Þjóðviljinn - 01.10.1988, Side 1

Þjóðviljinn - 01.10.1988, Side 1
Kristín Andrésdóttir: Við erum hæstánægð með húsið. Við erum mjög ánægð með þetta nýja hús, það er ólýsan- legur munur á þeirri vinnuað- stöðu sem nemendum og kennurum er boðið upp á hér og var í gamla skólanum við Öldugötu. Húsnæðið er þann- ig upp byggt að tvær al- mennar kennslustofur liggja saman með eitt lítið herbergi á milli sem nýtist báðum bek- kjunum. Þetta hentarmjög vel fyrir okkur því við hér í skóla- num leggjum áherslu á náið samstarf á milli bekkja, sagði Kristín Andrésdóttir, skóla- stjóri Vesturbæjarskólans, en skólinn er nýfluttur í nýtt húsn- æði við Sólvallagötu. Þegar skólastarfið hófst í nýja húsinu buðu foreldrar nemendum til veislu. Þeir sem komið hafa í nýja hús- ið hafa haft á orði að þetta sé sérstaklega vel heppnuð bygging fyrir skóla. Húsið er á tveim hæð- um, en hægt er að koma inn í þær báðar beint af skólalóðinni, Ekki er enn lokið frágangi skóla- lóðarinnar en hún á eftir að setja svip sinn á umhverfið. Myndir Jim Smart þannig ber innganga skólakrakka rólegra yfirbragð en þegar heilum skóla er hleypt inn um sama inngang eftir frímínútur. Á neðri hæð skólans eru kennslu- stofur sem lokið er við en ekki hefur enn verið gengið frá leik- fimisalur, skólaeldhúsi og sam- komusal sem jafnframt á að ný- tast sem félagsaðstaða fyrir ne- mendur. Á neðri hæðinni er einn- ig vinnuaðstaða fyrir kennara og skrifstofur skólans. Á efri hæð skólans er kennslustofur, sauma- stofa, smíðastofa og rými fyrir bókasafn er á efri hæðinni fyrir miðju húsi; þannig eiga allir greiðan aðgang að safninu. Ingimundur Sveinsson arkitek teiknaði húsið, og vann jafnframt að hönnun skólalóðarinnar ásamt Magnúsi Tómassyni lista- manni, en hún er ekki fullfrá- gengin. Athygli vekur að safnað hefur verið gríðalegu magni af grjóti á lóðina sem nú er verið að hlaða upp. Ekki er að efa að lóðin á eftir að setja mikinn svip á um- hverfið í gamla Vesturbænum. -sg Kennslustofurnar liggja tvær og tvær saman og gluggi á milli. Hér vinna tveir kennarar saman með 8 og 9 ára bekki. Vesturbæjarskólinn Gamall skóli í nýtt hús Hér bregða krakkarnir í Vesturbæjarskólanum í leik, en í komandi framtíð verður bókasafn skólans í þessu plássi sem er í miðju hússins þannig að allir eiga greiðan aðgang að því. Laugardagur 1. október 1988 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 8

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.