Þjóðviljinn - 31.08.1988, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 31.08.1988, Blaðsíða 11
Ríkissjóður íslands hefur treyst Fjárfestingarfélaginu fyrir sölu spariskírteina sinna í 12 ár Treystir þú okkur ekki líka? Elsta og reyndasta verðbréfafyrir- tæki landsins Fjárfestingarfélag íslands hf var stofhað árið 1971. Félagið er því elsta hlutafélag sinnar tegundar hérlendis. Hluthafar Fjárfestingarfélagsins eru rúmlega 400 talsins. Auk fjöl- margra einstaklinga og samtaka eru Lífeyrissjóður verslun- armanna, stærsti lífeyrissjóður fólksins í landinu, Eimskipa- félag íslands hf, Tryggingamiðstöðin hf og Verzlunarbanki íslands hf, hluthafar í Fjárfestingarfélaginu. Það dettur fáum í hug að slík fyrirtæki og samtök standi að rekstri verðbréfa- fyrirtækis sem ekki sé hægt að treysta. Ábyrg verðbréfaviðskipti Fjárfestingarfélagið er einn af stofnendum Verðbréfaþings íslands, ásamt Seðlabankanum og fleiri aðilum m.a. ríkis- banka. Verðbréfasjóðirnir sem eru í umsjá Fjárfestingarfé- lagsins eru allir sjálfstæð hlutafélög, sem hvert um sig hefiir sýnt umtalsverðan árangur. Fjárhagur sjóðanna er því ekki hluti af fjárhag Fjárfestingar- félagsins. Þannig hefur afkoma eða starfsemi félagsins engin áhrif á ávöxtun sjóðanna. Á hinn bóginn er það vissulega styrkur fyrir sjóðina að hafa trausta bakhjarla. Strangar starfsreglur Fjárfestingarfélagið er stofhaðili að Samstarfsnefnd íslenskra verðbréfasjóða. Samstarfsnefhdin, eins og Verð- bréfaþingið, gerir strangari kröfur til aðildarfyrirtækja sinna en almennt er gert í lögum um verðbréfamiðlum, auk þess sem gerðar eru miklar kröfur til sjóða samtakanna um fjár- festingar, upplýsingamiðlun og eftirlit. Dreifmg ékættu eg gagnkvamt traust Fjárfestingarfélagið hefur umsjón með sparifé rúmlega 15 þúsund einstaklinga. Milli ráðgjafa félagsins og eigenda Kjarabréfa, Markbréfa og Tekjubréfa, ríkir gagnkvæmt traust, enda hafa verðbréf félagsins skilað eigendum sínum umtalsverðri ávöxtun. Verðbréfasjóðirnir ávaxta fjármuni sparifjáreigenda með fjárfestingu í fjölmörgum og ólíkum verðbréfum. Til þess að tryggja ávöxtun og dreifa áhættunni sem mest er ákveð- ið hámark sett varðandi kaup á skuldabréfum á einstaka aðila og einungis keyptar skuldaviðurkenningar með traustum tryggingum. Þess vegna er áhættudreifing í kaup- um sjóða í umsjá félagsins að jafnaði þeim mun meiri eftir | því sem sjóðurinn stækkar. í dag er Verðbréfasjóðurinn hf, ° útgefandi Kjarabréfanna, stærsti verðbréfasjóður landsins að verðmæti 2,7 miljarðar króna. Sérþekking starfsfólks Fjórfestingarfélagsins á fjármála markaðinum kemur því þúsundum landsmanna til góða! (Ú> FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Hafnarstræti - Krinalunni - Akureyri Aöili að Veröbréfaþingi islands Hluthafar: Verzlunarbankinn, Eimskip, Tryggingamiöstöðin, Lífeyrissjóður Verslunarmanna auk rumlega 400 fyrirtækja og einstaklinga. f jarmal þm - sergrein okkar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.