Þjóðviljinn - 01.10.1988, Side 2
FRETTIR
Ojyggismál sjómanna
,Hlýddu og haltu kjafti‘
Sjómennpíndir áfram við vinnu og öll lög áþeim þverbrotin. Mót-
mœli brottrekstrarsök. 26 sjómenn hafafarist við skyldustörffrá 1986.
530 bótaskyld slys 1987. Flotinn vanmannaður og víða pottur brotinn í
kennslu og meðferð björgunar- og öryggistœkja
Sjómenn eru þrautpíndir enn
þann dag í dag við vinnu úti á
sjó þrátt fyrir vökulög og hvað-
eina og nánast öil lög brotin varð-
andi hvfldartíma. Viðkvæði skip-
stjórnarmanna við mótbárum
sjómanna eru einatt þau að ef við-
komandi hlýði ekki í einu og öllu
þá geti hann tekið pokann sinn
fyrir fullt og alit,“ sagði Einar
Björnsson frá Matsveinafélagi ís-
lands í umræðum um öryggismál
sjómanna á 16. þingi Sjómannas-
ambands ísiands.
Hringurinn
Bömin
sýktust ekki
á vökudeild
Árin 1986 og 1987 sýktust þrir
nýburar af sjaldséðri þarmabakt-
eríu og fengu heilahimnubólgu.
Sýkingarvaldurinn reyndist vera
þurrmjólk sem börnunum var
gefin. Börn sem náð hafa tveggja
til þriggja vikna aldri eru talin
óhult gegn þessari bakteríu, en
ónæmiskerfi nýbura er viðkvæm-
ara fyrir henni.
Pressan, helgarútgáfa Alþýðu-
blaðsins, sló þessu upp á forsíðu í
gær og þar er sagt að börnin hafi
sýkst á vökudeild Landspítalans.
Gunnar Biering, yfirlæknir á
Vökudeild Barnaspítala Hrings-
ins á Landspítalanum bað Þjóð-
viljann að leiðrétta þessi mistök
Pressunnar því hér væri um afar
viðkvæmt mál að ræða.
Hið rétta er að börnin veiktust
ekki á vökudeildinni heldur voru
flutt þangað til meðferðar eftir að
þau sýktust.
Miklar umræður urðu á Sjó-
mannasambandsþinginu í fyrra-
dag um öryggismál sjómanna og
hafa sjaldan eða aldrei
jafnmargir fulltrúar kvatt sér
hljóðs um málið. Sjómenn líta ör-
yggismálin mjög alvarlegum
augum enda hafa 26 sjómenn far-
ist við skyldustörf sín frá því síð-
asta sjómannasambandsþing var
haldið 1986. Samkvæmt árs-
skýrslu Rannsóknarnefndar sjó-
slysa urðu 9 banaslys 1987 og
bótaskyld slys um 530 á því ári.
í umræðunum um öryggismál-
in kom ma. fram hjá þingfulltrú-
um að sjómenn fá litla sem enga
fræðslu um meðferð björgunar-
og öryggistækja og þekkingu td. á
sleppibúnaði er stórlega ábóta-
vant. Þá gagnrýndu þingfulltrúar
harðlega þá þróun sem verið hef-
ur að undanförnu að skipin eru
mjög vanmönnuð sem leiðir til
þess að álag á skipverja er miklu
meira en eðlilegt má teljast. Af-
leiðing sé að skipverjar þreytast
og sljóvgast við vinnu sínu sem
síðan leiðir til mun minni árvekni
en nauðsynlegt er við jafn hættu-
leg störf og sjómennskan er.
Þingfulltrúar vitnuðu óspart í
ársskýrslu Rannsóknarnefndar
sjóslysa og gagnrýndu harðlega
þá ósvinnu sumra útgerðar- og
skipstjórnarmanna að tilkynna
seint og um sfðir slys sem hafa
orðið um borð í skipum þeirra.
Hvöttu sumir þingfulltrúa til þess
að nauðsynlegt væri að fá þriðja
aðila til sögunnar til að sinna eft-
irlitsskyldu m. a. slysum á sjó.
-grh
ísafjörður
Eriend
fiskiskip
fai að landa
Steingrímur J. Sigfús-
son: Aðstaða hafn-
anna til verklegra
framkvœmda verði
jöfnuð
Vinnutillögur hafnamálaskrif-
stofu sem gera ráð fyrir veru-
legri skerðingu á ríkisframlögum
til hafnaframkvæmda á nokkrum
stærstu höfnum landsins voru eitt
helsta umræðuefni 19. ársfundar
Hafnasambands sveitarfélaga,
sem lauk á ísafirði í gær.
Steingrímur J. Sigfússon, ný-
skipaður samgönguráðherra,
ávarpaði þingið í gær og sagði
nauðsynlegt að gengið yrði hið
fyrsta frá verklagsreglum um út-
hlutun ríkisframlaga sem geri ráð
fyrir því að jafna aðstöðu hafn-
anna í landinu til verklegra fram-
kvæmda.
Þá samþykkti þingið einróma
tillögu þar sem því er beint til
Alþingis að numið verði úr gildi
ákvæði í lögum sem bannar er-
lendum fiskiskipum að landa
botnfiskafla á Islandi svo og
frosnum fiskafurðum. Jafnframt
verði erlendum fiskiskipum
frjálst að velja sér löndunarstað
hérlendis.
-Ig/ísafirði
Loðna
Bræla
F.ngin loðnuskip eru nú á mið-
unum við miðlínu á milli Græn-
lands og íslands vegna brælu.
Frá miðnætti í fyrrinótt höfðu
fjögur skip tilkynnt um 3.300
tonn og einnig var Jón Kjartans-
son á heimleið með um 300 tonn.
Örn KE með 750 tonn á leið inn
til Krossaness, Skarðsvíkin SH
með 650 tonn til Siglufjarðar,
Hólmaborgin með 780 tonn til
Eskifjarðar og Börkur NK með
1150 tonn til Norðfjarðar.
-grh
Sinfóníuhljómsveit æskunnar heldur tónleika í Háskólabíói í dag kl. 14:00. Hljómsveitina skipa 70
tónlistarnemendur víðsvegar að á landinu, og eru tónleikarnir afrakstur tveggja vikna námskeiðs sem
haldið var á vegum hljómsveitarinnar.
Á efnisskránni eru tvö verk eftir J. Brahms, tilbrigði við stef eftir Haydn og Píanókvartett í g-moll í
hljómsveitarbúningi Schönbergs. Stjórnandi er Paul Zukofsky.
Safnaðarstjórn Fríkirkjunnar
skorar á safnaðarfólk að greiða atkvæði
í allsherjaratkvæðagreiðslunni
1. og 2. október nk. í Álftamýrarskóla
og krossa við JÁ. Upplýsinga-
skrifstofa að Laufásvegi 13,
bílasími 27270
X JÁX JÁ X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ
Fríkirkjuvinir
Það er lífsnauðsyn fyrir framtíð Fríkirkjusafnaðarins, að sem flestir
greiði atkvæði í allsherjaratkvæðagreiðslunni 1. og 2. október í Álftam-
ýrarskóla og krossi við já. Upplýsingaskrifstofan er að Laufásvegi 13.
Ef þið þurfið bíl til að komast á kjörstað hringið þá í síma 27270.
Safnaðarstjórn
X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ X JÁ
pjóðleikhúsið
TiBjrigöi
við stef
Leikárið á litla sviðinu hafið með leikritinu
Ef ég vœri þú
í kvöld verður önnur sýning á
leikriti Þorvarðs Helgasonar, Ef
ég væri þú, á litla sviði Þjóðleik-
hússins. Leikritið, sem er fyrsta
verkefni leikársins á litla sviðinu,
var sýnt á tveimur forsýningum á
Listahátíð í sumar.
Leikstjóri Ef ég væri þú er
Andrés Sigurvinsson, sem með
góðri aðstoð annarra aðstand-
enda sýningarinnar breytti
leikritinu í samræmi við þá
skoðun sína að það væri tilbrigði
við stef. „Ég hugsa sýninguna
sem málverk, þar sem tónlistin og
Ijósin eru pensillinn," sagði hann
meðal annars í samtali við Þjóð-
viljann í sumar.
Fjórir einþáttungar sem hétu
einu nafni Kvennafár, breyttust í
þrjá þætti tengda með milli-
köflum, sem eins og for- og eftir-
máli leikritsins eru unnir úr ein-
um einþáttunganna. Hver þáttur
fjallar um tvær konur og sam-
skipti þeirra, og eru tvær leikkon-
ur þungamiðja hvers kafla, á
meðan hinar fjórar mynda hliðar-
myndir við það sem fram fer.
Hilmar Örn Hilmarsson samdi
tónlistina við sýninguna, Sigríður
Haraldsdóttir hannaði leikmynd
og búninga og lýsingin er eftir Ás-
mund Karlsson. Konurnar sex
eru leiknar af þeim Maríu Elling-
sen, Þórdísi Arnljótsdóttur, Lilju
Guðrúnu Þorvaldsdóttur, Þór-
unni Magneu Magnúsdóttur,
Þóru Friðriksdóttur og Bríeti
Héðinsdóttur.
LG
2 §ÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. október 1988