Þjóðviljinn - 01.10.1988, Blaðsíða 4
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Selfossi og nágrenni
Félagsfundur
Alþýðubandalagið á Selfossi og nágrenni heldur fél-
agsfund mánudaginn 3. október klukkan 20,30 í
Þórssalnum að Eyravegi 29. Rætt verður um
stjórnmálaástandið og verkefni nýrrar ríkisstjórnar.
Gestir fundarins verða Margrét Frímannsdóttir al-
þingismaður og einn ráðherra Alþýðubandalagsins.
Félagar eru hvattir til að koma og ræða málin.
Stjórnln
Margrét
Hafið áhrif á stefnumótun
Uppeldis-, fjölskyldu- og menntamál
Starfshópur miðstjórnar um uppeldis-, fjölskyldu- og menntamál
boðar til opins fundar í Miðgarði, Hverfisgötu 105, þriðjudaginn 4. oktober
kl. 20.30
Stuttar framsögur hafa:
1. Guðrún Helgadóttir - Jafnréttismál
2. Kristín Á Ólafsdóttir - Dagvistarmál
3. Arna Jónsdóttir - Dagvistarmál
4. Arthúr Morthens - Málefni grunnskólans
Allir velkomnir
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið á Austurlandi
Aðalfundur kjördæmaráðs
Aðalfundur kjördæmaráðs Alþýðubandalagsins á Austfjörðum
verður haldinn laugardaginn 8. október en ekki dagana 1 -2. októ-
ber eins og sagt var í Þjóðviljanum á þriðjudag. Fundurinn stendur
einungis í einn dag en auglýst dagskrá verður áður færð til sam-
ræmis við það.
AW) Sjúkrahúsið
XJ í Húsavík sf.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa nú þegar
eða eftir samkomulagi.
Deildarstjóri óskast frá áramótum.
Húsavík er 2.500 manna bær með góðar sam-
göngur og þjónustu, aðstöðu til íþrótta og útivist-
ar.
í sjúkrahúsinu er almenn deild, fæðingardeild og
langlegudeild, samtals 62 rúm.
Húsnæði fyrir hendi. Hringið eða heimsækið okk-
ur og kannið kjör og aðbúnað. Upplýsingar gefur
hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333.
Styrkir til bifreiðakaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir hreyfihömluðum
styrki til bifreiðakaupa.
Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal
vera ótvíræð. Umsóknir vegna úthlutunar 1989
fást hjá greiðsludeild Tryggingastofnunar ríkísins
Laugavegi 114 Reykjavík og hjá umboðs-
mönnum hennar um land allt.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Systir mín
Hallbera Bergsdóttir
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
5. október kl. 13.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Guðbjörg Bergsdóttir
Útför
Haralds Björnssonar
Fljaltabakka 12, Reykjavík, verður gerð frá Fossvogskirkju
mánudaginn 3. október kl. 13.30
Fyrir hönd vandamanna
Sigríður Eiísabet Guðmundsdóttir
FRÉTTIR
Bókagerðarmenn
„Mesta geggjunin“
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á stjórnarfundi Félags
bókagerðarmanna 26. september
sl:
Það að formenn einstakra
verkalýðsfélaga telja sig þess um-
komna að fara að semja á flokks-
pólitískum forsendum um það
hvort verkalýðshreyfingin eigi að
hafa verkfallsrétt og hvort síðast
gerðir kjarasamningar eigi að
vera í gildi, opinberar gerspillta
og hrokafulla einstaklinga með
ægilegar einræðis tilhneigingar.
Þessum formönnum virðist svo
mjög í mun að fá að vera með í
loddaraleik flokkadrátta að þeir
gefa dauðann og djöfulinn í það
þó þeir stórskaði verkalýðshreyf-
inguna og það ekki bara í bráð
heldur mun nú óhætt að bóka að
til þessa álits fjórmenninganna
verði litið eftirleiðis þegar ríkj-
andi stjórnir þurfa á að halda,
a.m.k. svo lengi sem þessir for-
menn verða enn sem slíkir í fél-
ögunum. „Mesta geggjunin“ er
sú stórhættulega afstaða sem
form. VMSÍ,. Verkal. og sjó-
mannafél. Bolungarvíkur,
Verkal. og sjómannafél. Kefla-
víkur og Verkalýðsfél. í Þorláks-
höfn hafa í þessu máli.
Félag bókagerðarmanna send-
ir almennum félagsmönnum í
þeim félögum er þarna áttu sína
formenn baráttukveðjur. Jafn-
framt ítrekar FBM kröfuma:
Samningana í gildi og samnings-
réttinn strax.
Fatlaðir
Fleiri í
starfs-
þjálfun
Starfsþjálfun fatlaðra hóf ann-
að starfsár sitt, í núverandi
mynd, í septemberbyrjun. Nem-
endurnir eru tuttuguogfjórir, en
það er umtalsverð fjölgun frá í
fyrra.
Hjá starfsþjálfun fatlaðra er
megináhersla lögð á greinar sem
að gagni mega koma úti á vinnu-
markaðinum, s.s. tölvunotkun,
verslunarreikning, bókfærslu, ís-
lensku, ensku og samfélagsfræði.
Námið er einkum ætlað fólki sem
hefur náð 17 ára aldri og hefur
fatlast vegna slysa eða sjúkdóma.
Kennt er í Hátúni 10 A, 4 til 6
stundir á dag fimm daga vikunn-
ar, en reiknað er með því að nám-
ið taki þrjár annir.
Nýr hópur nemenda verður
tekinn í skólann í janúar n.k., og
er umsóknarfrestur til loka októ-
bermánaðar. HS
Megináhersla á greinar sem nýtast á vinnumarkaðinum.
____________MINNING___________
Haraldur Bjömsson
Fœddurló. 5.1917-Dáinnló. 9.1988
Hugurinn leitar til upphafsins
því þar er Halli B jöss og tíminn er
mjúkur. Pabbi og Halli eru að
tefla - og ég læri mannganginn.
Halli er á sjónum. Hekla gýs
1947, pabbi fer austur á Kamba-
brún og ég er með og Halli er
með. Á bak við Halla er Sirrý og
þau búa á Snorrabrautinni og þau
búa uppi við Ás með tvær litlar
stelpur og einn lítinn strák. „ Þú
ert að stækka,“ segir Halli. „Það
þarf að hafa gætur á öllu. Einn
varð svo stór að hann varð að
stíga á stól til að setja á sig hatt-
inn. Nei! Hvað er’ðetta- varðstu
tíu ára í dag? -
Láttu hvorki skin né skúr
skipta þínu sinni.
Vertu alla ævi trúr
skugleði þinni...“
Hann Halli er farinn yfir
heiðina. Forðum fór hann marg-
ar heiðar. Af sumum kom hann
blautur og þungur en af öðrum
reifur og glaður. Marga góða ferð
fóru þau Halli og Sirrý með for-
eidrum mínum og mörg var
stundin góð við spil og spjall. Oft
var dvalið í Ölfusborgum.
Og indælt var austan Hellis-
heiðar að hitta þau hjónin þegar
þau urðu sextug. Hve þau nutu
þess að vera með börnum og
barnabörnum.
Hann Halli er farinn yfir
heiðina með mestan partinn af
vísunum sínum - sem voru svo
snjallar. Þær vöktu okkur gleði
eða kipptu í brjóstið í okkur:
Hrasir þú í heimsin ís
og hjálpar viljir kalla-
á augabragði er þér vís
aðstoð - til að falla.
Hann dreifði þeim af örlæti og
hélt þeim lítið til haga. Vonandi
hafa þó einhverjar verið færðar á
blað.
Honum Halla fylgja okkar
bestu kveðjur. Við þökkum hon-
um fyrir þann þátt sem hann átti í
okkar barnatilveru og að hann
reyndist alltaf vera sá öðlingur
sem barnssálin krafðist - einnig
eftir að barnið óx úr grasi. Við
bræðurnir, systir okkar og móðir
kveðjum Halla með heitu hjarta.
Við horfum á eftir vini á heimleið
til hvfldar að loknu samstarfi
dagsins - og dagurinn var oft erf-
iður. Sirrý, Inga, Rannveig og
Þröstur - og allt ykkar fólk -,
innilegar samúðarkveðjur og um
leið þakkir fyrir okkar góðu sam-
skipti.
Hann Halli er farinn yfir
heiðina hinstu. Af henni ofan
kemur hann reifur og glaður því
þar hittir hann pabba minn, hann
Pétur Sumarliðason, sem fagnar
honum hjartanlega. Þeir heilsast
og faðmast og eru aftur orðnir
þrítugir í kroppnum og taka sér
göngutúr að njóta tilverunnar.
Og ekki eru það vandræðin með
húsnæðið fyrir Halla. Það er
pabbi löngu búinn að gera klárt
fyrir komu hans og öll híbýli eru
til reiðu. Þegar fram líða tímar
munu þeir svo stækka dálítið við
sig til að geta fagnað ástvinum
sínum. Þar verður sannarlega
tekið vel á móti okkur öllum.
Gísli Ol. Björnsson
Haraldur
Haraldur Björnsson, sem í dag
er til moldar borinn, var um ára-
bil starfsmaður Þjóðviljans. Af-
greiðslumaður hans reyndar, en
sá starfi hefur aldrei þakklátur
verið og dregur að sér kvabb
óendanlegt og krefst fundvísi á
skyndileg bjargráð á degi hverj-
um. Samverkamaður frá þeim sí-
blönku en um margt ljúfu dögum
vill nú að leiðarlokum færa Har-
Bjömsson
aldi þakkir fyrir þá samfylgd og
góð kynni. Og um leið fyrir þann
liðsauka sem Þjóðviljinn hefur
lengi síðan átt í börnum þeirra
Sirrýar - Ingibjörgu, Rannveigu
og Þresti.
Þjóðviljinn sendir fjölskyldu
og vinum Haraldar Björnssonar
innilegar samúðarkveðjur.
Árni Bergmann
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. október 1988