Þjóðviljinn - 24.08.1988, Qupperneq 16
þJÓÐVIUINN
Mlðvikudagur 24. dgúst 1988 188. tölublað 53. örgangur
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Viltu blýlaust eöa súperbensín? - Bíleigendur hafa verið talsverðan tíma að átta sig á því í hverju munurinn raunverulega felst. Mynd Ari.
Bensín
Það blýlausa vmnur á
I kringum 45% afseldu bensíni blýlaust. Jónas Bjarnason: Hefðiþurft
lengri undirbúningstíma. Tekur um 6 mánuði að koma málum í rétt horf
■“SPURNINGIN"""!
Ertu tilbúinn aö láta af
hendi 9% af launum þín-
um til aö rétta við hag
fyrirtækjanna?
Unnsteinn Pálsson bensín-
afgreiðslumaður:
Það væri í lagi að lækka launin ef
allt annað myndi lækka um leið
en ég hef ekki nokkra trú á að slíkt
sé mögulegt.
íris Gunnarsdóttir, auglýs-
ingastjóri Stjörnunnar:
Nei, ég er alls ekki tilbúin til þess.
Þorsteinn Jónsson ellilífeyr-
isþegi:
Ég vil hengja alla þá sem koma
með slíkar hugmyndir. Ellilaunin
eru lág núna og ekki nokkur leið
að lifa á þeim, hvað þá ef þau
lækkuðu meira.
Lúðvík Bárðarson rafvirki:
Ég væri tilbúinn til þess ef það
leiddi til þess að verðbólgan færi
niður í núll. Það er besta kjarabót-
in fyrir mig.
Hrafnhildur Waage af-
greiðslumaður:
Nei takk, það vil ég ekki. Þetta er
eins og hver önnur della og það
felst ekki í þessum hugmyndum
nein lausn, ekki frekar en matar-
skattinum og öðrum misvitrum
ákvörðunum.
Sala á blýlausu bensíni hefur
aukist nokkuð frá því að það
kom fyrst á markað hérlendis
fyrir tæplega 4 mánuðum og sam-
kvæmt heimildum blaðsins er
sala þess nú á milli 40-50% af
bensínsölunni, en þegar blýlausa
bensínið kom á markaðinn í lok
maí jókst sala á súperbensíni
(kraftbcnsíni) mikið og bíleigend-
ur höfðu uppi ýmsar efasemdir
um ágæti blýlausa bensínsins.
- Það skorti nægilegan undir-
búning og kynningu áður en blý-
lausa bensínið kom á markað
hér. Þar til 3 vikum áður en sala
hófst vissi enginn annað en að
blýlausa bensínið kæmi í fyrsta
lagi á markað eftir 1990 en það
hefði þurft um 6 mánaða undir-
búning svo öll bifreiðaumboðin
gætu aflað sér upplýsinga um
þessi mál og komið þeim rækilega
til skila til neytenda, sagði Jónas
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra bifreiðar-
eigenda. Jónas sagði að sér sýnd-
ust þessi mál horfa nú til betri
vegar, mörg umboð hefðu þegar
aflað tæmandi upplýsinga og
komið þeim til skila með
fullnægjandi hætti en enn ættu þó
nokkur umboð eftir að gera grein
fyrir sínum bílum, auk þess sem
óvissa ríkti um sumar tegundir af
gömlum bílum og þeim sem flutt-
ir væru notaðir inn til landsins án
milligöngu bifreiðaumboða.
Jónas sagðist ekki eiga von á
öðru en að upplýsingar frá um-
boðunum bærust innan tveggja
mánaða og salan á blýlausa bens-
íninu ætti eftir að aukast því mið-
að við samsetningu bílaflotans
gætu um 2/3 hlutar hans notað
býlaust bensín.
Þegar blýlausa bensínið kom
fyrst á markaðinn ríkti mikil
óvissa meðal bíleigenda um hvort
óhætt væri að nota það og stóðu
margir í þeirri trú að bíllinn
myndi eyðileggjast með það
sama ef hann ekki væri hannaður
fyrir blýlausa bensínið. Nýir bíl-
ar, allt að 6-8 ára gamlir, eru
langflestir gerðir fyrir blýlaust
bensín þó mælt sé með því að ein-
stakar bifreiðategundir noti
bensín með blýi eins og t.d.
Skoda, Fiat og flestar tegundir
Citroén bíla. Meira vafamál get-
ur verið með eldri bíla, en það
ætti að vera einfalt fyrir bíl-
eigendur að ganga úr skugga um
þetta með því að hafa samband
við umboðið, auk þess sem flest-
ar bensínafgreiðslustöðvar hafa
þær upplýsingar undir höndum
sem umboðin hafa sent frá sér.
Jónas sagði að það væri tvennt
sem gerði það að verkum að bíl-
eigendur veltu fyrir sér hvort bíll-
inn væri gerður fyrir blýlaust
bensín eða ekki, annars vegar
kostnaðurinn og hins vegar um-
hverfisþátturinn en þar sem blý-
lausa bensínið hefur vinninginn í
báðum tilfellum væri hægt að
skrifa hluta af skýringunni á lé-
legri sölu þess í upphafi á
sofandahátt neytenda almennt,
sem væri ekki bundinn við sölu á
bensíni frekar en öðrum vörum.
-iþ