Þjóðviljinn - 21.09.1988, Page 1
Miðvikudagur 21. september 1988 208. tölublað 53. árgangur
Stjórnarmyndunarviðrœður
Höfnuðu viðræðum um
að veria launakjör
Kvennalistinn vill ekki stjórn með Alþýðubandalagi, Alþýðuflokki og Framsókn. Viljaþjóðstjórn og kosningar.
Eru ekki til íríkisstjórn þótt í boði vœri afnám áfrystingu launa. ÓlafurRagnar Grímsson: Mikil vonbrigði. Ekki reyntað
nýta tœkifœri til að markaþáttaskil í íslenskri pólitík. Skilar Steingrímur Hermannsson umboðinu ídag?
„Það urðu Alþýðubandalags-
fólki mikil vonbrigði að Kvenna-
listinn skyldi hafna því að taka
þátt í tilraun til að mynda ríkis-
stjórn jafnréttis- og félagsafla í
landinu," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson í gær eftir að ljóst varð
að ekkert yrði af myndun ríkis-
stjórnar Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks, Framsóknar og
Kvennalista. Fullltrúar Kvenna-
listans höfðu þá gert grein fyrir
þeirri afstöðu flokks síns að eng-
inn grundvöllur væri fyrir mynd-
un meirihlutastjórnar um ákveð-
in málefni. Pær vilja kosningar en
að mynduð verði til bráðabirgða
samstjórn allra flokka, þjóð-
stjórn, sem leysi efnahagsmálin
til bráðabirgða. Óiafur bætti
við: „Það hefur verið draumur
þúsunda íslenskra vinstri manna í
langan tíma að slík þáttaskil gætu
orðið. Sagan kennir okkur að slík
tækifæri myndast kannski einu
sinni á áratug eða svo. Þegar ljóst
var að Alþýðuflokkur og Fram-
sóknarflokkur voru tilbúnir til
viðræðna við Alþýðubandalagið
um að mynda jafnréttis- og fél-
agshyggjustjórn og Kvennalist-
inn gæti orðið fjórði flokkurinn í
slíkri stjórn, áttum við von á að
þær vildu a.m.k. skoða þetta
tækifæri til að koma hér í fram-
kvæmd víðtækum umbótum í
jafnréttis-, fjölskyldu-, launa- og
umhverfismálum og á mörgum
öðrum sviðum.
Sérstaklega varð ég undrandi
þegar fulltrúar Kvennalistans
lýstu því yfir að jafnvel þótt í boði
væri afnám á frystingu launa, þá
væru þær ekki reiðubúnar að taka
þátt í viðræðum um slíka
jafnréttis- og félagshyggjustjórn.
Þær vilja bara kosningar og
skammtíma þjóðstjórn sem á að
starfa á óljósum stefnugrund-
velli. Sagan kennir okkur hins
vegar, því miður, að kosningar
veita enga tryggingu fyrir því að
slíkir möguleikar verði enn fyrir
hendi að þeim loknum. Nú var
hins vegar tækifærið.
í viðræðunum nefndi ég einnig
þann möguleika að mynduð yrði
stjórn þessara fjögurra flokka
sem setti fram langtíma umbóta-
áætlun, stjórn sem í 1 til 2 misseri
myndi sanna vilja sinn í fram-
kvæmd og efna síðan til kosninga
þar sem þjóðin fengi að kjósa um
framtíðarstefnu slíkrar jafnréttis-
og félagsstjórnar. Þá hefðu kosn-
ingar raunverulega merkingu.
Þessu höfnuðu þær því miður
einnig.“
í gærkvöldi ræddi Steingrímur
Hermannsson við Stefán Val-
geirsson og síðan við fulltrúa frá
Borgaraflokknum. Klukkan hálf-
ellefu fyrir hádegi í dag gerir
hann fulltrúum Alþýðubandalags
og Alþýðuflokks grein fyrir þeim
viðræðum. Ekki er reiknað með
að Steingrímur haldi umboði til
stjórnarmyndunar lengi ef ekki
ræðst í dag hvort einhver grund-
völlur er til umræðna um myndun
meirihlutastjórnar. Enn hafa Al-
þýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur ekkert gefið eftir með
hugmyndir sínar um launafryst-
ingu en Alþýðubandalagið hefur
gert kröfu um að kjarasamningar
fái að gilda.
Margrét Frímannsdóttir al-
þingismaður, sem tók þátt í við-
ræðum flokkanna fjögurra í gær,
segist einnig vera mjög undrandi
á afstöðu Kvennalistans. „Ég
hafði ekki búist við öðru en að
Kvennalistakonur myndu að
minnsta kosti vilja skoða málin
og ekki neita fyrirfram. Miðað
við málflutning þeirra í vetur
reiknaði ég með að þær vildu at-
huga hvort þær kæmu einhverju
af sínum málum fram í stað þess
að heimta kosningar. Ég held að
afstaða þeirra mótist af útkomu í
skoðanakönnunum undanfarið
og að þær horfi of stíft á þann
möguleika að geta náð í fleiri
þingsæti en þær hafa nú. En mest
kom mér á óvart að þær skyldu
afdráttarlaust hafna frekari um-
ræðum til myndunar ríkisstjórn-
ar, jafnvel þótt með siíkri ríkis-
stjórn tækist að afnema launafr-
ystinguna.
Fyrsti og jafnframt síðasti viðræðufundur Kvennalistans um myndun son og Guðmundur Bjarnason, Margrét Frímannsdóttir og Ólafur
ríkisstjórnar með A-flokkunum og Framsókn. Frá vinstri: Jóhanna Ragnar Grímsson, Þórhildur Þorleifsdóttir og Kristín Halldórsdóttir.
Sigurðardóttir og Jón Baldvin Hannibalsson, Steingrímur Hermanns- Mynd: Jim Smart. Sja SloU 2
Burma
Heimenn gerast
ríkisstjóm
Hermennirnir sem rifu öll völd
í sínar hendur í Burma á sunnu-
dag komu á fót ríkisstjórn í gær.
Átta af níu ráðherrum eru hers-
höfðingjar og úr 19 manna „Rík-
isnefnd til þess að koma á lögum
og reglu.“
Erlendir sendiráðsmenn í
Rangún staðhæfa að a.m.k. 500
manns hafi fallið fyrir hendi her-
manna í fyrradag og segja ljótar
sögur af hryðjuverkum þeirra.
Sjá síðu 13
Mótmæli í Rangún. Blóðbað á
degi hvetjum.
BSRB
Félögin
einróma
samþykkt
Stjórn BSRB hefur samþykkt
einróma þá tillögu Kristjáns
Thorlaciusar formanns sam-
bandsins að veita Fóstrufélaginu
og sjúkraiiðum fulla aðild að
sambandinu.
UA
Gunnar ráðinn
Hlaut stuðning fulltrúa Alþýðuflokks
Gunnar Ragnars, oddviti
Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn
Akureyrar og forstjóri Slipp-
stöðvarinnar, var í gær ráðinn eft-
irmaður Gísla Konráðssonar sem
framkvæmdastjóri Útgerðarfé-
Iags Akureyringa á Akureyri
með stuðningi Sjálfstæðismanna
og krata.
Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
fulltrúi segir að ráðning Gunnars
sé pólitísk, burtséð frá því hversu
hæfileikaríkur hann sé. Hún seg-
ist óttast framtíð fyrirtækisins og
að örlög þess verði svipuð þeim
og hafa orðið hjá Granda hf., að
lenda í klónum á einkaaðilum.
Sjá síðu 2