Þjóðviljinn - 10.09.1988, Blaðsíða 11
IÞROTTIR
y, Handbolti
Tvisyn generalprufa
íslendingar náðu aðeins jafntefli gegn Dönum ísíðasta leik
sínumfyrir ólympíuleika
Það er varla hægt að hrósa ís-
lenska handboltalandsliðinu fyrir
frammistöðu sína í landsleikjun-
um við Dani. Fyrri leikurinn
vannst með einu marki og í gær
gerðu þjóðirnar jafntefli, 18-18,
og voru Danir heldur nær sigri í
leiknum.
Það sem virtist einkenna leik
íslendinga í leiknum í gærkvöld
var baráttuleysi á köflum, enda
kannski ekki mikið í húfi, og
vantaði alveg þann vilja sem þarf
til að sigra Danina með svona 5-6
mörkum sem ættu að vera eðlileg
úrslit.
Jafnt var í leikhléi, 9-9, en ís-
lendingar náðu strax forystunni,
11-9. Danirnar jöfnuðu jafn
harðan og náðu síðan þriggja
marka forystu, 13-16 og 15-18, og
útlitið ekki gott. Þá var eins og
strákarnir áttuðu sig fyrst á því að
Danirnir eru alls ekki auðunnir
og jöfnuðu, 18-18. Danirnir
héldu boltanum síðustu mínút-
urnar og endaði leikurinn á auka-
kasti þeirra sem rann út í sand-
inn.
Þetta var síðasti leikur lands-
liðsins áður en það heldur til Seo-
ul og því varla nógu góð gener-
alprufa. Liðið leikur að vísu við
A-Þjóðverja áður en keppnin
hefst en þeir eru í hinum riðlinum
á leikunum.
Kristján Arason var atkvæða-
mestur íslendinga og skoraði 5/3
mörk, Bjarki skoraði 4, Alfreð 3,
Jakob Sigurðsson 2, Þorgils Óttar
Mathiesen 2, Atli Hilmarsson 1 ________________________
og Geir Sveinsson 1. Kristján Arason hefur skorað manna mest í leikjunum tveimur gegn
-þóm Dönum, en í gær skoraði hann fimm sinnum.
BRIDGE
Hverjir verða bikarmeistarar?
Undanúrslit Bikarkeppni
Bridgesambands íslands verða
spiluð á Loftleiðum í dag. Spila-
mennska hefst kl. 10.00 árdegis
og verða spiluð 48 spil. Sveit
Braga Haukssonar Reykjavík
mætir sveit Kristjáns Guðjóns-
sonar Akureyri og sveit modern
Iceland mætir sveit Pólaris
Reykjavík. Sigursveitirnar mæt-
ast síðan á morgun, í hreinum
úrslitaleik, 64 spil. Spilamennska
hefst þá einnig kl. 10.00
Leikirnir verða sýndir á sýn-
ingartöflu, bæði í dag og á morg-
un, með skýringum. Ahugafólk
um bridge á höfuðborgarsvæðinu
er hvatt til að láta þessa úrslita-
keppni ekki fara framhjá sér.
Jón Þorvarðarson og Guðni
Sigurbjamason urðu ömggir sig-
urvegarar á Opna afmælismótinu
á Siglufirði um síðustu helgi.
54 pör tóku þátt í mótinu, sem
spilað var eftir Mitchell-
fyrirkomulagi, þrjár umferðir.
Mótið tókst vel, undir ömggri
stjórn Hermanns Lárussonar.
Þetta er fyrsti sigur þeirra Jóns
og Guðna í sterkri tvímennings-
keppni, og einkar ánægjulegt
fyrir þá félaga (þeir spila í sveit
modem Iceland í upphafi vetrar-
spilamennsku. Augu landsliðs-
einvaldsins hljóta að fara að
beinast að þeim félögum með
sama áframhaldi.
Skráning í Opna Stórmótið á
Hótel Örk, sem spilað verður
helgina 1.-2. október, hefur farið
vel af stað. Tæplega 30 pör em
þegar skráð til leiks, skráð er á
skrifstofu BSÍ (Ólafur).
Vetrarspilamennska félaganna
á höfuðborgarsvæðinu er víðast
að hefjast þessa dagana. BR er
með eins kvölds keppni næsta
miðvikudag, einnig Skagfirðing-
ar á þriðjudaginn í Drangey v/
Síðumúla og væntanlega
Breiðfirðingar á fimmtudaginn.
Breiðhyltingar með sama á
þriðjudaginn í Gerðuberg og
Kópavogur á fimmtudaginn.
Sumarbridge lauk sl. fimmtudag,
eftir gott sumar. Sveinn Sigurg-
eirsson varð ömggur sigurvegari í
heildarstigakeppni spilara. Með-
alþátttaka á viku var um 90 pör.
Hermann Sigurðsson og Jó-
hannes Oddur Bjarnason urðu
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Vestfjarðameistarar í tvímenn-
ingskeppni um síðustu helgi.
Keppnin var spiluð að Laugar-
hóli í Bjarnarfirði og tóku 27 pör
þátt í keppninni. Bikarmeistari
Vestfjarða varð sveit Málningar-
lagersins frá Bolungarvík. Sveitin
sigraði sveit Guðmundar M.
Jónssonar frá ísafirði í úrslita-
leik. í sigursveitinni em: Guð-
mundur Þorkelsson, Júlíus Sigur-
jónsson, Jón H. Gunnarsson og
Jóhann Ævarsson.
Undirbúningur fyrir afmælis-
mót Bridgesambands íslands,
sem spilað verður á Loftleiðum
helgina 24.-25. september nk.,
gengur vel. 20-22 pör munu taka
þátt í mótinu, valin af Sigurði B.
Þorsteinssyni og Þórarni Sófus-
syni.
Opna Egilsstaðamótið á Hótel
Valaskjálf hófst í gærkvöldi. Um
30m pör voru skráð til leiks.
Keppnisstjóri er ísak Örn Sig-
urðsson.
Ársþing Bridgesambands fs-
lands verður haldið laugardaginn
5. nóvember í Sigtúni. Fyrir þann
tíma eiga öll félög að hafa gert
upp reikningana við Bridgesam-
bandið. Þeir fyrirliðar sem enn
eiga eftir að greiða þátttökugjald
fyrir Bikarkeppni 1988, eru vin-
samlega beðnir um að láta verða
af því hið snarasta, vilji þeir ekki
lenda í keppnisbanni í mótum á
vegum sambandsins.
Árangur yngra landsliðsins á
Evrópumótinu í kjölfarið á afar
slökum árangri sama liðs á síð-
asta Norðurlandamóti, sem hald-
ið var hér heima, vekur upp þær
spurningar hvort ekki sé tíma-
bært að huga að breyttum áhersl-
um í þessum málaflokki. Til að
mynda, að senda þessa „vand-
ræðagemsa“ á æfingabúðir Evr-
ópusambandsins (sem verða í
Póllandi næsta sumar....) í stað
þess að eltast við stórmótin, til
þess eins að vera með.
Bridgefélag Reykjavíkur hefur
fært Bridgesambandinu ljósrit-
unarvél að gjöf, til styrktar starf-
semi sambandsins að Sigtúni 9.
Einnig samþykkti ný stjórn B.R.
að styðja við Guðmundarsjóðinn
með myndarlegri peningaupp-
hæð. Stjórn Bridgefélags kvenna
ákvað einnig að styðja við bakið á
Guðmundarsjóðnum með
rausnarlegri peningaupphæð. Er
þessum tveimur félögum þakkað
framlag þeirra.
Heiðurslaun
Brunabótafélags
íslands
1989
í tilefni af 65 ára afmæli Brunabótafé-
lags íslands, 1. janúar 1982, stofnaði
stjórn félagsins til stöðugildis hjá fé-
laginu til þess að gefa einstaklingum
kost á að sinna sérstökum verkefnum
til hags og heilla fyrir íslenskt samfélag
hvort sem er á sviði lista, vísinda,
menningar, íþrótta eða atvinnulífs.
Nefnast starfslaun þess, sem ráðinn
er:
HEIÐURSLAUN BRUNA-
BÓTAFÉLAGS ÍSLANDS
Stjórn B.í. veitir heiðurslaun þessi
samkvæmt sérstökum reglum og eftir
umsóknum. Reglurnar fást á aðalskrif-
stofu B.í. að Laugavegi 103 í Reykja-
vík.
Þeir, sem óska að koma til greina við
ráðningu í stöðuna á árinu 1989 (að
hluta eða allt árið), þurfa að skila um-
sóknum til stjórnar félagsins fyrir 1.
október 1988.
Brunabótafélag íslands
||| DAGVIST BARIVA
Fóstrur, þroskaþjálfar,
áhugasamt starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir há-
degi. Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna
dagvistarheimila, og skrifstofa Dagvistar barna,
sími 27277.
Vesturbær - miðbær
Njálsborg Njálsgötu 9 14860
Nóaborg Stangarholti 11 29595
Valhöll Suðurgötu 39 19619
Vesturborg Hagamel 22438
Ægisborg Ægisíðu 104 14810
Drafnarborg v/Drafnarstíg 23727
Austurbær
Stakkaborg Bólstaðarhlíð 48 39070
Laugardagur 10. september 1988 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 11