Þjóðviljinn - 24.08.1988, Side 13
Pólland
FÍeiri
verkföll
Stjórnvöld í Varsjá báru sig
einkar aumlega í gær og sökuðu
fylgismenn Samstöðu um að
reyna að svínbeygja sig með vinn-
ustöðvunum, „reiða verkfalls-
vopnið til höggs.“ Enn fjölgar
þeim verkamönnum sem ekki
hafast að og krefjast þess að frjáls
verkalýðsfélög fái að starfa í Pól-
landi.
Málsvari ráöamanna, Jerzy
Urban, sagði á fréttamannafundi
í gær að húsbændur sínir myndu
ekki taka upp samningaviðræður
við Lech Walesa til þess að binda
enda á verkföllin í landinu. „Það
kemur ekki til greina að taka upp
pólitískar viðræður við menn sem
reiða verkfallsvopnið til höggs og
setja okkur afarkosti.“
Skömmu áður en fundur Ur-
bans hófst komu forystumenn
verkfallsmanna að máli við
fréttamenn og greindu þeim frá
því að starfsmenn slippsins í
Gdansk hefðu lagt niður vinnu.
Þar vinna að jafnaði 2.000 menn.
Síðar staðhæfði fréttamaður
útvarpsins í borginni að verkfalls-
menn í slippnum væru ekki nema
80 talsins. Forystumenn verka-
manna kváðu ekkert unnið við
tvo helstu hafnarbakka Gdansk
né heldur í þrem skipasmiðjum,
þar á meðal í Lenín-skipasmiðj-
unni þar sem Walesa starfar.
Yfirvöld í kolanámubænum
Jastrzebie í suðri ákváðu í gær að
banna mönnum að stíga út fyrir
dyr húsa sinna frá sólarlagi til sól-
arupprásar. f bæ þessum lúra
fjórar kolanámur auðar og yfir-
gefnar því námamenn eru í verk-
falli.
Ráðamenn í Varsjá létu það
boð út ganga í gær að nefnd á
vegum þjóðþingsins myndi funda
þann 31. þessa mánaðar og ræða
efnahagsástandið í ljósi þess
skaða sem verkföllin að undan-
förnu hafa valdið „pólskum þjóð-
arhag.“
Reuter/-ks.
Skák
Speelman
sigraði
Fimmtu skák ensku
stórmeistaranna Jonathans
Speelmans og Nigels Shorts í
Lundúnum lauk með jafntefli í
gærkveldi. Sá hálfi vinningur
nægði þeim fyrrnefnda til sigurs í
einvíginu. Lokastaðan varð því
Speelman: 3,5 - Short: 1,5.
Short varð að vinna skákina til
þess að geta gert sér vonir um
aukakeppni um þátttöku í undan-
úrslitum heimsmeistarakeppn-
innar. En fljótlega eftir að þeir
hófu taflið í gær fór annar riddara
Speelmans að sprella, setti Short
út af laginu og veikti stöðu hans á
drottningarvæng. Speelman vann
peð og skömmu síðar bauð Short
jafntefli sem jafngilti því að gefa
einvígið. Þá var staða hans mun
lakari.
Þeir félagar munu ekki tefla
sjöttu og síðustu skákina enda
þjónar það engum tilgangi. Þess í
stað munu þeir keppa í hraðskák.
Reuter/-ks.
ERLENDAR FRETTIR
Eystrasaltsríkin
Smáþjóðir minnast
„griðasáttmála“
Fundað íEistlandi, Lettlandi og Litháen ígœrþvíþá voru liðin rétt39 árfráþvíSovétmenn
og Þjóðverjar sömdu um endalok sjálfstœðis ríkjannaþriggja
Útifundur í Tallinn, höfuðborq Eistlands.
Igær voru liðin rétt 39 ár frá því
Sovétmenn og Þjóðverjar
gerðu með sér „griðasáttmála“
sem olli því m.a. að þrjú sjálfstæð
ríki á austurströnd Eystrasaltsins
urðu sovésk; Eistland, Lettland
og Litháen.
Þessa minntust menn í löndun-
um þremur í gær. í Tallinn, höf-
uðborg Eistlands, kröfðust ræðu-
menn á fjöldafundum fullveldis á
ný og þekktur sagnfræðingur
kvað ráðamenn enn bera út lygar
um aðdragandann að innlimun
landanna þriggja í sovéska lýð-
veldasambandið.
Rússneskir og eistneskir ræðu-
menn ávörpuðu fjölmenni í
Linnahall tónleikasalnum í Tal-
linn. 8.000 áheyrendur hlýddu á
þá færa rök fyrir því að staðhæ-
fingar hinna opinberu sögubóka
um að íbúar Eystrasaltsríkjanna
hefðu af fúsum og frjálsum vilja
orðið þegnar Sovétríkjanna væru
helber heilaspuni. Þvert á móti
hefði leynisamningur Ribbent-
rops og Molotovs (utanríkisráð-
herra Hitlers og Stalíns) verið um
það m.a. að þjóðirnar þrjár yrðu
nauðugar viljugar að binda trúss
sitt við bóndann í Kreml.
Ræðumenn kröfðust þess að
sovéskir ráðamenn viðurkenndu
að samningur þessi hefði verið
gerður og gæfu hann út á prenti
þannig að hver og einn gæti
gengið úr skugga um innihald
hans. „Undirritun samningsins
olli hernámi Eistlands," sagði
kunnur sagnfræðingur frá
Moskvu, Júrí Afanasejev að
nafni.
„Hvergi á byggðu bóli hefur
saga nokkurs lands verið fölsuð í
sama mæli og saga Sovétríkj-
anna,“ sagði Afanasejev að auki.
Það væri alkunna að leynisamn-
ingur ráðamanna í Berlín og
Moskvu hefði verið gefinn út á
Vesturlöndum árið 1948 „og sér-
hver skólakrakki hefur aðgang að
honum. En við þráumst við og
höldum því enn fram að hann hafi
aldrei verið gerður.“
Hinsvegar galt Afanasejev var-
huga við því að menn færu að
krefjast þess að Eistland yrði
sjálfstætt á ný því það „...gæti
leitt til meiri harmleiks en við get-
um gert okkur í hugarlund.“
Um 5.000 manns voru í sjálfum
tónleikasalnum á meðan fundur-
inn fór fram en á að giska 3.000
manns voru í hliðarsal og hlýddu
á ræður manna um hátalarakerfi.
Fundur þessi fór fram með sam-
þykki stjórnvalda.
Fyrr í gærdag var haldinn ann-
ar fundur í Tallinn, einnig með
heimild ráðamanna, utandyra,
nánar tiltekið í Hirve-almenn-
ingsgarðinum. Þar voru um 2
þúsund manns saman komin og
veifuðu fjölmargir þjóðfána Eist-
iendinga, í svörtum, bláum og
hvítum litum.
Einn ræðumanna sagði alls
ekki nóg að landsmenn gerðu sér
grein fyrir því að þjóðin hefði
sætt afarkostum árið 1940 heldur
yrðu þeir að draga rökréttar
ályktanir af þeirri vissu sinni:
krefjast aðskilnaðar frá sovéska
lýðveldasambandinu, krefjast
fullveldis.
Fréttir herma að stjórnvöld
hafi einnig heimilað fundarhöld í
höfuðborgum Lettlands og Lit-
háens, Rígu og Vilníus.
Reuter/-ks.
Sérfræðingar S. Þ. sanna að þeir vörpuðu sinnepsgassprengjum á íransktþorp
Nefnd sérfræðinga á vegum
Sameinuðu Jþjóðanna greindi
frá því í gær að Irakar hefðu gerst
sekir um að beita sinnepsgasi
gegn íranskri alþýðu í öndverð-
um þessum mánuði. íraskir flug-
liðar hafi varpað gassprengjun-
um út úr vélum sínum er þeir
voru yfir miðbiki bæjar nokkurs í
íranska Azerbaidsjan, norðan Ir-
aks.
„Það er okkur mikið hryggðar-
efni að hafa komist að því að
...þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir
frá Sameinuðu þjóðunum hafa
efnavopn verið notuð gegn ír-
önskum borgurum steinsnar frá
miðbæ þar sem útilokað var að
verjast árás með þesskonar vopn-
um,“ sögðu sérfræðingarnir á
fréttamannafundi í New York í
gær.
Skýrsla þeirra er afrakstur
vettvangsrannsókna í bænum Os-
hnavijeh sem liggur um 200 kfló-
metrum sunnan landamæranna
að Sovétríkjunum. Þar dvöldust
þeir dagana 12.-14. ágúst en þann
2. vörpuðu írakar efnasprengj-
unum á bæinn. Stjórnvöld í Te-
heran segja að 2.680 manns hafi
orðið að leita sér lækninga af
völdum sinnepseitrunar.
Nefndin komst að þessum nið-
urstöðum:
„A. Bein skoðun fórnarlamba í
Oshnavijeh leiddi ótvírætt í ljós
að sýking þeirra stafaði af
beitingu efnavopna og einkennin
voru dæmigerð fyrir afleiðingar
af notkun sinnepsgass.
B. Efnagreining staðfesti að
sinnepsgas var í jarðvegi og um-
hverfi miðbæjarins.
C. Af rannsókn á sprengju-
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
leifum, járnflísum og fram-
leiðslunúmerum, sem fundust á
vettvangi, má draga þá ályktun
að sprengjum af sömu gerð og
beitt var sannanlega árin 1984,
1986, 1987 og 1988 hafi enn á ný
verið beitt gegn írönskum borg-
urum, nú í Oshnavijeh.
Það má geta þess að lokum til
fróðleiks að þann 2. ágúst síð-
astliðinn, daginn sem írakar úð-
uðu sinnepsgasinu á alþýðu
manna í íran í trássi við guðs og
manna lög, stóð utanríkisráð-
herra Bagdaðstjórnarinnar í
stríðu friðarmakki í New York
enda var vopnahlé í sjónmáli.
Reuter/-ks.
Burma
Fjölmenni mótmælir
Allt stórslysalaustþótt hálfmiljón manna hafi gengið um götur ítrássi
við herlög
Rúm hálf miljón manna tók
þátt í friðsamlegum
mótmælaaðgerðum í Burma í
gær. Gekk fólkið fylktu liði um
götur og stræti borga og krafðist
þess að hin svonefnda „sósíalista-
stjórn“ landsins segði af sér eftir
26 ára óstjórn.
Hermenn voru hvarvetna á
varðbergi í Rangún, höfuðborg
landsins, en þeir höfðust ekki að
að þessu sinni þótt herlög séu enn
í gildi og „lögbrjótar" hafi verið
að minnsta kosti eitt hundrað
þúsund talsins. Göngumenn báru
borða og spjöld og hrópuðu að
auki slagorð sín, t.a.m. að þeir
sættu sig ekki við neitt annað en
lýðræði.
Á einum borðanna stóð:
„Þetta er okkar svar við óskum
stjórnarinnar um að fá að heyra
almenningsálitið." Eftir allt það
sem á undan var gengið var það
nefnilega eitt hið fyrsta verk ný-
kjörins formanns valdaflokksins,
Maungs Maúngs, að skipa nefnd
til þess að rara ofaní saumana á
viðhorfi alþýðu manna!
Að sögn sendiráðsmanna að
vestan gengu um 250 þúsund
manns um götur hinnar norðlægu
Mandalayborgar og nánast
jafnmargir gerðu slíkt hið sama í
Tavoyborg í suðri. Heimilda-
mennirnir segja að í báðum þess-
ara borga og víða annars staðar í
Burma séu stjórnendur ýmist á
bak og burt eða í þann mund að
hrökklast frá völdum. Skarð
þeirra fylli búddamúnkar!
Reuter/-ks.