Þjóðviljinn - 02.09.1988, Blaðsíða 2
HHflHSflHflHHHflHHI^H^HIHHflHflHHHBIflBHIHHHHBHHHflHHHHflflflHHIHHHIHBH8HHHIHIHHHHHHIHHBBflHB
Aftur til upphafsins
Hörður Torfason, trúbador með meiru, leitar aftur til upphafsins í
efniánýjaplötu
„Það má segja að með
þessum tónleikum sé ég að
leita aftur til upphafsins,"
sagði Hörður Torfason, sem
verður með tónleika í Lækjar-
tungli nú á sunnudagskvöldið.
Á tónleikunum mun hann
flytja lög frá upphafi ferils síns
sem vísnasöngvari og verða
hljómleikarnir hljóðritaðir og
koma væntanlega út á hljómplötu
í haust.
„Það má segja að ég sé að
hreinsa út hjá mér áður en ég
ræðst í ný verkefni. Ég mun flytja
lög af öllum hljómplötunum sem
ég hef gefið út. Petta eru lög sem
hafa fallið hvað best í kramið hjá
áheyrendum og oftast er beðið
um á tónleikum mínum. Flest
lögin verða þó af fyrstu plötunni,
„Hörður Torfason flytur eigin
lög“. Þá verður einnig forvitni-
legt að heyra hvernig mér tekst
upp við rokklögin af „Tabu“, en
ég verð einn á sviðinu í Lækjar-
tungli með kassagítarinn."
Týndar upptökur
Hörður sagði að með þessu
væri hann að koma til móts við
kröfur dagsins í dag, en eldri
plöturnar hefðu verið gerðar við
slæm skilyrði og hljómurinn á
þeim því ekki eins tær og fólk vill
hafa hann í dag. Auk þess eru
upptökur af hljómplötunni
„Dægradvöl" týndar.
„Það verður spennandi að taka
þessi lög upp lifandi en mjög lítið
hefur verið gert af því hér á landi.
Þetta eru lög sem allir virðast
kannast við og syngja með í.“
Hefur Herði tekist að ná til
yngri kynslóðarinnar?
„Já, ég tel það. Tónlistin á
„Hugflæði" virðist hafa náð vel út
fyrir mína kynslóð. Unga fólkið
virðist kannast við lög einsog
„Litli fugl“ og „Línudansarinn"
þótt það kannist ekkert við mig,
heldur sm>rji: Hver er þessi
Hörður? Eg er oft stoppaður af
ungu fólki sem vill ræða við mig
um tónlistina mína. Ég gef plötur
út svo skrykkjótt að nafn mitt er
ekki stöðugt í sviðsljósinu, enda
hefur plötuútgáfa og frægð aldrei
verið meginmálið hjá mér. Mér
hefur fundist það vera hálfgert
brjálæði að gefa út hljómplötu ár-
lega þar sem svona lítill markað-
ur er, en nú stefni ég að því. Ef vel
tekst til á hljómleikunum verða
upptökurnar gefnar út nú í haust
og eftir áramót fer ég að vinna að
nýrri plötu, sem ég er með til-
búna í vinnslu.“
Mörg járn
í eldinum
Hörður er með mörg járn í
eldinum því auk þessara tveggja
platna hefur honum verið boðið
að gefa „Hugflæði" út með
dönskum textum. Hann er nú að
vinna við það að snara textunum.
„Það gengur ekki að þýða text-
ana beint heldur verð ég að
enduryrkja þá, því íslensku text-
arnir eru ortir fyrir ísienska hlust-
endur. Ég fæ gott skáld til þess að
yfirfara textana þegar ég hef
snarað þeim þannig að ég óttast
ekki að textarnir verði ekki nógu
góðir, enda hafa Danir verið
hrifnir af textunum mínum, en ég
hef þýtt þá lauslega fyrir þá. Þeir
segjast finna eld og ís í þessum
kveðskap.“
Hörður bjóst við því að hann
yrði hér á íslandi fram yfir ára-
HörðurTorfason: Það er sama aflið á bak við þetta allt; skátdskapinn, tónsmíðarnar, sönginn og leikstjórnina.
mót þar sem hann þyrfti að fylgja
plötunni eftir með kynningu og
tónleikum. Þá sagði hann að í bí-
gerð væri að hann leikstýrði
leikriti hér í Reykjavík í haust,
auk þess sem hann væri að vinna
að kvikmyndahandriti.
„Það er sama aflið á bak við
þetta allt; skáldskapinn, tón-
smíðarnar, sönginn og leikstjórn-
ina. Þetta eru allt nátengd störf.
Trúbadorinn er í beinu sambandi
við áheyrendur þegar hann flytur
sín lög og ljóð en leikstjórinn
hjálpar leikurunum við að ná
þessu sambandi. Þessi störf krefj-
ast mikilla ferðalaga og náinna
samskipta við fólk. Það er ekki
hægt að ganga að þessum störfum
frá klukkan 9-5, einsog ef maður
vinnur í herrafataverslun, heldur
ganga svona skapandi störf í byl-
gjum, stundum er mjög mikið að
gera einsog núna, en stundum er
maður í lægð.“
í Austfjarðar-
þoku
Þegar Nýja helgarblaðið ræddi
við Hörð var hann nýkominn úr
hljómleikaferð um Austfirði, þar
sem hann flutti sömu lög og verða
á tónleikunum á sunnudags-
kvöldið.
„Ég var þarna í þoku í 9 daga.
Ég fékk miklar og góðar undir-
tektir þar sem ég kom fram.
Reyndar komu mismargir á
hljómleikana og á Höfn í Horna-
firði kom enginn. Það þýðir ekk-
ert að keppa við sjónvarpið úti á
landi því Látúnsbarkakeppnin
var í sjónvarpinu samtímis tón-
leikunumáHöfn. Það eralltöðru
vísi að koma fram úti á landi.
Sumsstaðar höfðum við það
huggulegt við kertaljós og kaffi-
bolla."
I ROSA-
GARÐINUM
-Sáf
Blessuð
niðurfærslan
Einn eyrir fyrir klukkutíma bíla-
stæði
FréttiOV
Konunglegt uppeldi
Sara mun víst aldrei þola slíka
hegðun. Húnájafnvelaðhafa
sagt' Di er alltoflin við krakk-
ana. Ég mundi drepa dýrin.“
Svidsfjós DV
Neyslurökfræði
Þá er einnig hægt að panta frá
þessu sama fyrirtæki ferðaklósett
ífelulitum. Hversu mikil noteru
fyrir slíkan varning er erfitt að
segja til um, vissara er að leggja
ferðaklósettið ekki frá sér , því
erfitt hlýtur að vera að finna það
aftur.
Veidihornid f Tímanum
í upphaf i
gæsavertíðar
Skeinipappír í felulitum hlýtur
einnig að vera vafasöm afurð, því
þurfi menn að létta á sér blasir
skjannahvítur sitjandi væntan-
lega við fuglinum. Þó er til ráð
sem bjargar slíkri uppákomu og
það er hreinlega að mála á sér
afturendann með felulitum sem
margir nota á andlit sitt þegar far-
ið er til veiða.
Veiðihorniö enn
Tilbrigði við
Brekkukotsannál
Hér er ekki verið að kasta rýrð á
nefndarstörf fjölskyldunefndar-
innar, aðeins minnt á það að ekki
er sjálfgefið að börnin séu þarfari
foreldrum en foreldrar börnun-
um.
Leiðari i Alþýðublaðinu
List hins ómögulega
Keppnisbíll þeirra var eins og
rjúkandi rúst eftir daginn en hann
lagaðist er á leið keppnina.
Rallgreln í DV
Kynslóðabil
íkábojmynd
Krakkakvikindin halda vestur
Umsögn f DV
Ekki afejnum
saman tónum
Kirkjan þarf á peningum að
halda til sinnar starfsemi og Jesús
ætlaðist áreiðanlega ekki til þess
að tónlistarmenn einir gæfu sína
vinnu.
Umsögn i Morgunblaölnu
mmmam
bhbbhbí
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ