Þjóðviljinn - 10.09.1988, Side 7
Þríeykið
Fljúgandi
sljómar-
myndun
Formenn
stjórnarflokkannafljúga
til Stykkishólms.
Þorsteinn svíkurJón
Baldvin. Gremja í
Alþýðuflokki og
Framsóknarflokki.
Flokksráð Alþýðuflokks
kemur saman
Formenn stjórnarflokkanna
flugu í gærmorgun með flugvél
Flugmálastjórnar til Stykkis-
hólms á fund fulltrúa fiskvinnslu-
fyrirtækja í rekstrarerfiðleikum.
Ummæli Þorsteins Pálssonar for-
sætisráðherra um meintar stjórn-
armyndunarviðræður Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks við
aðra flokka hafa vakið mikla
gremju innan flokkanna. Þá ríkir
mikil gremja innan Alþýðuflok-
ksins vegna þeirra ummæla Þor-
steins að Jón Baldvin Hannibals-
son formaður Alþýðuflokksins
hafi sprengt viðræðurnar við
Janifwv i.w._
viljans bað forsætisráðherra Jón
Baldvin að setja fram aðra leið á
fundi ríkisstjórnarinnar með
miðstjórn ASI á mánudag, ef Ás-
mundur Stefánsson forseti ASÍ
og fylgdarlið hans gleyptu ekki
við útfærslu forsætisráðherra á
niðurfærsluleiðinni. Eftir að
slitnaði upp úr viðræðunum kom
Þorsteinn síðan fram í fjölmiðl-
um og sagði Jón Baldvin hafa
sprengt viðræðurnar með þessum
hætti. Þessi framkoma hefur vak-
ið mikla gremju á meðal Alþýðu-
flokksmanna.
Ummæli Þorsteins um hálf-
velgju samstarfsflokkanna í
stjórnarsamstarfinu hafa ekki
síður farið fyrir brjóstið á Fram-
sóknarmönnum. Þeir Framsókn-
armenn sem Þjóðviljinn ræddi
við í gær sögðust ekki bjartsýnir á
líf stjórnarinnar. Ef Þorsteinn
ætlaði að halda uppteknum hætti
og mæta með hálfkaraðar hug-
myndir væri þessu lokið. Á þetta
reyndi á ríkisstjórnarfundi næsta
þriðjudag.
Sigurður Geirdal fram-
kvæmdastjóri Framsóknar-
flokksins sagðist standa við fyrri
yfirlýsingar; næsti mánudagur
yrði vendipunkturinn.
Ákveðið hefur verið að flokks-
ráð Alþýðuflokksins komi saman
til fundar á morgun. -hmp
Alþýðubandalagið
Þingflokks-
fundur
á þriöjudag
Steingrímur J. Sigfússon þing-
flokksformaður Alþýðubanda-
lagsins segir þingflokkinn ætla að
funda á þriðjudag og þar muni
þingmenn fara yfir ástandið í
stjórn- og efnahagsmálum.
„Við höfum fylgst með því
hvernig þetta stjórnarsamstarf er
að leysast upp innan frá,“ sagði
Steingrímur í samtali við Þjóð-
viljann. Þingmenn Alþýðu-
bandalagsins væru við öllu búnir
og stefna Alþýðubandalagsins
lægi hrein fyrir. Steingrímur
sagði engan geta sagt fyrir um
hvað gerðist næstu sólarhringa.
„Maður bíður nánast eftir því að
formenn stjórnarflokkanna fari
að takast á líkamlega í fjölmiðl-
um,“ sagði Steingrímur. „Þá yrði
ástandið í stjórninni
fullkomnað.!" -hmp
FRÉTTIR
Alþýðubandalagið
Kosningar tafarlaust
Ólafur Ragnar Grímsson: Ríkisstjórnin er komin ílíkhúsið. Tilbúnir
að kanna stuðning annarraflokka við okkar efnahagstillögur
Rflusstjórnin er búin að vera á
gjörgæsludeildinni allt þetta
ár. Núna virðist hún vera komin í
iíkhúsið. Það er hins vegar spurn-
ing hvort forsætisráðherra eða
formenn hinna stjórnar-
flokkanna hafa getu til að gefa út
hið formlega dánarvottorð, segir
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins.
Ólafur segir að uppgjöf ríkis-
stjórnarinnar feli í sér pólitískt
skipbrot þeirrar frjálshyggju-
kreddu í peninga- og efna-
hagsmálum sem síðasta ríkis-
stjórn og þessi hafa fylgt. Það sé
kannski skiljanlegt að það taki
Þorstein Pálsson tíma að viður-
kenna þá nöpru staðreynd að
hjálpræðiskenning frjálshyggju-
liðsins gengur ekki í íslensku
þjóðfélagi.
- Alþýðubandalagið hefur í
marga mánuði krafist þess að
ríkisstjórnin fari frá. Við höfðum
forystu um það sl. vor að stjórn-
arandstaðan flutti vantrauststil-
lögu á stjórnina og hver einasta
margsannáð'ð Jtfiíwr ,í'fym Jiefur
löguflutnings. Fiskvinnslukon-
urnar hjá Meitlinum í Þorláks-
höfn sögðu við okkur Margréti
Frímannsdóttur að það væri orð-
in þjóðarnauðsyn og brýnt
hagsmunamál fyrir launafólkið
og atvinnulífið í landinu, að ráð-
herrarnir hefðu manndóm til að
segja strax af sér, segir Ólafur
Ragnar.
Engar þreifingar
í gangi
Hefur þú átt í viðrœðum við for-
ystumenn einstakra stjórnarflokka
um myndun nýrrar ríkisstjórnar
með aðild eða stuðningi Alþýðu-
bandalagsins?
- Það eru engar þreifingar í
gangi um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar. Föstudagsafkvæmi Al-
þýðublaðsins sagði frá því á for-
síðu í síðustu viku að karlmaður
vildi láta breyta sér í konu og í
blaðinu í gær segir að ég hafi um
morguninn daginn áður, þegar ég
var að ræða við fiskvinnslufólkið í
Þorlákshöfn, setið á viðræðu-
fundi með Steingrími Hermanns-
syni um að mynda ríkisstjórn þar
sem Halldór Ásgrímsson ætti að
vera forsætisráðherra. Ég held að
manninn 'sém Viiar'toi’éyta bor1-.
konu sé áreiðanlegri en þessi sem
birtist í dag.
Eru þá engar þreifingar í gangi
um aðild Alþýðubandalagsins að
nýrri ríkisstjórn?
- Nei, það hafa engar slíkar
þreifingar átt sér stað. Alþýðu-
bandalagið hefur mótað sínar af-
dráttarlausu tillögur um hvað eigi
að gera í efnahagsmálum þjóðar-
innar. Þær tillögur lýsa því nák-
væmlega hvernig á að færa niður
vexti í landinu, lækka verðlag og
ýmsa kostnaðarliði útflutnings-
greinanna og sækja síðan fjár-
magn til hinnar skattlausu nýríku
sjéttar.0fiármagnseigenda til að
útflutningsgreinanna.
Þessar tillögur eru klárar og við
erum reiðubúin að fara með þær í
kosningar hvenær sem er og
leggja þær til grundvallar um
myndun nýrrar ríkisstjórnar hve-
nær sem er.
Átti að kjósa
þegar í sumar
Þið eruð þá ekki til viðrœðu án
kosninga?
- Eins og ég hef sagt síðustu
þrjá mánuði þá er það skoðun
okkar að það eigi að efna tafar-
laust til kosninga. Ef orðið hefði
verið við þeirri ósk okkar fyrir
tveimur eða þremur mánuðum,
þá væri þeim nú lokið og ný stjórn
tekin til starfa. Það hefði tekið
skemmri tíma en þetta þóf ríkis-
stjórnarinnar sl. tvo mánuði.
Ef það er aftur á móti ekki
þingmeirihluti fyrir því að efna til
kosninga, þá er okkur ekkert að
vanbúnaði að kanna afstöðu og
hugsanlegan stuðning annarra
flokka við þær tillögur sem Al-
þýðubandlagið hefur sett fram.
Hvaðgerist nœstu daga? - Ég
ætla að vona að ríkistjórnin biðj-
ist lausnar hið fyrsta. Það væri
þjóðinni'tyfir bes’tursegtl'xyiartíi
Ragnar Grímsson.
-Ig-
Kristín Halldórsdóttir
Þjóðin vill kosningar
Efmenn geta ekki komið sér saman um nokkurn hlut eiga þeir ekki að
sitja saman ístjórn. Þjóðin þolir ekki þetta ástand
Kristín Halldórsdóttir þing-
maður Kvcnnalistans segir að
ef menn geti ekki komið sér sam-
an um nokkurn hlut séu þeir ekki
að stjórna, heldur rífast fyrir
opnum tjöldum. Hún segir slíka
hegðun ábyrgðarlausa og hættu-
lega þar sem fólk sé að verða leitt
á þessu og grafíð sé undan trausti
á stjórnmálamenn almennt.
Kristín segir að ekki hafi verið
leitað til Kvennalistans til að leysa
einhvern flokk af í stjórninni,
enda styddi Kvennalistinn ekki
nýtt stjórnarmynstur án kosn-
inga.
„Það er morgunljóst að þetta
ástand má ekki halda svona
áfram,“ sagði Kristín í samtali við
Þjóðviljann. Alvarlegast væri að
með háttaiagi sínu, störfum og
vandræðagangi væru ráðherrarn-
ir ábyrgir fyrir hálfgerðu upp-
lausnarástandi í þjóðfélaginu.
Óöryggi og kvíði hefði mjög nei-
kvæðar afleiðingar á efnahags- og
atvinnulíf svo og á önnur svið
þjóðfélagsins. Mikið væri talað
um hræðilegt ástand og það
kannski málað sterkari litum en
ástæði væri til. Mikilvægt væri að
bæta ástandið en óþarfi að mála
skrattann á vegginn, það tæki ör-
yggið frá fólki.
Kristín sagði slæmt ef fólk
kæmist almennt á þá skoðun „að
svona væru nú stjórnmálin einu
sinni“. Um þær yfirlýsingar
stjórnarherranna að þjóðin þyldi
ekki kosningar núna, sagði
Kristín: „Mér heyrist þjóðin vilja
kosningar, hún þolir ekki þetta
ástand.“ Hún sagði að annað-
hvort ættu ráðherrarnir að
stjórna saman eða hætta þessu.
Það væru allir komnir á þá
skoðun að þeir gætu aldrei komið
sér saman og þess vegna væri best
að boða til kosninga og sjá hverj-
um þjóðin treysti til breytinga.
-hmp
Albert Guðmundsson
Rfldsstjóm ráðheirastóla
Ríkisstjórn hefur í raun aldrei verið mynduð. Þjóðinnifyrir bestu að
stjórnarmyndunarviðrœðumljúki
Albert Guðmundsson sagði
Þjóðviljanum að hann hefði
alla tíð verið þeirrar skoðunar að
það væri engin ríkisstjórn í
landinu, hún hefði aldrei verið
mynduð. Ríkisstjórn Þorsteins
Pálssonar væri stjórn ráðherra-
stóla og þess vegna gæti hún setið
lengi enn. Það væri hins vegar
þjóðinni og ráðherrunum sjálfum
fyrir bestu að þessum stjórnar-
myndunarviðræðum færi að
Ijúka.
Albert sagði enga flokka hafa
farið á fjörurnar við Borgara-
flokkinn, hvorki stjórnarflokka
né stjórnarandstöðuflokkar. Ást-
andið sem nú ríkti væri enn ein
sönnun þess að Þorsteinn Pálsson
væri ekki maður til að standa
undir því að vera forsætisráð-
herra. „Hvar eru aðgerðir þessar-
ar stjórnar?" spurði Albert.
Hann sagði þær allar vera í and-
stöðu við stjórnarsáttmálann.
„Það stendur ekkert að morgni
sem Þorsteinn segir að kveldi,"
sagði Albert. Stjórnin sækti hug-
myndir út í bæ, til forstjóranefnd-
ar. Þorsteinn kynnti hugmyndir
um niðurfærsluleiðina og sækti
síðan ákvarðanir til verkalýðs-
hreyfingarinnar þar sem hann
gæti ekki tekið þær sjálfur. For-
sætisráðherrann hafnaði eigin
leiðum og hin raunverulegu
vandamál féllu í skugga erja og
deilna ráðherranna innbyrðis.
-hmp
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7