög ólíkt þeim aðstæðum sem
ég hef unnið við hingað til.
- f janúar fer ég svo aftur til
San Francisco og verð þar að
minnsta kosti fram á vor, jafnvel
lengur. Það fer allt eftir því hvort
ég fer í framhaldsnám eða ekki,
það er allt óráðið ennþá.
Sérstaklega veðrið...
Er einhver sérstök ástæða fyrir
sýningunni, önnur en sú að sýna
fólki það sem þið hafíð verið að
gera og fá viðbrögð þess við því?
Eru þetta kaflaskil á einhvern
hátt?
- í raun og veru ekki, segir
Kristín. - En sýning er í sjálfu sér
viss kaflaskil, það er allt önnur
tilfinning að sjá verkunt sínum
stillt upp á sýningu, en að sjá þau
þegar maður hefur verið á kafi í
þeim á hverri stund sem gefst.
Hlutirnir taka sig allt öðruvísi út
þegar þeim hefur verið stillt upp
og maður stendur sjálfur utan við
þau og horfir á þau.
Hvernig er að vera allt í einu
kominn aftur til íslands eftir dvöl-
ina í San Francisco?
- Maður sér hlutina allt öðrum
augum en áður. Finnst vera svo
margt sem gæti verið miklu betra,
sérstaklega veðrið. En okkur
finnst íslendingar standa sig mjög
vel í sambandi við listir, bæði
listamenn og almenningur, hér er
mikill og almennur áhugi á list-
um, mun meiri en erlendis.
Sýning Kristínar og Jóhannes-
ar verður Undir pilsfaldinum
dagana 27. ágúst til 7. september.
Að opnunardeginum undantekn-
um verður hún opin daglega á
milli kl. 15:00 og 21:00. LG
Kór Langholtskirkju
Vetrarstarfiö kynnt
Messa í e-moll eftir Bruckner og Kantata Gunnars Reynis Sveinssonar
fluttar í vetur
Félagar Kórs Langholtskirkju
kynntu fyrirhugað vetrarstarf sitt
á dögunum, en áætlað er að það
hefjist af fullum krafti í byrjun
september. Á dagskránni eru
þrennir stórir tónleikar auk tón-
íeikaferðar um Norðurland, og fá
kórfélagar þá vonandi uppfyllta
langþráða ósk sína um að komast
í Grímsey.
Fyrsta verkefni vetrarins verða
tónleikar kenndir við austurríska
tónskáldið Anton Bruckner
(1824-1896). Hugmyndin að tón-
leikunum varð til fyrir rúmi ári
þegar Jóni Stefánssyni kórstjóra
var gefinn tónsproti sem Bruc-
kner átti og notaði þegar hann
starfaði við St. Florian klaustrið.
Fyrirhugað er að tónleikarnir
verði um miðjan nóvember, en á
efnisskránni verða flestar mótett-
ur Bruckners auk e-moll messu
hans, fyrir kór og fimmtán blás-
ara, og verður það í fyrsta skipti
sem messa eftir Bruckner er flutt
hér á landi. Tónleikunum ætlar
Jón að stjórna með sprotanum
góða, eftir því sem kraftar leyfa,
en hér mun vera á ferðinni gripur
í þungaviktarflokki.
Árlegir jólatónleikar kórsins
verða haldnir þann 16. desemb-
er, og verða þá fluttir jólasöngvar
og tónverk tengd jólum og að-
ventu.
Eftir jól verður tekið til við
æfingar á Kantötu Gunnars
Reynis Sveinssonar, Á jörð ertu
kominn, en sem kunnugt er féll
flutningur hennar á Listahátíð
1988 niður vegna veikinda tón-
skáldsins. Kantatan er samin við
texta Birgis Sigurðssonar, og
verður flutt af kór, einsöngvur-
um, blásarakvintett og jasssveit.
Kórinn hefur farið í utanlands-
ferðir á þriggja til fjögurra ára
fresti undanfarin ár, og er nú í
gangi undirbúningur fyrir ferð
hans tilBretlandseyjavorið 1990.
Félagslíf kórsöngvara er með
miklum blóma sem endranær,
svo sem ýmis fjáröflunarstarf-
semi, en kórstarfið er langt frá
þ í að vera kostnaðarlaust. Sem
dæmi má nefna að nóturnar fyrir
söngvara í e-moll messunni kosta
um 20.000 krónur.
Raddþjálfari kórsins er Ólöf
Kolbrún Harðardóttir. Nú stend-
ur yfir skráning nýrra kórfélaga,
en hægt er að bæta við nokkrum í
allar raddir, og er fólk beðið að
sækja um fyrir 1. september í
síma 84513, eða 71089. LG
Hafnargallerí
Guðbjörg og
Inga Þórey
sýna
Á morgun lýkur samsýningu
Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur og
Guðbjargar Hjartardóttur í
Hafnargalleríi í Reykjavík. Báð-
ar hafa þær lokið námi úr Nýlista-
deild M.H.Í.
Guðbjörg stundar nú nám við
Slade School of fine arts í London
en Inga heldur út til frekara náms
í Vínarborg n.k. haust. Til sýnis
eru olíumálverk unnin síð-
astliðinn vetur.
Hafnargallerí er til húsa á ann-
arri hæð bókaverslunar Snæ-
bjarnar í Hafnarstræti og er
gengið inn um aðaldyr verslunar-
innar. Opið er á verslunartíma.
Þýðingar
Langafi
drullumallar
gefin út
í Tókíó
Nýlega kom út í Tókíó bókin
Langafi drullumallar, eftir Sig-
rúnu Eldjárn, og er textinn bæði
á japönsku og esperantó.
Ragnar Baldursson þýddi bók-
ina á esperantó, en Ohyama Sari
yfir á japönsku.
Túnglið
Myndir
fyrir
nornir
og böðla
Hjá bókafélaginu Túnglinu er
komin út bókin Myndir fyrir
nornir og böðla, eftir þá Jón Égil
Bergþórsson og Sveinbjörn
Gröndal. Teikningar í bókinni
eru eftir Helgu Óskarsdóttur.
Þeir Sveinbjörn og Jón Egill,
sem eru 28 ára gamlir Reykvík-
ingar, skrifuðu bókina í samein-
ingu fyrir um fimm árum; ýmsar
þolraunir og þróunarstig hand-
ritsins hafa tafið útgáfuna hingað
til.
Ný Ijóðabók
m u
Orugglega ég
Út er komin Ijóðabókin Ör-
ugglega ég, eftir Ónnu Svanhildi
Björnsdóttur. í bókinni eru 24
ljóð ásamt litprentuðum vatns-
litamyndum eftir Blöku Jóns-
dóttur. Benedikt Gunnarsson
gerði kápumynd.
Ljóð eftir Önnu hafa áður birst
í Lesbók Morgunblaðsins. Bókin
er útgefin af höfundi og prentuð í
prentsmiðjunni Odda í 500 tölu-
settum eintökum.
Bókin mun fyrst um sinn fást
hjá höfundi og í Bókaverslun
Lárusar Blöndal.
Anna Svanhildur
Míðvikudagur 24. ágúst 1988 ÞJÓÐVI'
6IÐA 9