Þjóðviljinn - 16.09.1988, Blaðsíða 2
I RÓSA-
GARÐINUM
Hinirduldu
töfrar hagf ræðinnar
Niðurfærsluleiðin hlýtur ávallt að
vera Ieið niður á við. Hver vill
fara niður á við? Millifærsluleið
er leið þar sem allt er fært á milli,
gróði eða tap fært frá einum aðil-
anum til annars. Hver vill missa
spón úr sínum aski eða taka á sig
tap? Uppfærsluleiðin er sú leið
sem best á við okkur íslendinga.
Allir viljum við upp á við og slíka
leið höfum við verið að feta okk-
ur lengst af.
Lesendabréf f DV
Love Story
Ali MacGraw hefur nú staðið sig
heldur betur en margar aðrar
hvað varðar hjónabandsmál...
Núna segist hún vera ánægð með
að eiga kærasta og eyða laugar-
dagskvöldunum heima og borða
eitthvað sem hún hefur mallað í
potti. Hún verður fimmtug á
næstaári.
Sviðsljós ÍDV
Verði Ijós
íslendingar þekkja ekki Snorra
Sturluson! Þeir gera sér rangar
hugmyndir um hann og hafa
alltaf gert síðan þeir myrtu hann í
myrkri árið 1241.
Þorsteinn Guðjónsson í Tímanum
Diljá, Pete, Dóra og Erik tilbúin til farar. Mynd Jim Smart.
Jólafríin eru sumarfrí
Rætt við Dóru, Pete, Erik og Diljá sem fluttu í gœr til Ástralíu
íbúðin er tóm, utan nokk-
urra pappakassa og ferða-
taskna. öllu hefur verið pakk-
að niður og sumt er þegar
komið á skip. Ferðinni er
heitið til Ástralíu. Það eru þau
Dóra Rögnvaldsdóttir og Pet-
er Thorpe, ásamt börnunum
Diljá og Erik sem eru að flytja
búferlum, „aftur heim,“ eins
og Pete segir. Hann kemur
upprunalega frá Englandi, en
flutti ungur til Ástralíu. Þar
bjuggu þau Dóra um rúmlega
þriggja ára skeið, en hafa síð-
ustu tvö árin búið á íslandi.
„Við erum bara mjög hress
með að flytja. Við ætlum bara að
lifa og hafa það gott,“ segir Dóra.
„Það verður auðvitað öðru vísi að
koma út aftur núna, heldur en
það var þegar við vorum þar síð-
ast. Það er best að vera að gera
sér ekki neinar hugmyndir um að
hlutir séu eins og þeir voru þá.
Fólk breytist og við líka.“ En áttu
þau mikið af vinum og kunningj-
um í Ástralíu? „Ég þekki alla sem
voru í krikketliðunum og þau
voru þrjú, svo þú getur sagt að ég
þekki að minnsta kosti 36 mann-
eskjur í Huskisson," segir Pete og
hlær.
Pete ætlar að spila þar með
Huskisson R.S.L.Cricket Club
sem er áhugamannalið. Hu-
skisson heitir lítill strandbær þar
sem þau bjuggu áður, og þangað
er ferðinni heitið eftir viðdvöl í
Sidney hjá foreldrum Pete.
Jólasveinn
ából
„Þau hafa ekki séð krakkana í
tvö ár.“ „En fyrst förum við til
London og svo í mánuð til Bali.
Það er flottur staður,“ segja þau
Pete og Dóra nánast samtímis.
„Þar er mikið af túristum en ekki
alls staðar, og svo er Bali í
Austrinu.“ „Jólasveinninn þar er
öðru vísi en hérna, hann keyrir
í því hún bjó
„Á nóttunni,“
um í bíl og hendir karamellum á
götuna,“ segir Diljá og vísar í
endurminningu frá
áður í Ástralíu.
bætir hún við.
Þau hafa ekki áhyggjur af því
að fínna sér ekki vinnu. Það er
verið að byggja Huskisson upp
sem ferðamannastað og efalaust
má finna vinnu tengda þeirri upp-
byggingu. „Það er ágætt að koma
héma heim og vinna og lifa lífinu
ef það er hægt. En það er alveg
vonlaust fyrir fjölskyldu eins og
okkar að fara að reyna að koma
sér upp íbúð og taka þátt í öllu
þessu kapphlaupi og ætla að lifa
lífinu líka. Ég heyri það líka á
fullt af fólki í kringum mig, hvað
allir eru orðnir þreyttir á ástand-
inu héma. Það er eitthvað svo
vonlaust og breytist ekkert. Fólk
vinnur og vinnur og enginn tími
fyrir krakkana og bamaheimilin
oft þannig að þau gefa lítið. í
Ástralíu á maður fleiri valkosti.
Þó vil ég taka fram að við vomm
mjög heppin með bamaheimili
og viljum koma á framfæri bestu
kveðjum til þeirra og allra sem að
við þekkjum. Verið þið blessuð
og sæl,“ sagði Dóra. I gær klukk-
an 16.40 var síðan flogið af stað
áleiðis til Ástralíu, þar sem sólin
skín og spilað er krikket, þar sem
skólinn byrjar í febrúar og lýkur í
desember og jólafríin em sumar-
fri. Við óskum þeim góðrar ferð-
ar.
-phh
Vegna skorts
á fjölda áskorana
Maður segir við mig: Þú skrifar of
sjaldan; annar: Ég les það sem þú
skrifar; og þar sem fæstir ná til
mín með slíkt, þó svo að þeir
hugsi það, mætti ætla að þetta
þýði, að ég ætti að skrifa.
Upphaf i grein í Tímanum
Yfirskilvitlegt
réttlæti
Það má því segja að KR-ingar
hafi sloppið með skrekkinn að
þessu sinni. Þeir voru betri aðil-
inn í leiknum og áttu ekki skilið
að tapa.
íþróttafrótt f Tímanum
Gaman, gaman
Og nú lítur út fyrir að kosninga-
baráttan geti orðið ein sú fjörug-
asta, og sóðalegasta, í mörg ár.
Frétt f Tímanum
Víst eru til
vandvirkir blaða-
menn
Hann virðist jafnvel hafa til-
einkað sér einhvern skammt af
„charisma," þeim hæfileika að
geta „vakið hrifningu, traust eða
hollustu almennings," skv. þýð-
ingu orðabókar, en til þessa hefur
hann verið talinn gersneyddur
þeirri gáfu.
Frétt f Tfmanum
Er eitthvert starf að
hafa hjá borginni?
^^ÞúkemuTáTéttum^
tíma. Nóg laust af
gefandi störfum á
dagvistarheimilum.
Hvernig líst
r á öskuna?
Launin eru
kannski svolítið
lág fyrir karl
mann, tæp 40
þúsund.
þér
la-17
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN | - NÝTT HELGARBLAÐ