Þjóðviljinn - 16.09.1988, Side 10
FOSTUDAGSFRÉTTIR
Ríkisstjómin
á bláþræði
Tekst „undirnefndinni“ að bjarga ríkisstjórninni um stundarsakir?
Steingrímur Hermannsson orðinn afar vonlítill. Hefur gefið út drög að
dánarvottorði ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar og drög aðfæðingarvott-
orði nýrrar vinstri stjórnar. Staða Þorsteins Pálssonar veik
fyrsta þótti skipan þeirrar nefnd-
ar gefa til kynna að Þorsteinn afs-
alaði sér völdum til nefndarinnar,
sem starfaði meðan hann var í
Florida í Bandaríkjunum. Síðan
Ríkisstjórnin stendur nú mjög
tæpt. Þorsteinn Pálsson hefur gef-
ist upp á að samræma tillögur
ríkisstjórnarflokkanna og hefur
sett málið í hendur „undirnefnd-
ar“ ríkisstjórnarinnar, sem í sitja
Friðrik Sóphusson, Jón Sigurðs-
son og Halldór Ásgrímsson. Sam-
kvæmt heimildum Nýja Helgar-
blaðsins eru það einmitt þeir Jón
og Halldór, sem hvað lengst vilja
ganga til þess að ríkisstjórnin lifi
áfram. Nefnd þessi fundaði í gær,
en ekkert miðaði áfram í átt til
samkomulags. Lífslíkur ríkis-
stjórnarinnar versna því með
hverjum tímanum sem líður, en
„yfirnefndin“ þ.e. formenn flokk-
anna hafa allir iagt mikla áherslu
á að niðurstaða fáist fyrir helgi.
Vegna þess hversu mikið ber á
milli flokkanna sérstaklega
Sjálfstæðisflokks annars vegar og
Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks hins vegar, er ljóst að vilji
svo ólíklega til að samkomulag
náist um tillögur í efna-
hagsmálum, þarf einhver að
gefa mikið eftir. Samkomulagið á
því eftir að verða gjöful upp-
spretta óánægju á meðal ríkis-
stjórnarflokkanna og þegar van-
kantar þess koma betur í ljós,
mun óánægjan blossa upp og
hver kenna öðrum um. Því eru
menn orðnir afar vondaufir, eins
og Steingrímur Hermannsson
skýrir reyndar frá í viðtali hér í
blaðinu, um að nokkurt sam-
komulag náist. Auk þessa hafa
yfirlýsingar undangenginna daga
hleypt illu blóði í menn og orðið
þess valdandi að það trúnaðar-
traust sem ráðherrrar kunna að
hafa borið hvor til annars, hefur
horfið. „Þegar trúnaðartraustið
er búið, er afar erfitt fyrir þrjá
flokka, með mismunandi áhersl-
ur að starfa saman,“ segir
Steingrímur í fyrrgreindu viðtali.
Því er stjórnin talin dauðvona,
jafnvel þó „samkomulag“ náist
um efnahagstillögur nú.
Það sem hefur komið berlega í
ljós á undanförnum dögum, er
veik staða Þorsteins Pálssonar,
forsætisráðherra. Hann skipaði
fyrst forstjóranefndina svo-
nefndu og skilaði hún tillögum
sínum, m.a. um að ekki yrði farín
gengisfellingarleiðin. Fyrir það
er hafist handa innan ríkisstjórn-
arinnar um tillögugerð sem átti
að taka tillit til tillagna nefndar-
innar, en þá kom upp úr kafinu
að Þorsteinn Pálsson hafði snúið
bakinu við megintillögum nefnd-
arinnar. Steingrímur Hermanns-
son er ekki einn um að túlka þá
stefnubreytingu, sem þar með
hafi „frjálshyggjuarmur" Sjálf-
stæðisflokksins náð yfirhöndinni.
í öllu falli eru fáir sem gefa Þor-
steini „heiður" af því að hafa
staðið sjálfstæður gagnvart til-
lögum nefndarinnar og segir það
nokkra sögu um stöðu forsætis-
ráðherrans. Þeir eru margir sem
telja að Alþýðuflokkur og Fram-
sóknarflokkur hafi komist að
þeirri niðurstöðu, að ekki væri
Forystumenn stjórnarflokkanna. Allt búið í dag?
unnt að vera lengur í stjórn með
Sjálfstæðisflokki og megi þá einu
gilda hvort um sé að kenna skorti
á leiðtogahæfileikum hjá Þor-
steini Pálssyni, eða þá einfaldlega
að hagsmunaágreiningur innan
flokksins sé orðinn það mikill að
honum verði ekki stjórnað. Falli
stjórnin nú, er talið að staða Þor-
steins Pálssonar sem leiðtoga
Sjálfstæðisflokksins sé í mikilli
hættu og að við taki Davíð Odds-
son.
-phh
BSRB
Þjóðviljabikarinn
Skákþing
un helgina
Keppni í telpna- og drengja-
flokki á Skákþingi íslands verður
háð nú um helgina, en i þessum
aldursflokki, 14 ára og yngri, er
keppt um veglegan bikar sem
Þjóðviljinn gaf á sínum tíma.
Umferðirnar verða níu og er
teflt eftir Monrad-kerfí. Um-
hugsunartími á mann eru 40 mín-
útur og er teflt til þrautar á þeim
tíma.
Teflt verður í félagsheimili
Taflfélags Reykjavíkur við
Grensásveg og hefst 1. umferðin í
dag kl. 19 og verður hægt að
innrita sig þar frá kl. 18.30. Skák-
stjóri verður Ólafur H. Ólafsson.
HS
Agreiningur um nýju félögin
Stormasamur fundur um aðildfóstra og meinatækna ístjórn BSRB. Málið
sett ínefnd. Óvíst hvortfóstrur og meinatæknarfá að sitja nœsta þing BSRB
Eftir að stjórn BSKB samþykkti
á stormasömum fundi í fyrra-
kvöld að veita Fóstrufélagi ís-
lands og Meinatæknifélagi Is-
lands aðild að bandalaginu, með
sjö atkvæðum gegn þremur,(einn
sat þjá), bar Órlygur Geirsson
annar varaformaður BSRB, fram
tillögu um að endanleg afgreiðsla
málsins yrði látin bíða og reynt
yrði að ná samstöðu um það. Þar
með tókst að honum að koma í
veg fyrir að þessi tvö félög fengju
aðild að BSRB að sinni. Laga-
nefnd bandalagsins, sem hafði
fjallað um málið, klofnaði í af-
stöðu sinni til þess; meirihluti
nefndarinnar vildi bíða með að
veita þessum félögum aðgang aö
BSRB þar til þau hefðu gert sinn
fyrsta kjarasamning. Minnihlut-
inn vildi hins vegar samþykkja
inngöngu nú þegar, þar sem fé-
lögin uppfylltu skilyrði sem sjálf-
stæðir samningsaðilar samkvæmt
samningsréttarlögunum.
Meirihluti stjórnar BSRB,
með Kristján Thorlacius for-
mann í broddi fylkingar, féllst á
álit minnihluta laganefndar um
að veita bæri félögunum aðild.
En samkvæmt lögum BSRB er
það á valdi stjórnar að sam-
þykkja inngöngubeiðnir frá ný-
jum félögum, síðan þarf þing
samtakanna að staðfesta inn-
gönguna. Næsta þing bandalags-
ins verður haldið í október.
Niðurstaða stjórnarfundarins
varð að skipuð var þriggja manna
nefnd til að reyna að ná sáttum
um þetta mál. í nefndinni eiga
sæti þau Örlygur Geirsson', Guð-
rún Árnadóttir og Sjöfn Ingólfs-
dóttir.
- Við höfum nú ekki fengið
neina formlega tilkynningu frá
BSRB um þetta mál, þannig að
ég vill ekki tjá mig neitt um það
núna,sagði Selma Dóra Þor-
steinsdóttir, formaður Fóstrufé-
lagsins, en hún bætti við að fund-
ur yrði haldinn í næstu viku þar
sem þetta mál verður rætt. Selma
sagði að fóstrur hefðu sótt um að-
ild að BSRB til að tengjast
heildarsamtökum opinberra
starfsmanna því þannig gæti
Fóstrufélagið betur sinnt sínum
félagsmálum.
Ljóst er að ágreiningur þessi
snýst ekki um hvort veita eigi
þessum félögum aðild að BSRB
heldur hvenær þau verða tekin
inn. Eins og fyrir segir stendur
þing samtakanna fýrir dyrum, og
hefur fólk innan hreyfingarinnar
haft á orði við blaðið að verið sé
að koma í veg fyrir að fóstrur og
meinatæknar eigi fulltrúa sem
sjálfstæðir aðilar á næsta þingi
BSRB.
-*8
Borgarstjórn
Aðalstrœti 8
Nýtt leyfi með hraði
Byggingarnefnd féllst ekki á að kynna
íbúum breytingar
Hnútukasat í Grandaunvæðu
Andstaðan: Allt of lágt verð og vinnubrögð borgarstjóra ámœlisverð
Sjálfstæðismenn réðust á tillögur Steingríms
í gærmorgun var byggingar-
nefnd Reykjavíkurborgar kölluð
á aukafund til að samþykkja nýtt
byggingarleyfl fyrir Aðalstræti 8
og var málinu skotið inn í dagskrá
borgarstjórnarfundar sama
kvöld.
Breytingar höfðu verið gerðar
á teikningum til að koma að ein-
hverju leyti til móts við staðfest
Kvosarskipulag. í stað einnar
íbúðar eru þær orðnar 9, sem eru
samt sem áður mun færrí íbúðir
en landnotkun deiliskipulags ger-
ir ráð fyrir. Nýtingarhlutfall hef-
ur lækkað og tengibygging er
horfin.
Borgarstjórnarfulltrúar Al-
þýðubandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalista sátu hjá við af-
greiðslu borgarstjórnar, þar sem
meirihluti byggingarnefndar
hafnaði tillögu um að íbúum yrðu
kynntar breytingarnar. Talið var
að enn væri um að ræða veruleg
frávik frá staðfestu deiliskipu-
lagi, einkum er varðar landnýt-
ingu.
mj
Fulltrúar Sjálfstæðis- og Al-
þýðuflokks í borgarstjórn sam-
þykktu í gær sölusamning Davíðs
Oddssonar borgarstjóra, á meiri-
hluta hlutabréfa í Granda h/f
fyrir 500 miljónir. Fulltrúar ann-
arra flokka töldu það gjafverð og
átöldu að borgarráð hefði verið
hundsað í málinu með vinnu-
brögðum borgarstjóra við samn-
inga um söluna.
Sigurjón Pétursson, alþýðu-
bandalagi, sagði að hér væri
fremur um gjöf að ræða en sölu
miðað við þau verðmæti sem látin
væru af hendi. Sagði hann að ein-
ungis hlutabréf Granda í öðrum
fyrirtækjum væru að verðmæti
340 miljónir, ef matsverð við
sameiningu Bæjarútgerðarinnar
og ísbjarnarins væri fram-
reiknað. Vátryggingaverð fyrir-
tækisins næmi hátt í 2 miljarða og
auk þess væri hægt að meta kvót-
ann, sem fiskiskip Granda hafa, á
yfir 600 miljónir með því að miða
við nýlega sölu á togaranum
Karlsefni. - Þetta er því vond
sala og lélegt verð, sagði Sigur-
jón.
Umræðan um Grandasöluna
tók á þriðja tíma og leiddist út í
harða gagnrýni sjálfstæðisfull-
trúa á tillögu Steingríms Her-
mannssonar um, að hluta af að-
stöðugjöldum stærri bæjarfélaga
yrði veitt til landsbyggðarinnar.
Davíð Oddsson sagði m.a. að á
sama tíma og borginni bærist til-
boð um kaupin á Granda, dúkk-
aði formaður Framsóknarflokks-
ins upp og - ætlar að flytja sömu
upphæð, 500 miljónir, í sukkfyr-
irtæki Framsóknar á landsbyggð-
inni. Júlíus Hafstein tók í sama
streng og sagði að tillögur Stein-
gríms fælu í sér að lána og gefa fé,
sem aðrir hefðu aflað, í stað þess
að gera eins og sjálfstæðismenn:
Selja þessi félagslegu fyrirtæki og
stofna hlutafélög.
mj
10 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ