Þjóðviljinn - 08.09.1988, Síða 10
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin Hafnarfirði
Aðalfundur ÆFHA
Aöalfundur Æskulýðsfylkingarinnar í Hafnarfirði verður haldinn í Skálanum,
Strandgötu 41, þriðjudaginn 13. september kl. 20.00.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Skýrslur fluttar - umræður.
3) Lagabreytingar.
4) Staðan í bæjarmálunum: Framsaga Lúðvík Geirsson formaður bæjarmála-
ráðs.
5) Hugleiðingar um starfið í vetur
6) Kosningar.
7) Önnur mál.
ER NÁM „H0BBY“?
Ráðstefna um vinnu barna og
unglinga með námi, sunnudaginn 18.
september nk.r að Hverfisgötu 105
(4. hæð), frá kl. 13.30-18.00.
Framsögumenn verða:
Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ.
Guðmundur Magnússon,
aðstoðarmaður menntamálaráðherra.
Ingólfur Sveinsson
geðlæknir.
R. Hulda Proppé
nemandi.
Wincie Jóhannsdóttir,
formaður HÍK.
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ.
Eftir f ramsögur verða pallborðsumræður.
Ráðstefnustjórar: Anna Hildur Hildibrandsdóttir og
Sveinþór Þórarinsson.
Ráðstefnugjald kr. 500, kafflveitingar innifaldar.
Gjald fýrir námsmenn kr. 250 (sem framvísa skólasklrtelnl).
Þelr sem hafa áhuga á þátttöku vinsamlegast skrál slg ■ síma 17500.
ÆskulýðsfýlkingAlþýðubandalagsins
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Selfossi
og nágrenni
Aðalfundur
Aðalfundur verður haldinn mánudaginn 19. september kl. 20.30
að Kirkjuvegi 7.
Dagskrá:
1) Inntaka nýrra félaga.
2) Venjuleg aðalfundarstörf.
Margrét Frímannsdóttir alþingismaður mætir á
fundinn. Nýir félagar velkomnir. Fjölmennum.
Stjórnin
Margrét
Auglýsið í Þjóðviljanum
Borgaraflokkur
Frið fyrir ofstjóm og ofsköttun
Dugnaður, ráðdeild ogþrautseigjaþjóðarinnar besta leiðarljósið,
segja Borgaraflokksmenn
Borgarflokkurinn er andvígur
þeim hugmyndum stjórnarsinna
að færa niður laun með valdboði
og segir þróun mála undanfarið
benda til að ríkisstjórnin ætli að
hengja sig í eigin snöru. Þing-
menn flokksins samþykktu eftir-
farandi tillögu á fundi 1. sept-
ember:
í baráttu sinni fyrir betra
þjóðfélagi leggur Borgaraflokk-
urinn áherslu á heiðarlegan mál-
flutning og bendir á raunhæfar
leiðir.
Þjóðfélagið hefur í tíð þessarar
ríkisstjornar orðið flóknara og
ómanneskjulegra en nokkru
sinni fyrr, þvert ofan í fyrirheit
um hið gagnstæða. Ríkisstjórnin
hefur frá upphafi verið sjálfri sér
sundurþykk og margklofin, ekki
aðeins á milli flokka heldur einn-
ig innan flokkanna, sem að henni
standa. Fálmkenndar efnahags-
aðgerðir á þriggja til fjögurra
mánaða fresti hafa allar runnið út
í sandinn, og staða einstaklinga,
fyrirtækja og þjóðarbúsins í heild
versnar í hvert skipti þrátt fyrir
góðæri að öðru leyti til lands og
sjávar.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um verðstöðvun og nýsett bráða-
birgðalög um frestun hækkunar á
launum og búvöruverði í einn
mánuð, án þess að fyrir liggi sam-
komulag um nauðsynlegar frek-
ari aðgerðir í efnahagsmálum, er
opinber viðurkenning ríkis-
stjórnarinnar á því, að hún ræður
ekki við verkefni sitt. Stefnir í 2
miljarða halla ríkissjóðs 1988,
þar sem 1,2 miljarða hækkun er
vegna vanáætlaðra vaxtaút-
gjalda. Henging í eigin snöru
virðist ætla að verða hlutskipti
ríkisstjórnarinnar.
Borgaraflokkurinn er sammála
því að leita verður allra leiða til
þess að lækka verðlag í landinu
og hemja verðbólguna. Það verð-
ur hins vegar ekki gert með því að
færa niður laun allra launþega
með valdboði. Öllum má vera
ljóst, að niðurfærsla launa mun
aðeins snerta takmarkaðan hóp
launþega. Allar líkur benda til
þess, að þessi hópur verði mun
minni, en Þjóðhagsstofnun gerir
ráð fyrir. Hinir tekjuhærri
sleppa. Samfara niðurfærslu
verðlags mun sá hópur auka
kaupmátt sinnn verulega. Þannig
mun misréttið milli launahópa í
landinu aukast. Undir þetta getur
Borgaraflokkurinn ekki skrifað.
Hins vegar er ljóst, að nú þegar
verður að grípa til markvissra
ráðstafann til þess að rétta við
hlut atvinnuveganna, sem ráð-
leysi og stefnuleysi ríkisstjórnar-
innar hefur komið á vonarvöl.
Hætt er á, að heilu byggðarlögin
leggist í eyði vegna yfirvofandi
hruns atvinnufyrirtækja, og
heimilin í landinu eru að verða
gjaldþrota. Efnahagslegu sjálfs-
stæði þjóðarinnar er stefnt í
voða.
Borgaraflokkurinn varar við
þeim hugmyndum bjargræðis-
nefndar ríkisstjórnarinnar um
ráðstafanir í efnahagsmálum, þar
sem hagsmunir hinna mörgu
víkja fyrir hagsmunum hinna fáu.
Borgaraflokkurinn leggur til
að kjarni þeirra efnahagsráðstaf-
ana, sem gera þarf nú þegar verði
eftirfandi:
1. Matarskatturinn felldur nið-
ur.
2. Lánskjaravísitala verði af-
numin og vextir aðlagaðir að
því, sem gerist í helstu við-
skiptalöndum okkar.
3. Sjálfvirk tenging verðlags við
vísitölur verði ekki heimil.
4. Gripið verði til tafarlausra að-
gerða til að treysta rekstrar-
grundvöll undirstöðuatvinnu-
veganna í landinu, svo komið
verði í veg fyrir atvinnubrest. í
því sambandi verði peninga-
stofnunum gert kleift að beita
víðtækum skuldbreytingum
vegna þess neyðarástands,
sem nú ríkir sökum óstjórnar í
efnahagsmálum og stórauk-
innar skattheimtu hins opin-
bera.
5. Stórátak verði gert til þess að
efla íslenskan samkeppnis-
iðnað og útflutning á íslensku
hugviti og tækniþekkingu,
m.a. með því að tryggja þess-
um aðilum eðlilega sam-
keppnisaðstöðu.
6. Fólíci verði gefinn kostur á
víðtækum skuldbreyingarlán-
um til þess að koma í veg fyrir
fjöldagjaldþrot fjölskyldna og
einstaklinga.
7. Dregið verði úr ríkisútgjöld-
um með samræmdum aðgerð-
um í samstarfi við forsvars-
menn og annað starfsfólk
ríkisstofnana.
8. Skattlagningu á fyrirtæki og
einstaklinga verði stillt í hóf,
þannig að þeir hafi sem mest
af sjálfsaflafé til ráðstöfunar.
9. Samskipti hins opinbera við
einstaklinga og fyrirtæki verði
einfölduð með það í huga að
draga úr óþarfa afskiptum
ríkisvaldsins. Traust undir-
staða þjóðfélagsins byggist á
sjálfstæði einstaklinga og fé-
laga þeirra.
10. Dregið verði úr miðstýring-
unni og völd og verkefni færð
til landshlutanna.
Borgaraflokkurinn er þess
fullviss, að dugnaður, ráðdeild og
þrautseigja íslensku þjóðarinnar
muni enn sem fyrr reynast henni
besta leiðarljósið út úr þeim
ógöngum, sem stefnuleysi ríkis-
stjórnarinnar hefur leitt hana í.
Borgaraflokkurinn leggur því
áherslu á, að þessir eiginleikar
þjóðarinnar fái að njóta sín sem
best í friði fyrir ofstjórn og of-
sköttun.
MINNING
Elías Sveinsson
skipstjóri, Vestmannaeyjum
Fœddur 8. 9. 1910 - Dáinn 13. 7. 1988
Elías Sveinsson var jarðsung-
inn 19. júlí sl. frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum. Hann fæddist
á Gamlahrauni við Eyrarbakka,
sonur hjónanna Sigríðar Þor-
valdsdóttur frá Valiarhjáleigu í
Flóa og Sveins Þórðarsonar frá
Mýrum í Villingaholtshreppi.
Þau hjónin fluttu með börn sín til
Vestmannaeyja árið 1925 og
bjuggu í Varmadal.
Systkini Elíasar voru þau
Helga, fædd árið 1900, giftist
Árna Magnússyni. Þórður, fædd-
ur 1902, kvæntist Elínu Jónsdótt-
ur, og Valdimar, fæddur 1905,
kvæntist Margréti Pétursdóttur.
Þegar til Eyja kom fór Elías að
róa á Enok hjá Þórði Jónssyni frá
Bergi. Eftir að hafa verið þar í
nokkrar vertíðir, hóf hann nám í
vélstjóraskóla og gerðist síðan
vélstjóri á mb. Óðni. For-
mennsku sína hóf hann á
Gulltoppi I. en lengst var hann
með mb. Sjöstjörnuna.
Elías Sveinsson var í hópi
hinna reyndu aflaskipstjóra í
Eyjum sem þekktu vel til miða.
Honum hélst vel á mönnum, góð-
ur andi var ævinlega um borð
enda stutt í ljúft brosið og gaman-
yrðin hjá formanninum.
Mörg sumur fór Elías til sfld-
veiða fyrir norðan land, fyrst á
tvflembingunum Óðni og Ófeigi.
Þeir voru saman um eina nót við
veiðarnar. Síðan var hann nokk-
ur sumur með Sjöstjörnuna með
hringnót.
Árið 1935 giftist Elías eftirlif-
andi konu sinni, Evu L. Þórarins-
dóttur, Bjarnasonar járnsmiðs úr
Reykjavík og konu hans Unu
Jónsdóttur. Börn þeirra eru Sig-
urður Sveinn fæddur 1936,
kvæntur Sigrúnu Þorsteinsdótt-
ur. Þau eiga 3 börn. Una Þórdís
fædd 1938 gift Önundi Krist-
jánssyni, eiga þau 4 börn. Atli
fæddur 1941, kvæntur Elínbjörgu
Þorbjarnardóttur, börn þeirra
eru 3. Sara fædd 1943 gift Birni
Baldurssyni, þeirra börn eru 3.
Sævaldur fæddur 1948, kvæntur
Svanborgu Oddsdóttur, þau eiga
3 börn. Hjalti fæddur 1953
kvæntur Júlíu Andersen.
Þá þrjá mánuði sem jarðeldur-
inn var uppi í Heimaey voru þau
hjón á fastalandinu, en strax og
gosinu lauk voru þau aftur komin
í Varmadal. Hin síðari ár komu
þau oft til landsins. Á björtum
sumardögum óku þau um sveitir
og fundu ættingja og vini.
Á uppvaxtarárum sínum var
Elías í sveit á Baugsstöðum hjá
Helgu móðursystur og Jóni
Magnússyni. Hjá þeim hjónum
ólst upp annað systkinabarn
Helgu, Ólafur Gunnarsson, er
síðar bjó þar og er nú látinn fyrir
fáum árum. Mikið vinfengi var
með þeim frændum og kom Elías
því oft að Baugsstöðum einkum
hin síðari ár. Sá hann þá út yfir
sjóinn og brimið við hraunströnd
bernsku sinnar.
Nú þegar Elías er til moldar
borinn í Eyjum er hún komin þar
öll fjölskyldan sem flutti í Varma-
dal árið 1925.
Samúðarkveðjur,
Sigurður Kr. Árnason
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 8. september 1988