Þjóðviljinn - 08.09.1988, Blaðsíða 16
r"SPURNINGIN
Hefuröu gert ráöstafanir
til að fylgjast meö 01-
ympíuleikunum í Sjón-
varpinu seinna í mánuö-
inum?
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
C040^0
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Helga ingólfsdóttir,
húsmóðir:
Nei, ég hef ekkert pælt í því sjálf,
en elsti og yngsti sonurinn eru
allir í íþróttunum svo að það verð-
ur eflaust mikið horft.
Kristinn Kristjánsson,
afgreiðslumaður:
Nei, enda á ég ekki svo gott með
að koma því við, þar sem ég vinn
vaktavinnu.
Sigrihrósandi sýna þær Ragnheiður Þorláksdóttir og Camilla Söder- lóðina Aðalstræti 8. Þær voru í hópi níu íbúa Grjótaþorps, er rituðu
berg úrskurð félagsmálaráðherra um ógildingu byggingarleyfis fyrir undir kæruna fyrir rúmum tveim mánuðum. Mynd: Jim.
Aðalstrœti 8
Framkvæmdir stöðvaðar
Ragnheiður Þorláksdóttir: Mikill sigurfyrir íbúana. Ekki nœg
breyting að fjölga bara íbúðum. Gunnar H. Gunnarsson: Ekkistaðið
steinn yfir steini í Kvosarskipulaginu efráðherra hefði staðfest
byggingarleyfið
Sigurður Hróarsson,
leikhúsritari:
Það fer nú ekki mikið fyrir því, en
á hinn bóginn er ég svo heppinn
að hafa nokkuð frjálsan vinnu-
tíma og kem til með að nýta mér
það.
Elías Kárason,
bifreiðastjóri:
Það verður að minnsta kosti ekk-
ert næturgláp. Ég nenni ekki að
horfa mikið á sjónvarp svona yfir-
leitt, hvað þá um miðjar nætur.
Atli Þór Sigurjónsson,
nemi:
Ég reyni að ná sem mestu, en ég
er í skóla á morgnana svo að ég
glápi nú ekkert fram á nótt.
Síðdegis í gær mættu Gunnar
Sigurðsson, byggingarfulltrúi
Reykjavíkurborgar, og Hilmar
Guðlaugsson, formaður bygging-
arnefndar, á lóðina Aðalstræti 8
með tilskipun um að byggingar-
framkvæmdir þar skyldu tafar-
laust stöðvaðar. Vinna var í full-
um gangi þrátt fyrir að Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra hefði fellt byggingarleyfíð
úr gildi deginum áður.
Að sögn Ragnheiðar Þorláks-
dóttur, sem situr í stjórn íbúa-
samtaka Grjótaþorps, ræddi einn
íbúanna sem kærðu byggingar-
leyfið við verkstjóra á lóðinni í
gærmorgun. Fékk hann þau svör
að þeir tækju ekki mark á ein-
hverri konu í bæ, heldur borgar-
yfirvöldum sem veitt hefðu
leyfið.
Ragnheiður sagði að úrskurð-
urinn væri mjög mikill sigur fyrir
íbúana og sýndi að eitthvað þýddi
fyrir borgarana að bera fram
mótmæli. Mest um vert í þessu
máli væri að fólk gæti treyst því
að samþykkt skipulag væri hald-
ið, svo að íbúarnir þyrftu ekki
stöðugt að vera á varðbergi
gagnvart nýjum framkvæmdum.
Deiliskipulag að Kvosinni var
samþykkt í borgarstjórn Reykja-
víkur í október á síðasta ári og
staðfest af félagsmálaráðherra í
febrúar. í úrskurði félagsmála-
ráðherra segir að nýtingarhlutfall
á lóðinni sé 16% hærra en í deili-
skipulaginu, eða 3,5 í stað 3,02,
og er helmingur af flatarmáli bfl-
ageymslna undir húsinu dreginn
frá við útreikninginn. Ráðuneyt-
ið getur heldur ekki fallist á að
óformlegir minnispunktar frá
Borgarskipulagi Reykjavíkur feli
í sér fyrirvara um breytta land-
notkun samkvæmt skipulagstil-
lögum. í þeim áttu íbúðir að vera
í stærstum hluta húsanna tveggja
á lóðinni, en í byggingarleyfinu er
samþykkt að 2% fari undir íbúðir
og 98% undir verslun og þjón-
ustu. í samþykktum teikningum
að húsunum brýtur það einnig í
bága við deiliskipulag, að húsin 2
sem sýnd voru stakstæð eru nú
tengd með 5 hæða byggingu.
Sama dag og Jóhanna Sigurð-
ardóttir felldi byggingarleyfíð úr
gildi var samþykkt í borgarráði
beiðni frá Byggðaverki, sem
keypti lóðina og byggir húsin, um
að í aftara húsið kæmu 9 íbúðir í
stað skrifstofa. Beiðnin var einn-
ig samþykkt í skipulagsnefnd og
kemur til kasta byggingarnefndar
í dag.
Rúnar Björnsson hjá Byggða-
verki sagði við Þjóðviljann að
þeir hefðu viljað koma til móts
við kröfu íbúanna með þessu og
teldu sig nú fara alveg eftir Kvos-
arskipulaginu. Ragnheiður Þor-
láksdóttir var ekki sammála því
að nóg væri að fjölga íbúðum.
Ráðherra hefði úrskurðað um
fleiri atriði sem lagfæra þyrfti.
Um tengibygginguna sagði
Rúnar, að hér væri um að ræða
enn einn misskilninginn hjá ráð-
herra. - Þetta eru tvö hús, bara
nýtt sameiginlegt stigahús komið
á milli.
Rúnar nefndi einnig að þeim
hefði ekkert þótt óhagkvæmari
kostur að hafa líka íbúðir í hús-
inu. Menn sem þekkja til innan
byggingariðnaðarins hafa í þessu
sambandi bent á að breyting yfír í
íbúðir sé ekki undarleg, þegar
litið er til þess að botninn hefur
verið að detta úr eftirspurn eftir
skrifstofu- og verslunarhúsnæði.
Það sé hins vegar kátbroslegt, að
íhaldið væri margbúið að brjóta
eigin skipulagssamþykktir til að
veita fyrirgreiðslu, sem með
breyttum vindum er orðin óþörf.
Fulltrúi Alþýðubandalagsins í
byggingarnefnd borgarinnar,
Gunnar H. Gunnarsson, sagði að
ef félagsmálaráðherra hefði stað-
fest byggingarleyfi meirihlutans í
borgarsíjórn hefði ekki staðið
steinn yfir steini í Kvosarskipu-
laginu; deiliskipulagi sem meiri-
hlutinn hefði sjálfur samþykkt
rúmu hálfu ári áður.
Honum þóttu undarleg um-
mæli Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra, um að ráðherra væri með
úrskurðinum að skerða sjálfs-
ákvörðunarrétt sveitarfélaga.
Samkvæmt byggingarlögum ættu
borgararnir rétt á að kæra bygg-
ingarleyfí og hefði Sjálfstæðis-
flokkurinn tekið fullan þátt í að
afgreiða þau lög.
Eins og sagði í upphafi voru
framkvæmdir stöðvaðar í gær og
sagði Rúnar Bjömsson hjá
Byggðaverki, að það væri alfarið
mál Reykjavíkurborgar. Borgin
fengi skaðabótaskellinn, því hér
væru miklir fjámunir í húfí. Menn
í vinnu væru ekki sendir heim
fyrir ekki neitt og nú þegar væri
búið að eyða 10 miljónum í grunn
og bflageymslur.
mj