Þjóðviljinn - 27.09.1988, Síða 1
\
Ný ríkisstjórn
Stjómannyndun í nótt
StjórnqrmyndunarviðrœðurA-flokka, FramsóknarogStefáns Valgeirssonarálokastigiínótt. Aðalheiður
og OliÞ. ístuðningsliðinu. Nýstjórn tekur vœntanlega við á morgun. MiðstjórnAlþýðubandalagsins
fundar um stjórnarþátttöku ídag. Ólafur Ragnar Grímsson: Niðurstaða í dag
- Flokkarnir hafa nálgast og
málin hafa skýrst. Það er mjög
mikilvægt að koma í veg fyrir að
íhaldinu takist að ná landsstjórn-
inni aftur í sínar hendur. Þegar
Þorsteinn Pálsson fékk stjórn-
armyndunarumboðið fóru hjólin
aftur að snúast hjá þeim flokkum
sem hafa verið að ræða saman
sfðustu daga og nætur og ég þyk-
ist viss um að nýr dagur mun skila
niðurstöðu, sagði Ólafur Ragnar
Grímsson formaður Alþýðu-
bandalagsins í samtali við Þjóð-
viljann á miðnætti í nótt. Þá stóð
yfir fundur þingflokks Alþýðu-
bandalagsins á heimili Steingríms
J. Sigfússonar formanns þing-
flokksins í Breiðholtinu í Reykja-
vík.
Á fundi þingflokksins fyrr í
gærdag náðist samkomulag sem
tryggir fullan stuðning þing-
flokksins við væntanlega ríkis-
stjórn Alþýðubandalags, AI-
þýðuflokks og Framsóknar-
flokks. Auk Stefáns Valgeirs-
sonar er nú ljóst að tveir þing-
menn Borgaraflokksins, þau Að-
alheiður Bjarnfreðsdóttir og ÓIi
Þ. Guðbjartsson eru reiðubúin
að styðja þessa ríkisstjórn og
verja hana falli.
Viðræðunefndir þingflokk-
anna funduðu í gærkvöld fyrir
þingflokksfundi flokkanna, þar
sem rætt var m.a. um breytingar á
fyrirliggjandi stjórnarsáttmála
varðandi kröfu Alþýðubanda-
lagsins um samningsrétt verka-
lýðshreyfingarinnar. Endanlegur
frágangur stjórnarsáttmála vænt-
anlegrar stjórnar undir forsæti
Steingríms Hermannssonar var
kominn á lokastig um miðnætti
og fyrirhugaður var fundur for-
manna flokkanna síðar um nótt-
ina til að ganga m.a. frá skiptingu
ráðuneyta.
Stefán Valgeirsson gerði í gær-
kvöld kröfu um að fá ráðherra-
embætti í sinn hlut en við litlar
undirtekir formanns Framsókn-
arflokksins. Samkvæmt heimild-
um Þjóðviljans var allt eins lík-
legt að Óla Þ. Guðbjartssyni yrði
boðin ráðherrastaða.
Miðstjórn Alþýðubandalags-
ins verður væntanlega kölluð
saman til fundar síðdegis í dag til
að taka afstöðu til væntanlegrar
stjórnarmyndunar en búist er við
því að verði stjórnarmyndunin
samþvkkt í miðstjórninm geti ný
ríkisstjórn tekið við völdum á
morgun, miðvikudag.
Sjá síður 2, 5, 7 og
leiðara
Þingflokkur Alþýðubandalagsins ásamt formönnum flokksins, miðstjórnar og framkvæmdastjórnar á fundi á heimili Steingríms J. Sigfússonar
í Reykjavík í gærkvöld, en Steingrímur hafði fengið snert af flensu en var allur að hressast. Frá v. Svanfríður Jónasdóttir, Margrét Frímannsdóttir,
Steingrímur, Guðrún Helgadóttir, Svavar Gestsson, Ragnar Arnalds, Hjörleifur Guttormsson, Olafur Ragnar Grímsson, Geir Gunnarsson,
Skúli Alexandersson og Sigurjón Pétursson. Mynd-E.Ol.
Erlent verkafólk
Kemst ekki heim
Hópur bresks fiskverkafólks í óvissu
Verslanir
JL-húsið
lokað
Um hálf fimm leytið í gær var
öllum deildum JL-hússins við
Hringbraut lokað. Samkvæmt
heimildum blaðsins er talið að
fyrirtækið verði tekið til gjald-
þrotaskipta.
Fyrirtækið Jón Loftsson hf sem
rekur JL-húsið hefur stundað
umfangsmikinn verslunarrekstur
í húsi sínu við Hringbraut um all
langt skeið. í JL-húsinu hefur
verið rekinn stór matvælamark-
aður, raftækjadeild, húsgagna-
deild og búsáhaldadeild. í allt
voru um 30 manns á launaskrá
hjá fyrirtækinu.
-sg
Hópur Breta sem unnið hefur í
Hraðfrystihúsi Grindavíkur bíð-
ur nú í óvissu um það hvenær
hann kemst til baka til Bretlands
og hvenær hann fær uppgert kaup
og orlofsgreiðslur. Hraðfrysti-
húsið sagði upp öllu lausráðnu
starfsfólki og öllum útlendingum
í síðustu viku en forráðamenn
þess hafa ekki gefið Bretunum af-
gerandi svör um hvenær þeirra
málum verði komið á þurrt.
í samtali við Þjóðviljann segja
Bretarnir að þeim hafi ekki verið
sagt hvenær Hraðfrystihúsið ætli
að kaupa farseðil handa þeim til
Bretlands og hvenær þeir fái upp-
gert.________________________
Sjá síðu 3
Seoul
Johnson
fallinn
Gullinu skilað
tilLewis
Ben Johnson, fótfráisti maður
heims, féll á lyfjaprófi eftir að
hafa sigrað í 100 metra hlaupi Ól-
ympíuleikanna. Hann sigraði í
hlaupinu með nokkrum yfirburð-
um og setti einnig heimsmet í
greininni, en jákvæð niðurstaða
lyfjaprófsins snýr dæminu við.
Johnson verður nú dæmdur í
langt keppnisbann og hann verð-
ur að skila gullverðlaunum sínum
til erkifjenda síns, Carl Lewis.
Fyrir vikið eygir Lewis mögu-
leika á að endurtaka afrek sitt frá
Ólympíuleikunum í Los Angeles
þar sem hann sigraði í fjórum
greinum, en slíkt myndi setja
hann á pall með mestu íþrótta-
mönnum aldarinnar.
Sjá síður 8-10
/