Þjóðviljinn - 24.08.1988, Blaðsíða 11
IÞROTTIR
Ísland-Spánn ........21-23(6-12)
Mörk fslands: Alfreð Gíslason 7/6, Þorgils
Óttar Mathiesen 4, Kristján Arason 3, Atli
Hilmarsson 2, Bjarki Sigurðsson 2, Guð-
mundur Guðmundsson 2, Sigurður
Sveinsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 2, Guð-
mundur Hrafnkelsson 7.
Utan vallar: Bjarki Sigurðsson 2 mínútur.
Mörk Spánar: Munoz 6/2, Puig 5, Serrano
4, Marin 3, Ruiz 2, Cabanas 1, Fernandez
1, De la Puente 1.
Varin skot: Rico 15/2.
Utan vallar: Puig 2 mínútur.
Flugleiðamótið, 23. ágúst 1988
Bjarki Sigurðsson átti ágætan leik í gærkvöld og skoraði tvö mörk, en varð að fara útaf vegna meiðsla seint í leiknum. Hér svífur hann inn úr
horninu og þá er ekki að sökum að spyrja. Mynd: E. Ol. FlugleÍðcWlÓtÍð
íslendingum sökkt fyrir hlé
Ágœtur síðari hálfleikur dugði ekki gegn eldheitum Spánverjum sem sigruðu 21 -23
Það var hreint alveg hræðilegt að horfa á fyrri hálfleik landsleiks
íslands og Spánar í Höllinni í gærkvöld. Trítilóðir og baráttuglaðir
Spanjólar höfðu leikinn algerlega í sinni hendi og munurinn á liðunum
var lengi vel 5-6 mörk. Spánverjar léku geysilega góða vörn og mark-
varslan þar fyrir aftan var í sérflokki. Þá kom á óvart hversu fljótir þeir
voru í hraðaupphlaupum en íslendingar misstu knöttinn einmitt stöku
sinnum illilcga frá sér í sókninni. Ágætur síðari hálfleikur dugði því
engan veginn því Spánverjar misstu aldrei móðinn og sigruðu með 23
mörkum gegn 21. íslendingar byrjuðu leikinn af
krafti og fyrsta sókn Spánverja
tók 3 mínútur. Þá skoruðu þeir og
við það brotnaði ísinn. Spánverj-
ar komust í 1-4 og síðan 2-7 en
Þorgils Óttar Mathiesen minnk-
aði muninn í 3-7 þegar 18 mínútur
voru eftir af hálfleiknum. Það er
athyglisvert að fleiri mörk gerðu
íslendingar ekki í hálfleiknum
nema úr vítaköstum, en íslend-
ingum gekk mjög illa að komast í
gegnum spænsku vörnina, enda
sóttu þeir allt of mikið inn á miðj-
una en þar voru stærstu menn
vallarins einmitt staðsettir.
Hornamenn íslands fengu úr litlu
sem engu að moða en það hefði
eflaust gert gæfumuninn.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Flugleiðamótið
Ennsigra
Rússar
Sovétmenn eru enn ósigraðir á
Flugleiðamótinu og í gær urðu
Tékkar fórnarlömb þeirra.
Leiknum lauk með sigri Rúss-
anna 20-16 og höfðu þeir yfir í
hálfieik 12-8.
Þá sigruðu Svisslendingar B-
landslið íslendinga með aðeins
einu marki, 19-18, en staðan í
leikhléi var jöfn, 11-11. -þóm
Spánverjar höfðu sex marka
forystu, 6-12, í leikhléi og var því
á brattann að sækja fyrir
landann. Þegar staðan var 7-14
kom ágætur kafli hjá íslending-
um þar sem þeir skoruðu þrjú
mörk í röð en Spánverjar náðu
aftur sjö marka forystu 11-18. Þá
virtist sem íslendingar væru að
missa leikinn endanlega frá sér en
annað kom á daginn.
Þáttur Sigga Sveins
Sigurður Sveinsson kom inná
þegar um 11 mínútur voru til
leiksloka og hefði Bogdan
gjarnan mátt reyna Sigurð fyrr í
leiknum. í sinni fyrstu sókn gefur
hann fallega sendingu á Þorgils
Óttar sem skorar af línunni. Næst
gefur hann aftur á Óttar en brotið
er á honum og úr vítakastinu
skorar Alfreð Gíslason. Síðan er
röðin komin að honum sjálfum
að skora sem hann og gerir og
staðan því 17-20 og 9 mínutur til
leiksloka. Það var því ekki svo
fjarlægur draumur að ná Spán-
verjunum en þeir gáfu sig ekki og
héldu forystunni til leiksloka.
íslenska liðið lék vel í síðari
hálfleik og hefði jafnvel með smá
heppni getað jafnað leikinn.
Spánverjarnir þurftu virkilega að
taka á öllu sínu til að missa ekki
unninn leik niður í tap. En að
leika aðeins annan hálfleikinn vel
er ekki nóg til að sigra. Fyrri hálf-
leikur var sem áður sagði
hreinasta martröð og það vita all-
ir að til að standa upp í hárinu á
Rússum verður að nást 100%
leikur allan tímann. Það er erfitt,
en ekki óhugsandi.
-þóm
EF EKKl... ÞÁ GETURÐU MISST AF
SPORTBÍL OG SPÍTTBÁT