Þjóðviljinn - 16.09.1988, Side 8

Þjóðviljinn - 16.09.1988, Side 8
SMART-SKOT Ólympíuleikamir í Seoul Ólympíuleikamir eru að fara af stað í Kóreu og næstu vikur skyggja tíðindin þaðan á annað í hugum miljóna um allan heim. Það er á margan hátt bjartara yfir leikunum í Seoul og nágrenni en síðustu leikum. Leikarnir í Los Angeles og í Moskvu voru háðir í skugaa stórveldaspennu og voru varla nema hálfir 01- ympíuleikar vegna fjarveru margra allra bestu íþróttamanna heims, fyrst Bandarikjamanna og þeirra fylgjenda, þá Sovétmanna og þeirra félaga. Nú vantar aðeins örfáa þjóðfána þegar keppendur ganga frammá völlinn, -Kóreu- menn í norðurhlutanum eru í fýlu, fengu með sér nokkra aðra, og dauðsjá örugglega eftir öllu saman núna. Þátttaka á Ólympíuleikunum í Seoul er til vitnis um hlýviðrisþróun í alþjóðamálum. Ekki síst vegna þess að Suður-Kórea hefur ekki verið mikið uppáhaldsríki, hvorki í austurblökk- inni né meðal lýðræðissinna vestantjalds, og var lengi haldið að staðarvalið mundi setja leikana í svipaða sjálfheldu og þá síðustu og þarsíðustu. Það gerðist ekki, og raunar áttu leikarnir drjúgan þátt í þeim lýðræðisáföngum sem unnist hafa í landinu að undanförnu. íslendingar koma nú fjölmennari til leiks en nokkru sinni, og sú tíð er liðin að okkar menn vektu einkum athygli fyrir þá íþrótt að komast aftur úr öllum. íslensku keppendurnir eiga kost á verðlaunum í fleiri en einni grein og fulívíst að með þeim verður fylgst af mikilli eftirvæntingu þótt flest markvert beri við um miðja íslenska nótt. Og það er alveg klárt að þeim íslending- tim sem heima sitja finnst ekki lengur neitt sport í því að vera bara með. Síðan Pierre de Coubertin og félagar héldu fyrstu leika síðari tíma í Aþenu 1896 hefur margt breyst í henni veslu, og sú svokallaða ólympíuhugsjón sem aldamótamenn skiluðu fram á veg hefur heldur betur látið á sjá. Síð- ustu hömlum hefur nú verið létt af fullri þátt- töku atvinnumanna, og sem aldrei fyrr er til- standið kringum Ólympíuleikana orðið gróða- mál fyrir viðskiptafyrirtæki af öllum sortum. „Brauð og leikar" var hrópað í Róm, -og á suman hátt hafa fjölmiðlaveislur á borð við Ólympíuleikana orðið í nútímanum það ópíum fólksins sem ginnir og slævir. Það má hafa ýmislegt á móti Ólympíu- leikum, og bæði fyrr og síðar hafa kvartendur fundið til ýmislegt þarfara að veita í fé, ýmislegt verðugra að nota til kraftana. Ekki síst hafa þessar raddir verið háværar á íslandi, sérstak- lega þegar ekki gengur að ítrustu óskum. Því skal þó ekki gleymt að Ólympíuleikarnir komast þrátt fyrir allt eins nálægt því og hægt er að vera sameiginleg hátíð alls mannkyns, hátíð sem í hvert sinn hyllir hina fornu Grikki, en á sér félagslegar og heimspekilegar rætur miklu lengra aftur. Og hvað sem líður afdrifum draumsýna frá aldamótunum er vert að hafa í huga að sjálf hugmyndin um ólympíuleika felur í sér að borgirnar haldi frið hver við aðra. Þótt ekki væri nema af þeim sökum eru leikarnir mikils virði. En það sem skiptir auðvitað mestu máli næstu daga er frammistaða okkar manna í júdó, handbolta, spjótkasti... Arafat til Islands? Jassír Arafat svaraði spurningum Nýs Helg- arblaðs Þjóðviljans á blaðamannafundinum í Strassborg í vikunni og sagðist reiðubúinn að koma til (slands ef um það bærist formlegt boð héðan. Slík heimsókn kemurfyllilegatil greina. Hún mundi sýna að íslendingar vildu meta sjálf- stætt stöðuna í alþjóðamálum, og slíkur við- burður mundi renna stoðum undir hugmyndir um ísland sem alþjóðlegan griðastað. -m Helgarblað Síöumúla 6-108 Reykjavík Sími 681333 Kvöldsími 681348 litgofandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, MörðurÁrnason, óttar Proppé. Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pótursson, HjörleifurSveinbjörnsson, KristóferSvavarsson, Magnfríður Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, ólafurGíslason, Páll Hannesson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Sævar Guðbjörnsson, Þor- finnurÓmarsson (íþr.). Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFidfisdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Jim Smart. IJtlitateiknarar: Kristján Kristjánsson, Kristbergur ó. Pótursson Framkvamdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Skrifstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir. Auglýsingastjóri: Olga Clausen. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Utbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson. Afgrel&8la: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumenn: Katrín Bárðardóttir, Ólafur Björnsson. Utkeyrsla, afgreiðsla, rltstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663. Auglýslngar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.