Þjóðviljinn - 16.09.1988, Síða 21

Þjóðviljinn - 16.09.1988, Síða 21
MENNING Fréttaljósmynd ársins, eftir Anthony Suau, Black Star, New York. Sonur konunnar var handtekinn ásamt þúsundum annarra, þegar þeir reyndu að sanna kosningasvik í kosningunum í S-Kóreu í desember 1987. Fréttaljósmyndir 88 Hluti myndanna úr World Press Photo til sýnis í Listasafni ASÍ Hin árlega fréttaljósmynda- sýning World Press Photo stend- ur nú yfir í Listasafni ASÍ, og eru til sýnis 125 af þeim rúmlega níu þúsund myndum sem sendar voru í keppnina þessu sinni. Upphaf keppninnar er rakið til ársins 1956, þegar nokkrir hol- lenskir fréttaljósmyndarar bund- ust samtökum um að efna til al- þjóðlegrar samkeppni um bestu blaðaljósmyndirnar. Var tilgang- urinn meðal annars að vekja áhuga almennings á fréttaljós- myndum auk þess sem sam- keppnin var liður í baráttunni fyrir frjálsri fréttamiðlun í heiminum, og auknum skilningi manna og þjóða í milli. Þessi óformlegu samtök urðu smám saman að stofnuninni World Press Photo Foundation, sem árlega gengst fyrir fréttaljós- myndasamkeppni. í ár voru veitt verðlaun í 9 efnisflokkum, auk þess sem allmargar ljósmyndir hlutu sérstaka viðurkenninga. Sýningin stendur til 25. sept- ember og er opin alla virka daga kl. 16:00-20:00, og kl. 14:00- 20:00 um helgar. Igor Utkin, Photokhronika Tass, Moskvu, fékk fyrstu verðlaun í (þrótta- flokknum fyrir þessa mynd af einum sigurvegaranna í íþróttakeppni á vegum blaðsins. Myndasyrpur í flokknum vísindi og tækni. Thomas Stephan, Geo Magazine, Hamborgfékkfyrstu verðlaun fyrir þessa mynd sem hann tók af því þegar blóðsýni vartekið úrfimmburafæddum þremur mánuðum fyrir tímann. Gleöilegur viðburður í fyrsta flokki telst þessi mynd eftir David Graves, The People, London, vera. Myndin ertekin við upptöku þögullar kvikmyndar eftir handriti Eric Sykes sem einnig lék einn burðarmannanna (2. frá vinstri). Atriðið er tekið í glaðasólskini. NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.