Þjóðviljinn - 16.09.1988, Page 6
Skítkast í allar áttir
Loka
Draugagangurinn eftir andlát Helgarpóstsins er
meö miklum endemum og skítkast í allar áttir, ákær-
ur settar saman og þeim dreift í hús og fyrrverandi
samstarfsmenn baktala hver annan þannig aö þá
ályktun virðist mega draga af því að eintóm dusil-
menni, glæframenn og misindismenn hafi stýrt
þessu blaði, sem sumir kölluðu samvisku þjóðarinn-
ar.
Átök höfðu átt sér stað um stjórn Goðgár, útgáfu-
félags Helgarpóstsins, í rúmt ár áður en blaðið gaf
upp öndina. „Stjórnarmenn voru svo uppteknir af
átökunum um hlutabréfin síðasta árið að þeir máttu
ekkert vera að því að hugsa um rekstur blaðsins,"
sagði fyrrverandi starfsmaður Helgarpóstsins.
Stjórn Goðgár var skipuð fimm mönnum ailt tii
haustsins 1987, en þá var ákveðið að fækka í stjórn-
inni um tvo menn og minnihluti stjórnar þannig útilok-
aður frá stjórn. Stjórnin sem tók við þá var skipuð
þeim Sigurði Ragnarssyni, stjórnarformanni, Þór-
oddi Stefánssyni og Hákoni Hákonarsyni. í vara-
stjórn voru kjörnir Gísli Guðmundsson og Hinrik
Gunnar Hilmarsson.
í janúar var haldinn hluthafafundur í Goðgá til þess
að ræða hlutafjáraukningu í félaginu. Á þeim fundi
sagði Hákon að hagnaður af fyrirtækinu væri 4 milj-
ónir króna, en í Ijós kom seinna að þær upplýsingar
reyndust ekki réttar.
í mars seldi Þóroddur Stefánsson hlut sinn í fé-
laginu til Birgis S. Hermannssonar viðskiptafræð-
ings, sem gekk til samstarfs við Róbert Árna
Hreiðarsson og aðra sem verið höfðu í minnihluta í
stjórn félagsins. Róbert Árni krafðist aðalfundar
strax og var orðið við því í lok maí. Þar var kjörin ný
stjórn og var Róbert Árni kjörinn formaður, en aðrir í
Akæra Róberts
Áma og félaga
Þungar ásakanir á hendur núverandi ritstjóra, framkvœmdastjóra og
auglýsingastjóra Alþýðublaðsins
Nokkrir fyrrverandi starfs-
menn Helgarpóstsins sáluga og
stjórnarmcnn í Goðgá, útgáfufé-
lagi HP, eru sakaðir um stórfellt
misferli og hefur Ólafur Sigurg-
eirsson hæstaréttarlögmaður far-
ið fram á að Rannsóknarlögregl-
an sjái um rannsókn á bókhaldi
og fjárreiðum Goðgár undanfar-
in ár, fyrir hönd stjórnar Goðgár.
Rannsóknarlögreglan vísaði
málinu til ríkissaksóknara og
hann lét það til Ragnars Hall
skiptaráðanda, sem hefur gjald-
þrot Helgarpóstsins á sinni
könnu. Að sögn Braga Steinars-
sonar vararíkissaksóknara, er
væntanleg frá skiptaráðanda sú
kjölfesta sem rannsókn málsins
verði byggð á. Hann bjóst við að
málið kæmi frá Ragnari á næstu
dögum.
f bréfi Ólafs til Rannsóknar-
lögreglunnar koma fram ýmsar
ásakanir á hendur þeim Hákoni
Hákonarsyni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Helgarpóstsins,
Ingólfi Margeirssyni, fyrrverandi
ritstjóra HP, og Hinriki Gunnari
Hilmarssyni, fyrrverandi auglýs-
ingastjóra blaðsins. Þeir þrír
vinna allir hjá Alþýðublaðinu
núna; Hákon sem framkvæmda-
stjóri, Ingólfur sem ritstjóri og
Hinrik Gunnar sem auglýsinga-
stjóri. Auk þess kemur Sigurður
Ragnarsson, fyrrverandi stjórn-
arformaður Goðgár, við sögu.
Forleikur
Aðdragandi málsins er sá að
30. maí sl. tók ný stjórn við Goð-
gá og réð nýjan framkvæmda-
stjóra. í bréfinu segir að hin nýja
stjórn og framkvæmdastjóri hafi
strax séð að „margt var athuga-
og aðfinnsluvert í fjárreiðum og
bókhaldi félagsins. í sumum til-
vikum er talið að um lögbrot sé
að ræða. f heild varðar kæra þessi
mikla fjárhagslega hagsmuni,“
segir orðrétt í bréfi Ólafs.
Á framhaldsaðalfundi 21. júlí
sl., þarsem eingöngu voru mættir
menn Róberts Árna, var ákveðið
að krefjast opinberrar rannsókn-
ar á þessum þáttum og meðal
þess sem rannsaka á er hvort ein-
stakir starfsmenn Goðgár hafi
misnotað aðstöðu sína á Hel-
garpóstinum til að ná fram per-
sónulegum ávinningi án heimild-
ar og brotið lög. Er bent á að
rannsaka þurfi sérstaklega hvort
andvirði auglýsinga hafi runnið
beint í vasa einstakra starfs-
manna án heimildar og án þess að
þeim hafi verið reiknaðar þessar
fjárhæðir sem laun eða lán.
Sérstaklega er bent á að ákveð-
inn starfsmaður hafi haft umtals-
verð viðskipti við Ingvar Helga-
son hf. á sama tíma og auglýs-
ingareikningar Ingvars voru af-
skrifaðir. Pá segir í bréfinu að
starfsmenn hafi tekið út andvirði
auglýsingar frá versluninni Mark-
inu með kaupum á þrektækjum
og einnig er bent á að Bón- og
þvottastöðin Ós hafi greitt fyrir
auglýsingar með því að þjónusta
starfsmenn.
Hákonarþáttur
Ólafur fer fram á að RLR rann-
saki launagreiðslur til Hákonar
Hákonarsonar framkvæmda-
stjóra. Segir í bréfinu að við laus-
lega skoðun komi í ljós að Hákon
virðist hafa reiknað sér „umtals-
verðar tekjur umfram heimildir"
árið 1987. Einnig er farið fram á
að rannsakað sé hvort Hákon
hafi gerst brotlegur við lög með
því að reikna sér full laun hjá
Goðgá til 31. maí sl. þrátt fyrir að
hann hafi sagt upp störfum í apríl-
byrjun og frá þeim tíma þegið
laun sem framkvæmdastjóri Al-
þýðublaðsins.
Hinriksþáttur
Hinrik Gunnar Hilmarsson á
einnig að hafa þegið laun fyrir
maímánuð þótt hann hafi sagt
upp einsog Hákon og hætt 1. maí.
Hann er einnig sakaður um að
hafa selt auglýsingar fyrirfram í
blaðið, þó svo að honum hafi átt
að vera ljóst að blaðið væri gjald-
þrota.
Þá er farið fram á að öll við-
skipti Hinriks Gunnars og fjár-
streymi á milli hans og félagsins
hin síðari ár verði rannsökuð.
Segir í bréfinu að skuldabréf og
víxlar virðist hafa verið seldir inn
á viðskiptakvóta Goðgár í við-
skiptabanka án nokkurs sam-
hengis við rekstur félagsins og að
félagið hafi þurft að leysa til sín
verulegar fjárhæðir vegna
ábyrgðar sinnar á þessum við-
skiptabréfum.
Ingólfsþáttur
Samkvæmt bréfi Ólafs virðist
syndaregistur Ingólfs Margeirs-
sonar alllangt. Hann fer fram á að
rannsakað verði hver sé ástæðan
fyrir sölu á bókalager félagsins til
Ingólfs og hvort andvirðið hafi
verið í samræmi við kaupverð og
greiðslukjör. Einnig hvort það
samrýmist lögum að félagið
greiddi Ingólfi 8.000 krónur á
mánuði í leigu fyrir geymslu á
bókum sem hann kaupir síðan
sjálfur.
Ólafur fer líka fram á rannsókn
á uppgjöri við Ingóif þegar hann
hætti störfum að eigin ósk, en svo
virðist sem honum hafi verið
greidd laun án heimildar stjórnar
umtalsverðan tíma eftir að hann
hætti störfum, en sú ákvörðun
mun hafa verið tekin af Hákoni.
Þá fer Ólafur fram á að
rannsakað verði hver vitneskja
Ingólfs var um fjárhag fyrirtækis-
ins þegar hann seldi hlutabréf sín
í Goðgá. „Ástæða er til að ætla að
honum hafi verið fullkunnugt um
gjaldþrot félagsins, þegar salan
fór fram. En á þeim tíma var
Hákon Hákonarson búinn að
ráða sig sem framkvæmdastjóra
Alþýðublaðsins og mikil sam-
skipti á milli hans og Ingólfs,"
segir í bréfinu.
Einnig er farið fram á að
könnuð verði sérstaklega auglýs-
ingaviðskipti Hafskips og Helg-
arpóstsins og hver þáttur Ingólfs
sé í því máli. „Svo virðist sem
Ingólfur hafí sjálfur skrifað aug-
lýsingareikning á Hafskip án þess
að auglýsingin birtist í Helgarpó-
stinum og hafí þessi reikningur
verið notaður til persónulegrar
skuldajöfnunar hans við Haf-
skip.“ Á sínum tíma sagði Ingólf-
ur starfi sínu á Helgarpóstinum
lausu vegna þessa máls.
Sigurðarþáttur
Sigurður Ragnarsson, fráfar-
andi formaður stjórnar Goðgár,
er ásamt Hákoni aðaleigandi
Fjaðrabliks hf., sem var stofnað
gagngert til þess að kaupa og eiga
hlutabréf í Goðgá. Er farið fram
á að rannsakað verði hvort Goð-
gá hafi með ólöglegum hætti ver-
ið látið greiða andvirði hluta-
bréfa fyrir hönd Fjaðrabliks.
Hákon hefur farið með hlutafé
þetta á hluthafafundum skv. um-
boði og m.a. með því tryggt
nauman meirihluta fráfarandi
stjórnar, segir í bréfinu.
Einnig er farið fram á rann-
sókn á því hvort fráfarandi
stjórnendur Goðgár hafi með ó-
löglegum hætti misnotað aðstöðu
sína í félaginu með sölu á víxlum
og skuldabréfum, sem voru
rekstri félagsins óviðkomandi, í
gegnum viðskiptakvóta fyrirtæk-
isins í viðskiptabanka þess.
Ólafur fer líka fram á rannsókn á
því hvort tekjur af lausasölu og
áskrift hafi skilað sér sem skyldi,
en bókfærslu á þessum tekjum
hafi verið mjög ábótavant.
Eitt af því sem Ólafur vill að
rannsakað verði er hvort samsæri
einstakra starfsmanna og/eða
stjórnarmanna Goðgár hafi verið
í gangi í maí um að koma víxil-
kröfu upp á eina og hálfa miljón í
gegnum réttarkerfið, en því máli
hefur nú verið vísað til Hæstarétt-
Hluthafar blekktir
Ólafur fer fram, á að rannsak-
að verði hvort Hákon og fráfar-
andi stjórn félagsins hafi vísvit-
andi beitt blekkingum og reynt
með sviksamlegum hætti að ná
fram hlutafjáraukningu á hlut-
hafafundi í janúar í ár.
Á fundinum var afkoma félags-
ins 1987 kynnt og í ræðu fram-
kvæmdastjóra kom fram að af-
koman hefði verið mjög góð og
hagnaður verið um 4 miljónir. I
ljós kom seinna að tap var á
rekstrinum 1987 upp á 11 miljón-
ir króna. Hér skeikar því um 15
miljónir, segir í bréfinu.
„Því er haldið fram að stjórn
félagsins og framkvæmdastjóra
hafí í lok ársins 1987 mátt vera
kunnugt um „gjaldþrot“ Goðgár
hf. en kosið að halda þeim upp-
lýsingum leyndum til að ná fram
of angreindri hlutafj áraukningu. “
Þá segir í bréfinu að þessar yfír-
lýsingar um hagnað hafi leitt til
þess að hlutafé félagsins, sem í
raun og veru var einskis virði, var
selt á yfirverði. Þannig hafi Þór-
oddur Stefánsson, sem sat í
stjórn, selt hlutafé sitt og sömu-
leiðis Ingólfur Margeirsson.
„Því er haldið fram, að þessir
aðilar hafi gegn betri vitund selt
hlutabréf sín á yfirverði. Kaup-
endur hlutabréfanna hafa orðið
fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni
vegna hinna ólögmætu blekkinga
sem beitt var við sölu hlutabréf-
anna. Bæði Þóroddur og Ingólfur
höfðu aðstöðu til að vita um af-
komu félagsins á þessum tíma.
Þeim hafi mátt vera ljóst að fyrir-
tækið var „gjaldþrota“ í raun og
veru.“
-m/Sáf
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ