Þjóðviljinn - 27.08.1988, Blaðsíða 1
Efnahagsaðgerðir
ræost á launin
Ríkisstjórnin lœtur höggið ríða. Mjög deildar meiningar innan ASÍ
Ekkert verður af kaup-
hækkun upp á 2,5% sem taka
átti gildi 1. september sam-
kvæmt kjarasamningum fjöl-
margra verkalýðsfélaga. Rík-
isstjórnin telur sig vera á frí-
um sjó til að ógilda kjara-
samningana með lögum.
Launamaður, sem nú hefur 50
þúsund á mánuði, hefði feng-
ið 1.250 króna hækkun ef
samningar fengju að standa
Innan ASÍ eru skiptar skoð-
anir um aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar. Stjórnarflokkarnir
þrýsta mjög á „sína menn“ í
forystuliði ASÍ, og virðist Ás-
mundur Stefánsson forseti
ASÍ hafa orðið að láta undan
á fundum miðstjórnarinnar.
Ýmis samtök launafólks
hafa mótmælt fyrirhuguðum
kjaraskerðingum harðlega.
Sjá síðu 2 og 4
Klukkan tifar, - eða glymur. Steingrímur Hermannsson, Halldór Ás-grímsson, Þórður Friðjónsson, Þorsteinn Pálsson og Olafur Isleifsson
eftir fund með miðstjórn Alþýðusambandsins í gærmorgun. (Mynd: E.ÓI.)
íslenskir aðalverktakar
Islenskir aðalverktakar hafa sjaldan eða aldrei grœtt eins mikið í viðskiptum sínum við bandaríska herinn
íslenskir aðalverktakar hafa
sjaldan grætt eins mikið og þeir
gerðu á síðasta ári eða 518
milljónir króna og þrjú árin þar á
undan græddu þeir 420 milljónir
króna á viðskiptum sínum við
bandaríska herinn á Keflavíkur-
flugvelli. Gróði var einnig meðal
annarra verktaka sem unnu verk-
efni á vegum hersins, hvort sem
það var suður með sjó, vestur eða
austur á fjörðum.
Þegar mest var í fyrra unnu hjá
fyrirtækinu hátt í 800 hundruð
manns, en að jafnaði hafa að
undanförnu unnið hjá þeim um
og yfir 700 manns. Eins og gefur
að skilja eru langflestir starfs-
mannanna frá Suðurnesjum en
einnig er töluverður fjöldi frá
Stór-Reykjavíkursvæðinu en lítið
frá öðrum landshlutum.
Sjá síðu 3
Svanfríður Jónasdóttir bæjarfulltrúi á Dalvík og varaformaður AB á fundinum í
fyrrakvöld. (Mynd:Ari)
Alvöru fyrirtæki!
- Við viljum vel rekin fyrirtæki
sem geta gert vel við sitt fólk og
geta staðið undir því velferðar-
kerfi sem við eigum rétt á, sagði
Svanfríður Jónasdóttir varafor-
maður Alþýðubandalagsins á
fjölmennum fundi um sjáv-
arútvegsmál sem Alþýðubanda-
lagið efndi til í Hafnarfirði í fyrra-
kvöld.
Líflegar og fróðlegar umræður
voru á fundinum þar sem tóku
þátt í pallborðsumræðum auk
Svanfríðar, þau Logi Þormóðs-
son fiskverkandi, Oskar Vigfús-
son formaður
Sjómannasambandsins, Árni
Benediktsson frá Sjávarafurða-
deild Sambandsins og Sólveig
Aðalsteinsdóttir fiskverkakona.
Sjá síðu 7
Kampakátir Foxtrott-menn við frumsýninguna í fyrrakvöld. (Mynd:Ari)
Dágóður Foxtratt
Garpskapur
Tuttugu
mínútur
ísjónum
Ótrúleg mannbjörg í
Hornafjarðarósi
Daníel Sigurðsson sjómaður á
Höfn í Hornafirði bjargaði sér
með því að synda í tuttugu mínút-
ur í ósnum áður en hann náði
landi er trilla hans sökk í
Hornfarfjarðarósi í fyrrinótt.
Hann þurfti síðan að bíða í
þrjár klukkustundir éftir björgun
hrakinn og kaldur á söndunum
við ósinn, en á meðan sigldu þrír
bátar út úr ósnum.
Ég skellti mér í heitt bað þegar
heim kom og jafnaði mig fljótt,
sagði Daníel við Þjóðviljann í
gær.
Sjá síðu 3
Ný íslensk mynd var frumsýnd
í fyrradag og ákaft fagnað af
frumsýningargestum. Þetta er
„Foxtrott“ þeirra Jóns Tryggva-
sonar, Hlyns Öskarssonar, Karls
Óskarssonar og Sveinbjörns
Baldvinssonar, íslensk „spennu-
mynd“ með byssuhasar og
slagsmálum, og er sögusviðið að-
allega á Suðurlandsundirlendi.
„Mynd sem gengur upp“ segir
Mörður Árnason í umfjöllun um
Foxtrott í Þjóðviljanum í dag, en
það vantar „karakter, heildar-
sýn“ sem „skilur á milli vel unn-
innar kvikmyndar og góðrar
kvikmyndar".
Sjá síðu 12