Þjóðviljinn - 24.09.1988, Page 2
FRÉTTIR
Stjórnannyndun
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokks-
ins, gekk á hádegi í gær á fund
forseta Islands, Vigdísar Finn-
bogadóttur, og tjáði henni að
hann teldi að öruggt að honum
tækist að mynda meirihluta-
stjórn. Það voru Framsóknar-
flokkur, Alþýðubandalag, Al-
þýðuflokkur og Samtök jafnréttis
og félagshyggju sem í gær og í nótt
stóðu að gerð málefnasamnings
hinnar væntanlegu ríkisstjórnar,
sem verður undir forsæti Stcin-
gríms Hermannssonar. Viðræð-
urnar fóru fram í Rúg-
brauðsgerðinni, Borgartúni 6.
Borgaraflokkurinn verður
ekki með sem aðili að þessari rík-
isstjórn, jafnvel þótt þingflokkur
hans allur eða einstakir þing-
menn kunni að styðja hana í ein-
stökum málum, eftir aðstæðum.
Fulltrúar Alþýðubandalagsins og
Kvennalistans áttu saman fund í
fyrrinótt, þar sem fram kom að
Kvennalistinn mundi ekki beita
sér fyrir því að fella þessa ríkis-
stjórn, eins og Kristín Halldórs-
dóttir lýsti reyndar yfir í viðtali
við Nýja helgarblaöið í gær.
Þó svo að ríkisstjórnin sé í
burðarliðnum og flest bendi til að
fæðingin takist, eiga fiokkarnir
eftir að koma sér endanlega sam-
an um málefnasamninginn, hugs-
anlegan samstarfssamning og síð-
ast en ekki síst hvaða ráðuneyti
falli hvaða flokki í skaut. Ferlið
gengur þannig fyrir sig, a.m.k.
formlega, að fyrst koma flokk-
arnir sér saman um málefna-
samning og var það gert í gær og
nótt. Síðan eru málin lögð fyrir
miðstjórnir flokkanna, sem taka
ákvörðun um hvort af þessari rík-
isstjórn verður eða ekki, en
miðstjórnar- og flokksráðsfundir
flokkanna eru ráðgerðir í dag.
Það er svo mismunandi eftir
flokkum hvort ráðherralisti er
lagður fyrir miðstjórn eða ekki.
Svavar Gestson sagði í gær, þegar
Þjóðviljinn ræddi við hann, að
ráðherralisti Alþýðubandalags-
ins yrði ekki lagður fyrir mið-
stjórn og hefði það aldrei verið
gert. Miðstjórnin tæki ákvörðun
um þátttöku í ríkisstjórn á grund-
velli þess málefnasamkomulags
sem náðst hefði, það væri hins
vegar þingflokksins að taka af-
stöðu til ráðuneytaskiptingar og
ákveða ráðherraefnin. Páll Pét-
ursson, þingflokksformaður
Framsóknarflokksins, sagði hins
vegar að þegar miðstjórn tæki
ákvörðun um ríkisstjórnarþátt-
töku, lægi ráðherralistinn fyrir og
yrði jafnframt tekin afstaða til
hans.
Þó svo að Albert Guðmunds-
son hafi látið líkindalega í fjöl-
miðlum með að Borgaraflokkur-
inn tæki sæti í ríkisstjórninni og
að hann fengi ráðherrasæti, þá
voru allar Iíkur á því í gær að sú
yrði ekki raunin. Hans var ein-
faldlega ekki talin þörf, auk þess
sem menn kunna að hafa í huga
að Hafskips- og Útvegsbankam-
álið er hugsanlega á leiðinni fyrir
dómstóla. Reyndar er talið að
Albert liafi náð að skora nokkur
stig fyrir sig og flokk sinn undan-
Alþýðubandalagsmenn voru kallaðir til víða af landsbyggðinni í gær. Hér bera saman bækur sínar í
Rúgbrauðsgerðinni þau Svanfríður Jónasdóttir, Steingrímur Sigfússon, Sigríður Stefánsdóttir og Finnbogi
Jónsson. Mynd: E.Ól.
farna daga. Fyrst náði hann
ákveðinni viðurkenningu frá
Sjálfstæðisflokki með þeim við-
ræðum sem þar fóru fram á milli
og í annan stað hefur hann leikið
ákveðið hlutverk í þeim stjórn-
armyndunarviðræðum sem nú
fara fram. Engan þarf hins vegar
að undra að Albert virðist tilbú-
inn að taka þátt í ríkisstjórn,
hvort sem er til hægri eða vinstri.
Fylgi flokksins virðist hrunið,
hann þarf greiðan aðgang að
kjötkötlunum ef hann á að geta
haldið áfram að leika hlutverk
fyrirgreiðslustjórnmálamanns-
ins. Og ef réttarhöld kynnu að
vofa yfir, stæði hann mun betur
að vígi í ráðherrastól, með þeirri
viðurkenningu sem því fylgir.
-phh
Stefán Valgeirsson á hringsóli í Rúgbrauðsgerðinni í gær. Hversu hátt
kemst hann?
Ríkisstjórnin
Hverjir fá stólana?
Sömu nöfnin hjá Framsókn og krötum. Enn er óljóst
hverjir verða tilkallaðir hjáAB.
Landsmenn velta því eðlilega
fyrir sér hverjir muni verma
ráðherrastólana á næstunni.
Þessi atriði hafa enn aðeins verið
rædd óformlega og því ómögulegt
að slá nokkru föstu. Það eitt er
öruggt að Steingrímur Her-
mannsson verður forsætisráð-
herra. Ráðuneytin eru eliefu alls
og er talið líklegt að Framsókn fái
fjögur þeirra, Alþýðubandalag
og Alþýðuflokkur þrjú hvor og
hugsanlegt er að Stefán Valgeirs-
son setjist sjálfur í ráðherrastól.
Að sögn Stefán gera Samtök
jafnréttis og félagshyggju afdrátt-
arlausa kröfu til ráðherrastóls og
vilja helstu stuðningsmenn Stef-
áns að hann setjist sjálfur í stól-
inn. Stefán sagði að hann hefði
mestan áhuga á þremur ráðu-
neytum; landbúnaðarráðuneyti,
samgönguráðuneyti og félags-
málaráðuneyti.
Líkleg ráðherraefni Fram-
sóknar, eru auk Steingríms, þeir
Halldór Ásgrímsson, Guðmund-
ur Bjarnason og Jón Helgason.
Jón Baldvin, Jón Sigurðsson og
Jóhanna Sigurðardóttir koma frá
Alþýðuflokki og líkleg ráðherra-
efni Alþýðubandalagsins þykja
þeir Ólafur Ragnar Grímsson,
Svavar Gestsson og kona að auki.
Hver sú kona verðurerekki ljóst,
en Guðrún Helgadóttir er ofar-
lega á blaði, en að auki kæmu til
greina Svanfríður Jónasdóttir
eða Sigríður Stefánssdóttir.
Þótt hér séu að mestu getgátur
á ferðinni er þó eitt öruggt,
fréttamenn þurfa ekki Iengur að
óttast mismæli þegar þeir segja:
„Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra sagði....“ phh
Málefnasamningurinn
í móhin
Herstöðvarsamningurinn endurskoðaður. Samningsréttur
endurheimtur um áramót. Frysting launa afnuminfyrren
bráðabirgðalögin kváðu á um. Fjármálafyrirtækiskattlögð og
niðurgreiðslur auknar á algeng matvœli
Málefnasamningur Stein-
grímu, hinnar nýju ríkis-
stjórnar Framsóknar, Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og Sam-
taka jafnréttis og félagshyggju, er
nú í mótun. Það sem fyrir liggur
um þau samkomulagsdrög sem
kunn eru, er einkum á sviði efna-
hagsmálanna. En að auki hefur,
að kröfu Alþýðubandalagsins,
verið rætt um að varnarsamnin-
gurinn verði tekinn til endur-
skoðunar og ýmis fleiri mál sem
tæplega er eining um.
Talið er að grunnur málefna-
samningsins verði í stórum drátt-
um þessi: Samningsrétturinn
verði endurheimtur um áramót í
stað 10. apríl eins og bráða-
birgðalög kváðu á um, en bæði
BSRB, sjómenn og fleiri starfs-
stéttir hafa lausa samninga frá
áramótum. Frystingu launa verði
aflétt að hluta frá og með 1. des-
ember, en þá verða greiddar
verðbætur á laun, auk þess sem
hugsanlega verður komist að
samkomulagi um einhverja
hækkun lægstu launa. Matar-
skatturinn svokallaði verði tek-
inn til endurskoðunar á þann veg
að niðurgreiðslur verði auknar á
algengar matvörur, kjöt, fisk og
mjólkurvörur og á þann hátt
dregið úr áhrifum söluskattsins á
efnahag heimilanna.
Þá verður í gildi verðstöðvun
til 10. apríl á næsta ári þar sem
eingöngu verður heimilt að
hækka verð á vöru og þjónustu
sem nemur sannanlegri hækkun á
erlendu innkaupsverði eða hækk-
un á innlendum grænmetis- og
fiskmörkuðum.
Gjaldskrár opinberra fyrir-
tækja og stofnana verða einnig
óbreyttar til 10. apríl og sama
gildir um útselda vinnu og þjón-
ustu. Óheimilt verður einnig að
hækka húsaleigu á þessum tíma.
Þá verða meðalraunvextir
lækkaðir um 3% og lánskjaravísi-
tölu breytt þannig að vísitaia
Iauna hafi helmingsvægi á fram-
færsluvístitölu og vísitölu
f ramfærslukostnaðar.
í samkomulagi flokkanna er
gert ráð fyrir sérstakri skattlagn-
ingu á fjármálafyrirtæki og að
frádráttarheimildir fyrirtækja
vegna tekjuskatts verði lækkað-
ar. Einnig er rætt um nýtt tekju-
skattsþrep, sérstakan hátekju-
skatt og skattlagningu vaxta-
gróða. Auknar tekjur ríkissjóðs
af þessari skattlagningu eiga að
tryggja hallalaus fjárlög á næsta
ári.
Varðandi sérstakar aðgerðir
fyrir fiskvinnsluna og sjávarút-
veginn verður unnið eftir hug-
myndum um millifærslur, afurða-
lánakerfið endurskoðað og kom-
ið á sérstökum bjargráðasjóði út-
flutningsatvinnuveganna.
-phh
Stjórnmálin
Ríkisstjóm í burðarliðnum
- Fjögurraflokka viðrœður um málefnasamningfara núfram. Steingrímur Hermannsson nœstiforsœtisráðherra
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. september 1988