Þjóðviljinn - 10.09.1988, Qupperneq 8
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fjölskyldudeild
Fósturheimili óskast fyrir 10 ára heimilislausan
dreng.
Æskilegt er aö heimilið sé í Reykjavík eða ná-
grenni, en það er ekki skilyrði.
Fósturheimilið þarf að hafa reynslu af börnum,
vera barnlaust, eða eingöngu unglingar á heimil-
inu.
Nánari upplýsingar gefur Áslaug Ólafsdóttir fél-
agsráðgjafi í síma 685911 milli kl. 9 -12 alla virka
daga.
Vatnsveita Reykjavíkur
Tækniteiknari
Vatnsveita Reykjavíkur óskar að ráða tækni-
teiknara nú þegar.
Upplýsingar veitir Jón G. Óskarsson í síma
685477.
REYKJMJÍKURBORG
Aautevi Sfödcci
Lausertil umsóknar 23.10% staða sérfræðings í
kvensjúkdómum við mæðradeildina.
Staðan veitist frá 1. nóvember 1988.
Upplýsingar um starfið veitir yfirlæknir deildar-
innar í síma 22400.
Umsóknum skal skilatil skrifstofu Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur fyrir 15. október n.k.
Ósamlyndið á stjórnar-
heimilinu hefur breyst úr
venjubundnu naggi og nöldri í
þvílíkt hávaðarifrildi síðustu
dagana að fordæmi slíks fyrir-
finnast ekki. Að vonum er því
ekki um annað meira rætt
manna á meðal en hvort
stjórninni takist að lafa áfram,
og myndi slík pólitísk fram-
haldstilvera sæta tíðindum,
þar sem það væri í fyrsta skipti
sem einhver vinnur sitt
dauðastríð.
Og hvaða efnahagsráðstaf-
ana grípur stjórnin til ef hún
þá lafir á annað borð? Tíð-
indamenn Þjóðviljans tóku
fólk tali í gær, á vinnustöðum
sem og á förnum vegi, og
leituðu álits á þessum helstu
hitamálum. Viðbrögðin fara
hér á eftir, og verður ekki
annað sagt en að þau séu mjög
á sömu lund, þar sem mest ber
á kvíða og ótta fólks við það
sem næstu vikur og mánuðir
bera í skauti sér.
Mér líst ekkert æðislcga vel á
þetta; það er eins og það séu alltaf
einhverjar uppákomur í efna-
hagsmálunum í landinu og aldrei
neitt hugsað til enda þegar á að
fara að takast á við þær. Það er
alltaf eitthvert rugl og bráða-
birgðalausnir sem koma upp á,
eins og til dæmis þessi niður-
færsluleið núna síðast, en hún er
alveg ógeðslega vitlaus, sagði íris
Óttarsdóttir Verslunarskólanemi,
þar sem hún var á gangi með
vinkonum sínum núna í upphafi
skólaárs.
Mér finnst líka barnalegt
hvernig þessir kallar rífast og
setja hver út á annan. Það er
greinilegt að samstarfið í ríkis-
stjórninni er vont, sagði íris: ég
held að það væri gott að losna við
þessa ríkisstjórn, eða að minnsta
kosti breyta henni.
Hún sagðist þó ekki hafa neina
sérstaka trú á einhverjum
stjórnmálaflokki umfram aðra:
Að minnsta kosti ekki neinum
sem er til núna, sagði hún.
ffl REYKJMÍÍKURBORG gf1
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar eftir starfsfólki við heilsugæslustöðvar í
Reykjavík sem hér segir:
HEILSUGÆSLUSTÖÐ HLÍÐASVÆÐIS
Sjúkraliði í 50% starf.
HEILSUGÆSLUSTÖÐ MIÐBÆJAR
Læknaritari/læknafulltrúi í 50% starf.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu fram-
kvæmdastjóra heilsugæslustöðva í síma 22400.
Umsóknir skulu sendar Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur, á eyðublöðum sem þar fást, fyrir kl.
16.00 mánudaginn 19. september 1988
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLÁÐRA
VESTFJÖRÐUM
Þroskaþjálfar
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á Vestfjörðum
auglýsir eftir þroskaþjálfum við þjónustumiðstöð-
ina Bræðratungu ísafirði frá hausti eða eftir nán-
ara samkomulagi. Aðstoð við útvegun húsnæðis.
Nánari upplýsingar gefa forstöðumaður Bræðr-
atungu, Erna Guðmundsdóttir í síma 94-3290 og
framkvæmdastjóri Svæðisstjórnar í síma 94-
3224. Umsóknir óskast sendar til sömu aðila.
Trausti Harðarson verkamaður:
Kosningabomban ósmíðuð
Auðvitað eru vandamál til
staðar, en þau eru tilbúningur
þessara manna; þetta er engin
stjórn. Eftir því sem góðærið er
meira, þeim mun meiri verður
hallareksturinn á ríkissjóði. Eg er
hræddur um að það gengi ekki í
öðrum fyrirtækjum, sagði
Trausti Harðarson verkamaður,
en hann hittum við í verkfæra-
skúr í nýja miðbænum.
Trausti var spurður hvort hon-
um þætti sem þras og upphlaup
innan ríkisstjórnar slægi öll met
nú þessa dagana, en hann svaraði
því til að það væri ekki svo langt
síðan hér fóru að koma ríkis-
stjórnir þar sem meira jafnræði
væri með flokkunum en áður var;
á viðreisnarárunum bar Sjálf-
stæðisflokkurinn höfuð og herðar
yfir Alþýðuflokkinn, og því hafið
yfir vafa að hann hefði töglin og
hagldirnar. Núna í seinni tíð er
meira jafnræði með ríkisstjórn-
arflokkunum og frekjan þá kann-
ski meiri, sagði hann.
En ég þori ekkert að segja til
um það hvort það verður kosið á
næstunni, sagði Trausti og sagðist
ekki sjá að neinn yrði bættari
með það. En eins og staðan er
akkúrat núna sé ég ekki að það
verði kosið alveg í hvelli; það er
nefnilega ekki búið að smíða
kosningabombuna, og því ekkert
til að slást um.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. september 1988