Þjóðviljinn - 16.09.1988, Side 3
Obeinar
Þorsteinn
og Bessastaðir
Þó dagar ríkisstjórnar Þor-
steins Pálssonar séu nú
senn taldir og leið hans eigi
eftir að liggja til Bessastaða á
næstunni, þá verður það að-
eins nokkurs konar „déja vu“
fyrir forsætisráðherrann. A
fimmtudegi í síðustu viku var
hann sem sagt nánast lagður
af stað út í bíl á leiðinni til
Bessastaða til að skila stjóm-
arumboði sínu. Mótlætið hafði
lagst illa í hann og hann því
ákveðið að láta slag standa.
Dreif þá að nokkurs konar
gjörgæslubjörgunarsveit rík-
isstjórnarinnar, þá Jón Sig-
urðsson, Davíð Oddson og
Styrmi Gunnarsson, Morg-
unblaðsritstjóra og bönnuðu
Þorsteini að fara. Þar með var
líf stjórnarinnar framlengt, en
nú virðist sem það hafi aðeins
verið um nokkra daga. Eða
eins orðtækið segir; „Þeir
verða að falla sem feigir eru“
og er hér að sjálfsögðu átt við
ríkisstjórnina...»
Ónotuð
herkænska?
Guðmundur J. Guð-
mundsson og Ásmundur
Stefánsson hafa ekki verið
fyllilega samstiga að undan-
förnu. Milli þeirra hefur
löngum ríkt spenna. Hún virð-
ist hafa ágerst síðustu vikurn-
ar og telja margir þeirra, sem
sóttu formannafund ASÍ á
mánudaginn var, að hún hafi
aldrei verið meiri.
Á síðasta fundi verkalýðs-
forystunnar með ráðherrum
áður en miðstjórn ASÍ hafnaði
öllum samráðsumræðum um
launalækkun mun Ásmundur
hafa verið of bráður að mati
Jakans við að lýsa því yfir að
það væri ekkert meira um að
tala. Ráðherrarnir voru ósam-
stiga og forsætisráðherra
hafði í öngum sínum boðið
upp á að skipuð yrði nefnd
með þremur mönnum frá
hvorum aðila til að skoða mál-
in nánar. Mun Guðmundur J.
hafa talið að í slíkri nefnd hefði
með beinskeyttum spurning-
um mátt sýna fram á að ráð-
herrarnir væru engan veginn
sammála um hvað gera
skyldi.
Þeim, sem ekki eru í innsta
hring, gengur illa að átta sig á
hvar valdastreitunni sleppir
og við tekur ágreiningur um
herstjórn.B
Nýr Eim-
reiðarhópur?
Menn muna að þeir menn
sem nú ráða flestu í Sjálf-
stæðisflokknum voru eitt sinn
saman í klúbbi sem kenndur
var við tímaritið Eimreiðina,
og var þar lagt á ráðin um
sigur frjálshyggjunnar á ís-
landi. Nú er sprottinn upp
annar ungliðahópur innan
flokksins og gefur út tfmaritið
„Glætan", sem dreift er í stór-
mörkuðum og fjármagnað af
auglýsingum án þess getið sé
um ritstjóm eða útgefendur.
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA
Helstu broddar Glætu-
klíkunnar munu vera þeir
Ólafur Þ. Stephensen for-
maður Heimdallar og Mogga-
blaðamaður, Steingrímur
Slgurðsson stjórnarmaður í
Heimdalli og blaðamaður á
Mogga og Þór Sigfússon,
fyrrverandi formaður
Heimdallar, ritstjóri SUS-
málgagnsins Stefnis og bróðir
Árna borgarfulltrúa og SUS-
formanns. Hópurinn telur sig
arftaka Eimreiðarmanna, - en
þeir sem séð hafa bæði tíma-
rítin hugsa glottandi til þeirra
orða óvinar þeirra Karls Marx
að sagan sé vissulega gjöm á
að endurtaka sig, en þá þann-
ig að það sem fyrst var harm-
leikur verði í endurtekning-
unni að farsa...B
Hannesar lesa
Þeir oafnar Hannes Sig- I
fússon og Hannes Péturs-
i son munu lesa upp á skálda- I
kvöldi hjá Besta vini Ijóðsins I
nk. miðvikudagskvöld. Hann-
es Sigfússon hefur ekki lesið
upp hér á landi í áratugi og
sömuleiðis er langt síðan
Hannes Pétursson hefur
komið fram opinberlega og
lesið upp úr verkum sínum.
önnur skáld sem koma fram á
skáldakvöldinu eru Valgerð-
ur Benediktsdóttir, Gyrðir
Elíasson, Einar Heimisson,
Sjón, Eiísabet Jökulsdóttir
og Ágúst Sverrisson.
Skáldakvöldið verður í Nor-
ræna húsinu og mun Örn
Magnússon opna kvöldið
með píanóleik. Kynnir verður
Hrafn Jökulsson.B
Jónas í
Jóns stað?
Almælt er á Austurlandi að
heldur sé að volgna undir
Jóni Kristjánssyni í öðru
sæti Framnsóknarlistans í
kjördæminu. Jón er prúður og
málefnalegur þingmaður, en
það sópar lítið að honum og
þeir Halldór Ásgrímsson
þykja báðir saman ekki lífga
verulega uppá mannskapinn.
Það er Jónas Hallgrímsson,
fyrrverandi bæjarstjóri á
Seyðisfirði, sem menn hafa
horft á í stóli Jóns, og sagan
segir að það geri Jónas líka
sjálfur. Hann er nú í forsvari
fyrir ferjufélagið eystra og
gæti þannig gerst þingsætis
verður hjá Frömmurum.B
augýsingar
Stöð 2 hefur á sínu stutta
æviskeiði verið iðnari við að
koma óbeinum auglýsingum
fyrir í dagskrá sinni heldur en
gamla Ríkissjónvarpið hefur
gert. Á þetta meðal annars við
um hina ameríkaníseruðu
spurningaleiki þeirra, sem
virðast varla ganga út á ann-
að en að gera sem mest grín
að keppendum en þeir sætta
sig við allt saman því til mikils
er að vinna. Þá hefur íþrótta-
efni stöðvarinnar verið meira
og minna undirlagt auglýsing-
um og fer það sérstaklega
fyrir brjóstið á mörgum
íþróttaáhugamanninum að
Stöðin hefur að undanförnu
verið með íþróttasyrpu sem
kallast „Gillette-pakkinn“, og
varla þarf Stöðin að borga
mikið fyrir slíkt efni því rakvél-
arnar góðu eru í aðalhlutverki
í þættinum og skyggja heldur
á íþróttamennina.B
3
IMI5SAN
MICRA
ÁRGERÐ 1 989
NÚ Á BETRA VERÐI EN NOKKRU SINNI FYRR
i
TEG.
STAÐGR.VERÐ
FULLT VERÐ
NISSAN MICRA 1.0 DX, 4RA GÍRA
NiSSAN MICRA 1.0 GL, 5 GÍRA
NISSAN MICRA 1.0 GL
SJÁLFSKIPTUR
NISSAN MICRA 1.0
SPECIAL VERSION
410.000.- 423.000.-
427.000.- 441.000.-
474.000.- 489.000.-
460.000.- 475.000.- y
...OG KJÖRIN ERU HREINT ÓTRÚLEGI
NISSAN, MEST SELDIJAPANSKI
BÍLLINN í EVRÓPU
Ingvar
Helgason hf.
Sýningarsalurinn,
Rauðagerði
Sími: 91 -3 35 60