Þjóðviljinn - 31.08.1988, Qupperneq 1
Miðvikudagur 31. ágúst 1988 193. tölublað 53. árgangur
Kjaramálin
Mðja leiðin: að lifa
Andstaða ^við kjararán magnast. Hlífarmenn:Neitið viðrœðum við
stjórnina. Björn Grétar Sveinsson: Rangt að valið standi milli gálgans
og byssunnar, - það er líka hœgt að lifa
Andstaða magnast innan sam-
taka launafólks gegn samráði við
ríkisstjórnina um kjaraskerðing-
arleiðir.
Sigurður T. Sigurðsson for-
maður Hlífar í Hafnarfirði sagði
við Þjóðviljann í gær að mið-
stjórn ASI væri klofin eftir
flokkspólitískum línum, og ætlar
hann að beita sér fyrir því að boð-
að verði til formannafundar í Al-
þýðusambandinu.
Björn Grétar Sveinsson for-
maður Jökuls á Höfn hefur farið
fram á framkvæmdastjórnarfund
í VMSÍ og segir furðuleg ummæli
formanns sambandsins um kost-
ina nú. Verkalýðshreyfingin hafi
um fleira að velja en að vera
hengd eða skotin, það sé líka
hægt að lifa.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ hittir í dag forsætisráðherra
til að athuga um framhald við-
ræðnanna sem miðstjórn ASÍ á-
kvað aö eiga við ríkisstjórnina.
Ákveðið er að formenn lands-
sambanda taki þátt í þeim.
Sjá síðu 2 og leiðara
Leikhús
Pikk og Nikk eru í bænum,
hirðulaus og skrafhreifin ruglu-
kolla ásamt þöglum, smámuna-
sömum reglumanni. Þau gera
stuttan stans í Norræna húsinu og
segja þar alvarlega hluti með
húmor.
Þetta er finnska ferðaleikhúsið
Totem með látbragðsleik, sem
þau Margret von Mathens og
Timo Sokuras segja varla handa
unglingunum, hinsvegar bæði
fyrir börn og fullorðna.
Sjá síðu 9
Staðan 19-0
Kvótaskipulag hefur bœtt stöðu kvenna á
Norðurlöndunum, af hverju ekki hér?
í stjórn Vinnueftirlits ríkisins
eru 9 karlar, engin kona. í um-
ferðarráði eru 19 karlar, engin
kona.
Stefánía Traustadóttir bendir á
þetta í viðhorfsgrein í blaðinu í
dag, þar sem hún bendir á kvót-
ann sem eina af leiðunum til
jafnréttis.
Sá síðu 7
Grandi hf
Kratar samþykktu
Atkvœðagreiðslu um Grandasölu frestað
Borgarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins Bjami P. Magnússon létbóka
samþykki sitt með Grandasöl-
unni á fundi borgarráðs í gær.
Fulltrúar Alþýðubandalags,
Kvennalista og Framsóknar
bókuðu allir mótmæli.
Atkæðagreiðslu um samning-
inn var frestað til næsta borgar-
ráðsfundar.
Ólafsfjörður
Enn hætla á skriðuföllum
Hœttuástandi ekki verið aflýst. Hellirigning var ígœr með hléum.
Tjónið mun meira en menn héldu ífyrstu. Atvinnulífið að mestu lamað
og þjónusta í lágmarki. Leiftursmenn bjartsýnir á að geta leikið á
malarvellinum gegn KR um nœstu helgi
Ljóst er tjónið sem orðið hefur
á Ólafsfirði af völdum aurskriða
og vatns er mun meira en menn
ætluðu í fyrstunni og er það nær
hundruðum milljóna fremur en
tugum milljóna króna. Hættu-
ástandi hefur ekki verið aflýst
enda hellirigndi þar í gærmorgun
og aftur þegar leið á kvöldið og
telja menn hættu á enn frekari
skriðuföllum.
Að sögn Björns Vals Gísla-
sonar á Olafsfirði er enn mikill
vatnselgur á götum bæjarins og
dæmi um að vatnshæð í kjallara-
íbúð hafi mælst allt að 45 cm.
Flugvöllurinn er enn lokaður
enda umflotinn vatni og eru sam-
göngur við bæinn svo til eingöngu
á sjó.
Seinnipartinn í gær létti þok-
unni aðeins sem fylgt hefur úr-
komunni og þá notuðu menn
tækifærið til að athuga hvernig
umhorfs væri í Tindaöxlinni, en
talið er að 11 skriður hafi komið
úr fjallinu um helgina og þar af 9
sem fóru niður fyrir ofan bæinn.
Bjöm sagði að það stórsæi á fjall-
inu og túnin þar fyrir neðan litu út
eins og síki.
í gær unnu menn við að birgja
glugga á þeim húsum sem liggja
efst í bænum og dæla úr þeim
íbúðum sem fyllst hafa af vatni.
Hátt í 200 íbúar þeirra 70 húsa
sem vom yfirgefin halda enn
kyrm fyrir meðal vina og kunn-
ingja niðri í bæ og nokkrar fjöl-
skyldur hafast við í Gagnfræða-
skólanum. Þá er umferð tak-
mörkuð á hættusvæðinu.
Atvinnulíf bæjarins hefur
meira og minna verið lamað og
aðeins haldið uppi lágmarksþjón-
ustu. Allir sem vettlingi geta
valdið hafa unnið við að reyna
bjarga verðmætum frá skemmd-
um. Þá er búist við að allur eldis-
fiskur hjá Óslaxi sé dauður enda
er allt þar fullt að leðju og drullu.
Þorsteinn Þorvaldsson for-
maður Leifturs sagði aðspurður
að menn héldu enn í vonina um
að hægt yrði að leika á móti KR í
15. umferð SL-deildarinnar á
malarvellinum en hluti af honum
er enn undir vatni.
-grh
Sovétmenn
í Laugardal
Ísland-Sovét í Laugardal
klukkan sex, væntanlega stapp-
fullur völlur og góð stemmning,
Belanov (myndin), Dasajov og
félagar í góðu formi eftir Evróp-
usilfrið - en íslenska liðið er einn-
ig sterkt og stárar af jafntefli í
síðasta leik við bjöminn í Laugar-
dal.
Sjá siðu 10