Þjóðviljinn - 01.10.1988, Qupperneq 1
Kristín
Andrésdóttir: Við
erum hæstánægð
með húsið.
Við erum mjög ánægð með
þetta nýja hús, það er ólýsan-
legur munur á þeirri vinnuað-
stöðu sem nemendum og
kennurum er boðið upp á hér
og var í gamla skólanum við
Öldugötu. Húsnæðið er þann-
ig upp byggt að tvær al-
mennar kennslustofur liggja
saman með eitt lítið herbergi á
milli sem nýtist báðum bek-
kjunum. Þetta hentarmjög vel
fyrir okkur því við hér í skóla-
num leggjum áherslu á náið
samstarf á milli bekkja, sagði
Kristín Andrésdóttir, skóla-
stjóri Vesturbæjarskólans, en
skólinn er nýfluttur í nýtt húsn-
æði við Sólvallagötu.
Þegar skólastarfið hófst í nýja húsinu buðu foreldrar nemendum til veislu.
Þeir sem komið hafa í nýja hús-
ið hafa haft á orði að þetta sé
sérstaklega vel heppnuð bygging
fyrir skóla. Húsið er á tveim hæð-
um, en hægt er að koma inn í þær
báðar beint af skólalóðinni,
Ekki er enn lokið frágangi skóla-
lóðarinnar en hún á eftir að setja
svip sinn á umhverfið. Myndir Jim
Smart
þannig ber innganga skólakrakka
rólegra yfirbragð en þegar
heilum skóla er hleypt inn um
sama inngang eftir frímínútur. Á
neðri hæð skólans eru kennslu-
stofur sem lokið er við en ekki
hefur enn verið gengið frá leik-
fimisalur, skólaeldhúsi og sam-
komusal sem jafnframt á að ný-
tast sem félagsaðstaða fyrir ne-
mendur. Á neðri hæðinni er einn-
ig vinnuaðstaða fyrir kennara og
skrifstofur skólans. Á efri hæð
skólans er kennslustofur, sauma-
stofa, smíðastofa og rými fyrir
bókasafn er á efri hæðinni fyrir
miðju húsi; þannig eiga allir
greiðan aðgang að safninu.
Ingimundur Sveinsson arkitek
teiknaði húsið, og vann jafnframt
að hönnun skólalóðarinnar
ásamt Magnúsi Tómassyni lista-
manni, en hún er ekki fullfrá-
gengin. Athygli vekur að safnað
hefur verið gríðalegu magni af
grjóti á lóðina sem nú er verið að
hlaða upp. Ekki er að efa að lóðin
á eftir að setja mikinn svip á um-
hverfið í gamla Vesturbænum.
-sg
Kennslustofurnar liggja tvær og tvær saman og gluggi á milli. Hér
vinna tveir kennarar saman með 8 og 9 ára bekki.
Vesturbæjarskólinn
Gamall
skóli
í nýtt
hús
Hér bregða krakkarnir í Vesturbæjarskólanum í leik, en í komandi framtíð verður bókasafn skólans í þessu
plássi sem er í miðju hússins þannig að allir eiga greiðan aðgang að því.
Laugardagur 1. október 1988 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 8