Þjóðviljinn - 24.09.1988, Síða 9
ERLENDAR FRETTIR
Útrvminfi Kúrda
Irakar
sannir
að
Sérfrœðingar ávegum Öldungadeildar
Bandaríkjaþings hafa samið skýrslu um
niðurstöðufarar sinnar á slóðir kúrdískra
flóttamanna í Tyrklandi
Hinar tíðu og óvægnu
eiturefnaárásir Irakshers á
byggðir Kúrda eru liður i víð-
tækri áætlun um eyðingu þjóðar,
tvíþættri áætlun um fjöldamorð
og herleiðingu. Afar sterkar líkur
benda til þess að kúrdísk fórnar-
lömb Irakshers skipti nú hund-
ruðum þúsunda.
Petta er niðurstaða skýrslu sem
sérfræðingar á vegum Öldunga-
deildar Bandaríkjaþings unnu og
sömdu nú á dögunum. Hún var
kynnt utanríkismálanefnd deild-
arinnar og fréttamönnum í fyrra-
dag.
Höfundarnir heita Peter Gal-
braith og Christopher van Holl-
en. Þeir eru nýkomnir heim úr
Tyrklandsför. Þar dvöldu þeir
um fjögurra daga skeið á meðal
kúrdískra flóttamanna við landa-
mærin að írak, ræddu við fjöl-
marga þeirra og ennfremur fyrir-
menn úr röðum heimamanna.
Skýrsluhöfundar segja að Ir-
aksstjórn sé í óða önn að uppræta
menningu og samfélag Kúrda,
afmá þjóðerni þeirra. Margir séu
drepnir og aðrir herleiddir á ó-
kunnar slóðir, óbyggilegar eyði-
merkur í suðri. Þorp þeirra séu
lögð í rúst, sprengd í loft upp og
Þjóðarmorð.
jöfnuð við jörðu, akrar brenndir
og búpeningur felldur.
„fraska Kúrdistan er að verða
að fjallaauðn. Ef svo heldur sem
horfir og ekki verður tafarlaust
gripið í taumana verður brátt
ekki hægt að sjá neinn vott um
mannabyggð utan marka Sula-
ymaniyya, Halabja og tveggja
eða þriggja annarra stórra bæja.
Þjóðlíf sem stendur á ævafornum
merg er að hverfa af svæði sem
verið hefur í byggð frá örófi
alda.“
Kúrdar sem búsettir voru nærri
landamærum, að Tyrklandi eða
íran, og flúðu land, kunna að
vera þeir einu sem auðnast hefur
að forðast skjótan dauða ellegar
afar erfiða og mannskæða nauð-
ungarflutninga. Engar sögur fara
af örlögum Kúrda í innhéruðum
en ef írakar hafa komið þar fram
af sömu grimmd og hörku og í
landamærabyggðum „þá er afar
líklegt að fórnarlömb skipti
hundruðum þúsunda," segja
skýrsluhöfundar.
Þótt íraksher hafi þrásinnis
beitt eiturefnavopnum í styrjöld-
inni við fraka, bæði gegn
hersveitum Kómeinís og kúrdísk-
um bandamönnum þeirra, keyrði
Bandaríska kosningabaráttan
Sjónvarpseimrígi
á morgun
Bush ráðlögð Ijúfmennska - Dukakis meiri harka
Amorgun, sunnudag, leiða
frambjóðendur til forseta-
embættis í Bandaríkjunum, repú-
blíkaninn George Bush varafor-
seti og demókratinn Michael
Dukakis ríkisstjóri, saman hesta
sína í sjónvarpi. Er margra ætlan
að frammistaða þeirra í því ein-
vígi muni ráða úrslitum í
kosningabaráttunni. Er því beðið
eftir viðureigninni í spenningi og
góðu ráðin til frambjóðenda ekki
spöruð.
Að vísu verður það svo að
frambjóðendur eigast ekki
beinlínis við sjálfir, heldur mun
hópur blaðamanna spyrja þá
spjörunum úr. Þrátt fyrir þetta
form er líklegt að sjónvarpsþátt-
urinn komi út sem einskonar
kappræða. Bandarískir
kosningasérfræðingar telja að
málefni muni litlu skipta í viður-
eign þessari, heldur muni sá sigur
hafa sem betur takist að vekja
þægileikakennd hjá kjósendum.
Eða kannski, með öðrum orðum
sagt, að líta traustvekjandi út á
skjánum.
Bush hefur undanfarið, og að
því er virðist með einhverjum ár-
angri, borið það á Dukakis að
hann sé alltof slakur í baráttunni
gegn glæpum og að ekki sé hon-
um heldur vel treystandi til að
halda hervörnum Bandaríkjanna
nægilega sterkum. Kosningasér-
Bush - ég kann jobbið.
Dukakis - á undanhaldi hjá skoð-
anakönnuðum.
fræðingar ráðleggja Dukakis að
svara þessu á morgun meö því að
sækja í sig veðrið, sýna vissa
hörku og reyna að komast í sókn í
einvíginu. Sérfræðingarnir telja
hinsvegar hyggilegra fyrir Bush
að draga úr hvefsninni, sem
nokkuð hefur einkennt málflutn-
ing hans undanfarið, og koma í
staðinn fram sem ljúfmannlegur
mannasættir og landsfaðir. Þá er
og talið skynsamlegt fyrir hann
að brýna fyrir þjóð sinni að hugsa
fyrst um þverbak eftir að vopna-
hléð gekk í gildi þann 25. fyrra
mánaðar.
Þá gátu Saddarn Hussein og
kumpánar hans loks snúið sér
óskiptir að Kúrdunt. Ýmsir giska
á að kúrdískir uppreisnarmenn
hafi fellt 16 þúsund íraska her-
menn í Persaflóastríðinu og því
hugsuðu ráðamenn í Bagdað
þeirn þegjandi þörfina. Eftir
niðurlægingu í átta ár var hefnd-
arþorstinn brennandi og honum
er verið að svala með „lokalausn
vandamálsins."
Fimm dögum eftir gildistöku
vopnahlésins hófust írakar handa
í norðri, herma Galbraith og van
Hollen. íraskar sprengjuflugvél-
ar og þyrlur vörpuðu eiturefna-
sprengjum á fjölmörg þorp í hér-
uðunum Zakho, Dihok og Ama-
diyah, þar af 33 í Dihokhéraði.
Þeir hafa fyrir satt, og vitna
máli sínu til stuðnings í fjölda
flóttamanna, að mikil gul
reykský hafi stigið upp þaðan
sem sprengjurnar féllu til jarðar,
síðan hafi eituslæða lagst yfir
víðar lendur. Fnykurinn hafi ver-
ið óskaplegur. Minnt suma á
„skemmdan hvítlauk," aðra á
„rotin epli" eða „úldinn lauk.“
Örlögum fórnarlamba er lýst
ítarlega í Nýju helgarblaði og því
óþarfi að endurtaka þau ósköp.
Búpeningur, einkum asnar og
geitur á þessum slóðum, féll
hvarvetna, fljúgandi fuglar féllu
dauðir til jarðar, hverskyns skor-
kvikindi drápust og grös sölnuðu.
Þegar áhrifa eitursins gætti ekki
lengur héldu íraskir fótgöngulið-
ar inní aldauða þorpin og jöfnuðu
þau við jörðu.
Rcuter/-ks.
ekki einungis um þessa heims
gæði, heldur og halda sig við
hærri vegi hugsjónanna. Þessu
hefur þegar brugðið fyrir í kosn-
ingabaráttu hans, til dæmis um
daginn er hann sagði við kjósend-
ur að þeir ættu ekki að hugsa um
það eitt að verða „feitir og ham-
ingjusamir."
Gert er ráð fyrir að Dukakis
muni rifja upp gamalkunnar efa-
semdir um leiðtogahæfileika
Bush, sem og leiða í tal íran-
vopnasöluhneykslið, vandræði
Reaganstjórnarinnar með Nori-
ega Panamaforingja og valið á
Dan Quayle, öldungadeildar-
þingmanni frá Indiana, sem vara-
forsetaefni, en hæfileikar hans til
að gegna hæstu embættum eru
dregnir í efa af mörgum kjósend-
um. Bush er á hinn bóginn lík-
legur til að telja sér til gildis feril
sinn sem varaforseta og benda
auk þess á að hann hafi verið for-
stjóri CIA, sendiherra til Kína og
ambassador hjá Sameinuðu
þjóðunum. Hann muni því hafa
að baki reynslu, sem Bandaríkja-
forseti þurfi að hafa.
Fyrir um tveimur mánuðum
var Dukakis langt á undan í fylgi
samkvæmt niðurstöðum
skoðanakannana, en nú er Bush
kominn fram úr honum á þeim
vettvangi, þótt munurinn sé lítill.
Reuter/-dþ.
REYKJAVÍKURHÖFN
Auglýsing frá
Reykjavíkurhöfn
Reykjavíkurhöfn óskar eftir aö ráða til starfa
járnsmiði og verkamenn í Bækistöð Reykjavíkur-
hafnar.
Nánari upplýsingar gefa verkstjórar í Bækistöð
Reykjavíkurhafnar, Hólmaslóð 12, Örfirisey og í
síma 28211.
Reykjvíkurhöfn
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Hita-
veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í 10 MVA
132 (66) /11 kV spenni fyrir Nesjavallavirkjun.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
25. október kl.11.00
INNK'AUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Starfsmannafélagið Sókn
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu við kjör fulltrúa á 36. þing ASl, 25.
nóvember 1988, og er hér auglýst eftir tillögum
um fulltrúa á þingið. Frestur til að skila listum er til
kl. 12.00 mánudaginn 3. október. Hverjum lista
þurfa að fylgja meðmæli 100 fullgildra félags-
manna. Listum ber að skila á skrifstofu félagsins
að Skipholti 50A.
Stjórnin
Laugardagur 24. september 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9