Þjóðviljinn - 16.09.1988, Blaðsíða 20
Verkamannafélagið
Dagsbrun
Ákveöiö er aö viðhafa allsherjaratkvæöagreiöslu
viö kjör fulltrúa Verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar á 36. þing Alþýðusambands Islands 21. - 25.
nóvember 1988.
Tillögum um 25 aðalfulltrúa og jafnmarga til vara
ber aö skila á skrifstofu Dagsbrúnar Lindargötu 9
miðvikudaginn 21. september 1988, fyrir kl.
16.00.
Kjörstjórn Dagsbrúnar
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Allsherjaratkvæðagreiðsla veröur viöhöfö viö
kjör fulltrúa á 36. þing Alþýðusambands íslands.
Tillögur skulu vera um 18 fulltrúa og jafnmarga til
vara.
Tillögum, ásamt meðmælum eitthundrað
fullgildra félagsmanna skal skila á skrifstofu fél-
agsins, Skólavörðustíg 16, eigi síðar en kl. 11.00
fyrir hádegi föstudaginn 23. september 1988.
Stjórn Iðju
Auglýsing
Fjármálaráðuneytið óskar að ráða starfsmann í
hálft starf til sendistarfa. Umsóknir sendist fjár-
málaráðuneytinu eigi síðar en 27. september n.k.
Fjármálaráðuneytið 14. september 1988
Vistunarheimili -
Öskjuhlíðarskóli
Okkur vantar vistunarheimili á Stór-
Reykjavíkursvæðinu fyrir tvo nemendur utan af
landi, sem stunda nám í Öskjuhlíðarskóla nú í
vetur. Nemendur fara heim í jóla- og páska-
leyfum. Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag
og greiðslur veitir félagsráðgjafi við skólann í
síma 689740 fyrir hádegi.
i Frá Tónlistarskóla
TONUSMRSKOU KÓPNOGS Kópavogs
Skólinn verður settur laugardaginn 17. septemb- er kl. 11.00 í Kópavogskirkju.
Skólastjóri
Auglýsið í
Nýju Helgarblaði
D/tGURMÁL
ANDREA
JÓNSDÓniR
Bubbi
kominn heim...
...og heldur hljómleika á
fimmtudagskvöld á Hótel ís-
landi... Þursaflokkurinn, að Agli
frádregnum, leikur undir - lík-
lega óhætt að mæla með þessum
viðburði fyrirfram... undirrituð
sló á þráðinn til Bubba:
- Velkominn úr Skandinavíu-
reisunni - hvernig hefurðu það?
- Ja, ég er að vona að ég sé
ekki með flensu - þarf að fara að
skella mér í að æfa fyrir plötuna
sem við Megas ætlum að gefa út
fyrir jól.
- Svo eru það hljómleikarnir á
fimmtudaginn...
- Ha?... nei, heyrðu - ég var
næstum búinn að gleyma þeim -
ég er svo spenntur fyrir plötunni
að það kemst næstum ekkert ann-
að að - þetta verður plata sem
mig hefur dreymt um í mörg ár að
gera- blús-djass, og við fáum Jón
Pál gítarleikara til að koma frá
Bandaríkjunum til að spila með
okkur á henni... ég hef alltaf litið
upp til hans eftir að hann spilaði í
79 af stöðinni (Vegir liggja til
allra átta)... Tómas R. mun sjá
um bassaleikinn... melódíuþem-
að verður líkt og á Konu-
plötunni.
- Hvernig var í Skandinavíu?
- Gott, en erfitt... þetta voru
miklar vegalengdir og hljóm-
leikarnir margir... en þetta gekk
vel upp - það auðveldaði mér líka
hvað Moon in the gutter (Skapar
fegurðin hamingjuna) varð vin-
sælt í Svíþjóð - var í 13. sæti þar í
ágústbyrjun... ég fylgdist reyndar
ekkert með því eftir það... Við
héldum hljómleika í Noregi,
Finnlandi og Danmörku, auk
Svíþjóðar.
- Er einhver munur á að spila
fyrir þessar þjóðir?
- Nei, það finnst mér ekki -
það var gomma af öskrandi fólki
allsstaðar, staðráðnu í að
skemmta sér... það er frekar að
maður finni mun á sjálfum sér
milli konserta, það kemur fyrir
að maður er ekki nógu vel upp-
lagður en maður reynir alltaf að
gera sitt besta; áheyrendur eru
held ég gagnrýnni þarna úti en
hér... ef fólk er ekki prófessjón-
alt, sérstaklega í Svíþjóð, þá er
það púað niður... þessi ferð var
Bubbi Morthens - sjö árum fyrir
Skandinavíuhljómleikaferðalagið...
mjög góður skóli fyrir mig, ég gat
skoðað sjálfan mig og endur-
metið... ég kom allsstaðar fram
einn með kassagítar.
- En hvað fáúm við að heyra á
fimmtudaginn?
- Bæði gamalt og nýtt jafnvel
lög sem búið er að semja fyrir
plötu okkar Megasar... annars
eru þessir hljómleikar aðallega til
að skemmta mér sjálfum - það er
svo langt sfðan ég hef spilað með
hljómsveit... en ég vona að aðrir
hafi líka gaman af...
...Sykurmolarnir
líka
... þeir héldu síðasta konsert
sinn -í bili — í Bandaríkjunum sl.
þriðjudagskvöld - í Boston. Ekki
lítur þó út fyrir neitt frí í bráð, því
að í bígerð er hljómleikaferð um
Suður- og Mið-Evrópu, 'agasmíð
ar þurfa sinn tíma og aftur fara
þau til Bandaríkjanna seint á
þessu ári í auglýsingaferð og til að
koma fram í þeim fræga sjón-
varpsþætti þar í landi Saturday
Night Live... reyndar eru samn-
ingar þar um ekki full frá
gengnir... já, og lokakonsertinn í
Boston mun hafa gengið voða
vel...
Hörður og Kiss
Þessar tvær klausur áttu að
birtast um síðustu helgi,en
„duttu“ út... skömminni skárra
er þó seint en aldrei.
Fullt Tungl hjá
Herði
Hörður Torfason hélt sína ár-
legu afmælistónleika síðastliðið
sunnudagskvöld, 4. september,
fyrir að heita má fullu Lækjar-
tungli. Eins og venjulega flutti
hann bæði gamalt og nýtt efni sitt
og voru hljómleikarnir hljóðrit-
aðir.
Fyrir hlé átti Hörður í dulítilli
baráttu við gítarinn sem ekki var
sáttur við að halda sömu stillingu
allan tímann... en áheyrendur
voru stilltir inn á annað en svo-
leiðis smámuni og nutu huggu-
legrar kvöldstundar... þetta var
annars skemmtilega blandaður
og breiður hópur, bæði í aldri og
stfl. Fyrir þá sem ekki vita má
geta þess að Lækjartungl er það
sem áður var Nýja bíó... alveg
ágætis skemmtistaður.
Leiörétting á
leiðréttingu ofan
Poppskríbenti Þjóðviljans
skaust rækilega í skrifum um
Kisshljómleikana um síðustu
helgi, og hefndist þar fyrir trú-
gimina. Eins og fram kom var
enginn kynnir á hljómieikunum
og fór alveg fram hjá mér að
fyrsta hljómsveitin kynnti sig. Því
var eina ráðið að spyrjast fyrir og
fleiri en einn voru á því að þetta
væri Gildran - ég féll sem sagt í
hana... þetta var nefnilega Ljós
heimsins... margur sem ekki hef-
ur áttað sig á því gegnum tíðina.
En ekki er það allt búið enn,
aðal skandallinn eftir: Eiríkur
Hauksson var þarna hvergi við-
staddur... er í útlandinu... Þórð-
ur Bogason heitir hann söngvari
Foringjanna (ég fer með sjón-
auka næst í þessa aflöngu
Reiðhöll)... Hér með eru allir
sem urðu ergilegir, hneykslaðir,
móðgaðir eða leiðir út af þessum
asnaskap mínum beðnir afsökun-
ar... ætli hann útheimti ekki við-
töl við þessar hljómsveitir?...
sjáum til.
IRISH HEAKTKEAT
VAN MORRISON ktTHE CHIEFTAINS
Ég vil endilega koma þessari skemmtHegu mynd á framfæri, en hún átti að
fylgja umsögninni um plötu Vans Morrisonar og Chieftains sem birtist sl.
föstudag: Van Morrison erhérí miðjum hóp Höfðingjanna, frakkaklæddur með
grifflur. Honum á hægri hönd er meðútsetjari hans á þessari plötu, sekkjapipu-
leiarinn Paddy Moloney, við hlið hans flautuleikarinn Matt Molloy og lengst til
vinstri á myndinni Kevin Conneff, sem tekur lagið með Morrison á plötunni,
syngur m.a. á ekta gelísku I laginu Tá mo chleamhnas déanta... auk hans
koma við söng þrjár bakraddastúlkur: Mary Black, June Boyce og Maura
O’Connell. Lengst til hægri á myndinni, með staf og gleraugu, er hörpu- og
hljómborðsleikarinn Derek Bell, við hlið hans fiðlarinn Martin Fay og loks annar
fiðlari til, Sean Keane. Þess má svo geta að auk þess að vera forsöngvari á
þessari plötu leikur Van Morrison á gítar og trommur.
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ