Þjóðviljinn - 10.09.1988, Qupperneq 12
Viðtal við Pétur Björnsson
„Þetta er ekki gott tilboð fyrir
þann sem á Ávöxtunarbréf að
selja þau á þessum kjörum,“
sagði Pétur Björnsson, annar
eigandi Ávöxtunar sf., þegar
blaðamaður bar undir hann
auglýsingu sem birtist í einu dag-
blaðanna, þar sem boðist var til
að kaupa Ávöxtunarbréf á 25%
af síðast skráðu gengi. „Ef menn
hugsa dæmið finnst mér þetta of
mikil afföll, því ég á von á því að
þeir menn sem í skilanefndinni
sitja skili mjög góðri vinnu og það
verði ekki nema eðlileg afföll. Það
er ekki gott að segja hver þau eru,
kannski 10-15 miljónir af 380
miljónum. Það eiga ekki að tapast
nein 25-40%, en það fer auðvitað
eftir því hvernig farið er með
þctta, eftir ákveðinn tíma sést
hvað er gott og hvað ekki. Það
sem er erfíð krafa í dag, getur
orðið góð krafa seinna.“
Staðið við samninga
En nú hafið þið einnig lánað fé
til mislangs tíma, verður það allt
innheimt núna til að fá peninga
inn í sjóðinn?
„Lánstími hefur veriö allt frá
einum mánuði upp í 10 ár, þetta
eru reyndar ekki lán, heldur kröf-
ur, skuldakröfur og annað. Við
höfum yfirleitt ekki farið út í bein
lán. En auðvitað halda allir
samningar, þannig að „lán“ til 10
ára á ekki að greiðast núna, held-
ur eins og samið var um. Ég
treysti því að staðið verði við
samninga, enda gengur ekki ann-
að.“
Veiki hlekkurinn?
Forráðamenn annarra verð-
bréfasjóða voru fljótir til að benda
á ykkur sem veika hlekkinn á
verðbréfamarkaðnum eftir að
þetta mál kom upp, og töláu mark-
aðinn hafa styrkst. Hvaðfinnst þér
um þessar yfirlýsingar?
„Maður er náttúrlega ekkert
ánægður með það út af fyrir sig,
en kannski maður hafi verið bú-
inn að fá einhvern stimpil, ég veit
ekki. Ég áttaði mig ekki á að það
væri átt við okkur á sínum tíma.
En kjaftasagan gekk um okkur
og við vorum í rekstri. Það er
auðvelt að leiða líkur að því að
við, sem þurftum að borga kann-
ski 200-300 miljónir króna í laun í
fyrirtækjunum værum veikir
fyrir. En fyrirtækin voru ekki
nógu stöndug til að geta verið
bakhjarlar okkar.“
Fyrirtæki
upp í skuldir
En af hverju voruðþið að kaupa
illa stœð fyrirtœki, nema að það
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
Starfsfólk óskast
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar að ráða starfs-
menn í eftirtalin störf:
Loftlínulagnir/götuljós. Óskað er eftir rafvirkj-
um eða línumönnum.
Gagnavinnsla. Óskað er eftir starfsmanni með
reynslu við tölvuvinnslu.
Bókhald. Óskað er eftir starfsmanni í bókhald
með bókhaldsþekkingu.
Aðstoðargjaldkeri. Óskað er eftir starfsmanni
með reynslu í skrifstofustörfum.
Birgðavörður. Óskað er eftir starfsmanni með
rafvirkjamenntun.
Rafmagnseftirlit. Krafist er menntunar rafiðn-
fræðinga.
Rafmagnsveita Reykjavíkur býður upp á gott
starfsumhverfi í tæknivæddu fyrirtæki. Mötuneyti
á staðnum.
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til 19.
sept. nk. og ber að skila umsóknum til starfs-
mannastjóra á þar til gerðum eyðublöðum sem
fást á skrifstofu Rafmagnsveitunnar að Suður-
landsbraut 34.
Upplýsingar um störfin veitir starfsmannastjóri í
síma 686222 kl. 10-12 alla daga.
Starfsmannastjóri
Ég þakka innilega fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát
Kristjáns Júlíussonar
Hofteigi 18, Reykjavík
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Bjarnfríður Pálsdóttir
vœri verið að taka þau upp í
skuldir?
„Ef við tökum dæmi, þá stofn-
uðum við Hughönnun með þeim
aðilum sem voru hér verktakar
og voru að vinna fyrir okkur
tölvukerfi, sem gekk reyndar
ekki upp. Það voru þama ákveð-
in verðmæti, og við þurftum að
hjálpa þeim til að halda áfram, til
að tapa ekki verðmætum og
halda möguleikanum á að fá
eithvað inn.“
Nú hefur mikið verið rœtt um
„andlegt“ ástand þessa markaðar
og spurning hvort þessi blaða-
mannafundur sem þið hélduð hafi
ekki verið sá „dýrasti“ á landinu?
„Blaðamannafundurinn var
ágætur, en staðreyndin var sú að
það vantaði fjármagn til að kom-
ast út úr þessu, ekki að tala sig út
úr hlutunum."
Tap á fyrirtækinu
En hvernig gekk rekstur Ávöxt-
unar í fyrra?
„Það var um fjögurra miljóna
króna tap. Hagnaður er ekki til í
íslenskum fyrirtækjarekstri í
dag.“
En þegar þið selduð Ragnars-
bakarí, lét þá Björgvin Víglunds-
son ykkur fá iðnaðarhúsnœði og
tvœr íbúðir íAlviðru upp íkaupin?
„Já, og eina lóð við Tryggvag-
ötu að auki. Það borgar enginn
peninga í dag. Við vildum bara
losna við bakaríið, það hentaði
okkur engan veginn. Fyrst okkur
tókst ekki það sem við ætluðum
að gera var ekki annað að gera en
að koma sér í burtu. Við ætluðum
bara að koma þessu af stað og fá
eðlilega lánafýrirgreiðslu út á
þetta. En það var bara sagt nei,
hreinlega af því fyrirtækið hét
Ávöxtun.“
Þannig að þið hafið tapað á
þessum viðskiptum?
„Það er alveg klárt mál, en ég
hef ekki tekið saman hversu
mikiu. En það er bara geggjun og
hrein og klár della að vera í at-
vinnurekstri."
En er einhver grundvallarmun-
ur á verðbréfafyrirtœkjunum, eru
þau ekki öll jafn veik fyrir svona
uppákomum?
Á sama báti
„Þau eru öll jafn veik fyrir
þessu, en hinum tókst að snúa
dæminu við. Ég veit ekki hvernig
þau fóru að því.“
En hversu marga viðskiptavini
höfðu sjóðir Ávöxtunar?
„Nokkur hundruð, en það er
enginn þeirra mjög stór.“
En hvað segiðþið viðfólk sem á
inni hjá ykkur peninga, hvencer
getur það átt von á að fá þá?
„Þetta er ekki lengur í okkar
valdi heldur skilanefndar. Til að
þetta sé löglegt er ekkert hægt að
borga út næstu þrjá mánuðina.“
Skilanefnd á launum
hjá Ávöxtun
En hver greiðir skilanefndinni
laun?
„Það verða verðbréfasjóðir
Ávöxtunar sem gera það.“
En nú virtist sem Bankaeftir-
litið réði alfarið ferðinni, það
óskaði eftir slitum sjóðanna og
stakk upp á mönnum í skila-
nefnd. Hvernig var þessu háttað?
„Þetta var samkomulag.
Bankaeftirlitið hafði ákveðnar
óskir, sem við samþykktum.
Ávöxtun sf. lögð niður
Hvert verður framhaldið hjá
Ávöxtun sf?
„ Það er bara að hætta og leggj a
þetta niður. Ganga frá og fara að
snúa sér að einhverju öðru. Það
er verið að vinna í því, grund-
völlurinn er brostinn, það eru
engir tekjumöguleikar lengur.“
Nú skuldar Ávöxtun sf. sjóðun-
um tveimur á biUnu 40-50 miljón-
ir. Ráðið þið við það eða endið þið
Ármann í persónulegu gjaldþroti?
„Við teljum okkur ráða við
það og við ætlum að reyna að
vinna okkur út úr þessu. Það má
semja um ýmislegt, en við
megum ekki flýta okkur of
mikið.“
Átt þú von á frekari samvinnu á
milti ykkar Ármanns þegar þessu
er lokið?
„Nei, ég á ekki von á því og sé
enga ástæðu til þess heldur."
En nú ert þú sjóaður í við-
skiptum til margra ára og hefur
starfað sem ráðgjafi fyrirtœkja
m.a. Þegar gengið hefur verið frá
lausum endum hér, hvað tekur við
hjá þér?
„Ætli ég fari bara ekki í ráð-
gjafastörfin aftur. Ég veit alveg
hvað á ekki að gera,“ sagði Pétur
Björnsson og hló. phh
Avöxtun sf. lögð niður
Staðið verður viðsamninga. Samvinnu Péturs ogArmanns lokið. Tap á Avöxtun ásíðasta ári. Avöxtun borgar
skilanefnd. Tap á Ragnarsbakarís-œvintýrinu. „Fersennilega í ráðgjafastarffyrir fyrirtœki. “
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. september 1988