Þjóðviljinn - 25.08.1988, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 25.08.1988, Qupperneq 16
■SPURNINGIW— Á borgin aö selja sinn hlut í Granda? Hermann Kristinsson, járnsmiður: Hið opinbera á að losa sig við sem flest fyrirtæki, það gengur yfirleitt betur með fyrirtæki í einkaeign. Svandís Skúladóttir, vinnur í menntamálaráðuneytinu: Ég held að borgin eigi ekki að selja sinn hlut. Annars gengur nú fólki erfiðlega að mynda sér skoðun í þessu máli enda sjálfir borgarfulltrúarnir tvístígandi. þlÓÐVIUINN Flmmtudaour 25. ógúst 1988 189. tölublað 53. öroangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 ÁLAUGARDÖGUM 681663 Helgi Ólafsson frá Hólmavík leikur hér sinn fyrsta leik í skák þeirra nafna á Alþjóðaskákmótinu á ísafirði. Sá yngri vann að endingu eftir jafna og spennandi skák. Mynd: SJS. Telft við Djúp Helgi Ól gegn Helga Ól Arthúr Sveinsson skrifstofumaður: Reykjavíkurborg á að halda sín- um hlut. Það tryggir nauðsynlegt aðhald. Þorsteinn Mattiasson sjómaður: Nei, borgin á að halda sínum hlut, öðruvísi getur fyrirtækið ekki gengið. Margrét Guðmundsdóttir húsmóðir: Já, mér líst mjög vel á þá hug- mynd. Borgin hefur næg verkefni önnur en að reka þetta fyrirtæki. Helgi Ólafsson og Helgi Ólafsson eiga sameiginlegt nafnið, skákáhugann, meistaratitil- og Þjóðviljann! Skákþing íslands Margeir heitur EnJón Loftur fylgir honum einsogskugginn að var dálítið erfitt að tefla hálfpartinn við sjálfan sig, sagði Helgi Ólafsson stórmeistari um sína fyrstu viðureign við Helga Ólafsson, Skákmeistara ís- lands árið 1964. Þeir taka nú báð- ir þátt í Alþjóðaskákmótinu við Djúp og í fréttum af mótinu eru alnafnarnir yfirleitt aðgreindir sem Helgi yngri og Helgi eldri en á þeim er 13 ára aldursmunur. - Þetta var hörkuskák. Hann hefur mikinn skilning á skák og góða þekkingu á ýmsum þáttum hennar, þótt það segi kannski til sín að hann hefur ekki stundað þetta í aldarfjórðung. Það er bara synd að hann skuli hafa hætt að tefla, sagði Helgi Ólafsson yngri um nafna sinn. Helgi Ólafsson eldri sagðist hafa haft gaman af því að tefla við Helga, á mánudaginn var. - Skákin var skemmtileg og eiginlega sú besta sem ég hef teflt á mótinu. Hún var nokkuð jöfn, þótt ég tapaði nú reyndar fyrir rest. Yngri Helginn lýsti gangi skákarinnar mjög svipað: - Hann var alveg kominn með jafntefli, þegar mér tókst að snúa á hann í lokin. Helga eldri, sem býr á Hólma- vík, fannst sér hafa gengið svipað og búast mátti við. - Þetta er farið að vera of erfitt þegar á líður. Hér er teflt í 6 klukkutíma og maður er orðinn lokaður á 5. og 6. tím- anum. Það þarf meiri þjálfun í svona mót en ég hef. Helgarnir hafa báðir komið við sögu Þjóðviljans. Helgi yngri sem skákskýrandi og blaðamaður, en Helgi eldri lærði prentverk á blaðinu á þeim tíma er mest bar á honum í skákinni, árin 1963-65. Með hann í fararbroddi sigruðu starfsmenn Þjóðviljans meðal annars Stofnanaskákmót Skáks- ambands íslands árið 1965, og hangir skrautritað skjal um þann sigur enn á kaffistofu blaðsins. Hólmavíkur-Helgi sagðist ekki sjá eftir að hafa hætt í skákinni. - Ég hef eignast önnur áhug- amál núna, þótt ég hafi látið plata mig á þetta mót. mj Igærkveldi var tefld njunda um- terðin á Skákþingi Islands en þeir sem þar heyja keppni sækjast allir eftir heiðurstitlinum Skák- meistari íslands. Helstu úrslit urðu þau að Margeir Pétursson vann Róbert Harðarson, Jón L. Árnason lagði Ágúst Karlsson og Karl Þorsteins kom Hannesi Hlífari Stefánssyni á kné, en einsog margoft hefur komið fram í fjölmiðlum er sá síðastnefndi bæði ungur og bráðefnilegur. Því má vera ljóst að Margeir stendur næsta nærri ofannefndri tign, heldur forystu sinni þegar tveim umferðum er ólokið. Á hæla hans kemur annar valink- unnur stórmeistari, Jón Loftur, en Hannes Hlífar virðist hafa helst úr lestinni eftir tvær byltur í röð. Eftir innbyrðis viðureign hafa þeir Karl Þorsteins haft sætaskipti. ' Annars er staða efstu manna nú þessi: 1. Margeir Pétursson: 8v. 2. Jón L. Árnason: 7,5v. 3. Karl Þorsteins: 6,5v. 4. Hannes Hlífar: 6v. -ks.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.