Þjóðviljinn - 10.09.1988, Síða 16
“SPURNINGIN™
/Etlar þú aö skokka í
þágu barna á sunnu-
daginn?
þlÓÐUILIINN
Laugardaour 10. september 1988 200. tölublað 53. árgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
CfH 040
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Erna Sigurðardóttir
Ég býst við því. Ég er
minnsta kosti búin að kaupa
númer.
Guðríður Hlöðversdóttir
Já, ég er alveg ákveðin í því.
Við verðum alla vega 3 úr mínum
bekk.
ErviðlituminnáMarargötunnivorubörninogstarfsfólkiðaðræðaum hvaða sundlaug þau ættu að fara í daginn eftir. Mynd: Jim.
Skóladagheimili
Karl Sólnes Jónsson
Ég veit þaö ekki og ég er ekki
alveg viss um hvers vegna þetta
hlaup er.
Grétar Már Guðlaugsson
Það getur vel verið, annars hef
ég lítið hugsað um það.
Friðrik Jónas Friðriksson
Já, ég er ákveðinn í því, sama
hvernig veðrið verður.
Fóstrnr opna nýtt heimili
Dagvist barna úthlutar22plássum enfóstrurnar bjóða öðrum 10
Fyrir viku var opnað nýtt skóla-
dagheimili á Marargötu og er
það fyrsta slíka hcimilið sem
fóstrur reka sjálfar. Reykjavík-
urborg gekk til samstarfs við þau
Sigríði Sigurðardóttur og Ragnar
S. Ragnarsson og úthlutar Dag-
vist barna 22 af plássunum til
forgangshópa.
Borgin tók þátt í húsakaupun-
um og greiðir fyrir sín börn með-
altal af rekstrarkostnaði sam-
bærilegra skóladagheimila og er
gjald fyrir foreldra það sama og
annars staðar. Fóstrurnar hafa
síðan til umráða 10 pláss, sem eru
opin öllum til umsóknar. For-
eldrarnir greiða sjálfir allan
kostnað, sem er nú 15 þúsund
krónur fyrir 5 tíma dvöl með mat.
Sigríður sagði að hjá borgar-
kerfinu hefði hugmynd þeirra
verið vel tekið og einnig væru
bæði foreldrar og börn jákvæð.
Börnin koma víða að úr Vestur-
bænum, en á því svæði voru
komnir langir biðlistar eftir
skóladagheimilisvist hjá Dagvist
barna.
- Skóladagheimili varð fyrir
valinu þegar við ákváðum að
reyna eigin rekstur, þar sem okk-
ur finnst skemmtilegast að vinna
með þann aldurshóp, sagði Sig-
ríður. Sem hvata að þessari til-
raun nefndi hún bæði von um
betri laun og meira sjálfræði en í
starfi á dagvistarstofnunum borg-
arinnar. mj
Fermingar
Borgaraleg ferniing í vor
Hope Knútsson: Vil valkost við kirkjulegafermingu
Ætlunin með þessu er að bjóða
upp á valkost fyrir þá sem
ekki vilja láta kirkjuna ferma sig,
sagði Hope Knútsson sem birti
auglýsingu í Nýja helgarblaðinu í
gær um borgaralega fermingu.
- Það má segja að allir hafi gott
af því að fermast en hingað til
hefur einasta leiðin verið að láta
kirkjuna um þessa manndóms-
vígslu. Það er löngu orðið tíma-
bært að breyta því. Fermingar
eru ekkert annað en að börn eru
tekin inn í samfélag fullorðinna
og þar með eru þau orðin ábyrgir
þjóðfélagsþegnar, sagði Hope
Knútsson.
Borgaraleg ferming er ekkert
ósvipuð fermingu á kirkjulega
vísu. Fermingarbörnin þurfa að
taka þátt í stuttu námskeiði þar
sem þeim er kennd siðfræði og
þeim gerð grein fyrir þeirri
ábyrgð sem því fylgir að verða
fullorðinn og vera tekinn inn í
samfélag fullorðinna. Sjálf ferm-
ingin fer svo fram við hátíðlega
athöfn í einhverju virðulegu húsi.
Víða erlendis leggja sveitarfé-
lögin tii húsnæði.
- í Noregi fermast núna um
10% allra barna borgaralegri
fermingu. Þar eru starfandi
samtök fólks sem hefur sagt sig úr
þjóðkirkjunni. Þessi samtök
standa fyrir ýmsum borgara-
legum athöfnum sem kirkja sér
víðast hvar um s.s. giftingar,
jarðarfarir og að sjálfsögðu ferm-
ingar, sagði Hope og bætti við að
von væri á formanni norsku sam-
takanna hingað til lands eftir
hálfan mánuð til að skýra frá
starfsemi þeirra.
-*g-
Og Dynasty \
ekki sýnt lengur )