Þjóðviljinn - 05.10.1988, Síða 1
Ólympíufarar
Komu heim
í gær
Góður andi þráttfyrir
að takmark um árangur
hafi ekki náðst
Sveit íslands á ólympíuleikun-
um í Seoul kom til landsins í gær.
Gísli Halldórsson, formaður ól-
ympíunefndar, sagði við
heimkomuna að andinn hjá
keppendum væri góður þrátt fyrir
að sá árangur hefði ekki náðst
sem stefnt var að. íslendingar
ættu áttunda besta handknatt-
leikslið heimsins eftir þessa leika
og aðeins óheppni í leiknum við
Austur-Þjóðverja hefði ráðið því
að liðið varð ekki í sjöunda sæti.
„Það voru ummæli manna eftir
leikinn gegn Austur-Þjóðverjum
að íslendingar hefðu átt mjög
góðan leik,“ sagði Gísli. Austur-
Þjóðverjar hefðu náð að jafna
stöðuna tvisvar á síðustu sekúnd-
um og með örlítilli heppni í víta-
kastskeppninni hefði liðið náð
sjöunda sæti. Óneitanlega hefði
liðinu orðið mjög bylt við eftir
leikinn gegn Sovétmönnum og
það tap hefði verið tekið mjög
alvarlega. „Það voru stíf funda-
höld eftir leikinn við Sovétmenn
þar sem stálinu var stappað í
menn og ég tel að það hafi haft
mikið að segja gegn Austur-
Þjóðverjum,“ sagði Gísli.
Aðstandendur ólympíufar-
anna voru ekki að kvelja þá með
frammistöðunni og fögnuðu
þeim innilega við íþróttamiðstöð-
„Þannig fór um sjóferð þá,“ gæti Gísli Halldórsson, formaður ólympíunefndarinnar verið að segja við
Bogdan þjálfara handknattleiksliðsins, þegar þeir kvöddust í gær. Mynd: Þóm
ina í Laugardal. Þeir lögðu af stað
frá Seoul klukkan 8 á mánudags-
kvöld og eftir 30 tíma ferðalag
höfðu ólympíufararnir flogið í
gegnum tvo mánudaga og sjálf-
sagt fegnir að koma heim. -hmp
Bandaríkjamarkaður
Fiskkaupum frestað
Aukin andstaða viðhvalveiðistefnuIslendinga. Fiskkaupendur kippa að sérhöndum
íslenskar sjávarafurðir eiga nú
undir högg að sækja á Bandaríkj-
amarkaði sem aldrei fyrr vegna
andstöðu Grænfriðunga og al-
menningsálitsins gegn hval-
veiðistefnu íslenskra stjórnvalda.
Sífellt fleiri fiskkaupendur kippa
að sér hendinni og nýverið hafa
margir skólar í Boston hætt að
bjóða upp á íslenskan fisk í skóla-
máltíðum.
Bandaríska veitingahúsakeðj-
an Long John Silver hefur ákveð-
ið að fresta fyrirhuguðum fisk-
kaupum frá dótturfyrirtæki Sölu-
miðstöðvarinnar, Coldwater Se-
afood Corporation, vegna hval-
veiða íslendinga um óákveðinn
tíma og samkvæmt fréttum vestra
hefur stjórn fyrirtækisins afráðið
að hætta með öllu kaupum á ís-
lenskum fiski á næstunni vegna
almenningsálitsins vestra og
kröftugra mótmæla Grænfrið-
unga gegn íslenskum sjávaraf-
urðum.
Þá hafa samningar Iceland Se-
afood Corporation, dótturfyrir-
tækis Sambandsins í Bandaríkj-
unum, við fiskkaupendur dregist,
en talsmenn fyrirtækisins neita
því alfarið að það sé vegna hval-
veiðistefnu Islendinga heldur
eingöngu vegna þess að Iceland
Seafood hefur verið að kynna
bandarískum kaupendum nýjar
neytendaumbúðir.
-grh
Skák
Margeir
stal senunni
Margcir Pétursson kom, sá og sigraöi í
annarri umfcrö Hcimsbikarmóts Stór-
meistarasambandsins sem tefld var í gær,
lagði sjálfan Lajos Portisch aö velli eftir
æsispennandi skák. Pegar hvítur haföi
leikiö 34 sinnum átti Ungverjinn tveggja
kosta völ og voru báðir illir; drottningar-
missir ellegar mát.
Garríj Kasparov atti kappi við Ulf
Andersson. Eftir sóknartilburði hcims-
meistarans í uppskiptaafbrigði drottning-
arbragðs var öllum aðli í skyndingu rutt út
af borðinu í harmageddon tímahraks. Peg-
ar orrustureyknum létti var ljóst að fót-
gönguliðar Kasparovs yrðu á undan sæn-
skum kollegum sínum uppí borð og því
lagði Andersson niður vopnin.
Sjá skákskýringu
Heiga Ólafssonar á
síðu 8
Alþingi
Þröng á þingi
Fœrri ráðherrastólar en fjölga þarfþingmannasœtum um þrjú
„Við höfum nóg þingmanna-
sæti á Alþingi þrátt fyrir nokkra
fjölgun frá því sem var og verður
sætum bætt við til endanna. Að
vísu verður aðeins þrengra um
þingmennina en síðast en ekki
svo að orð sé á gerandi," sagði
Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri
Alþingis.
Það er því óhætt að fullyrða að
þröngt verði setinn bekkurinn á
komandi Alþingi sem verður sett
þann 10. október nk. og verður
að bæta við 3 þingmannasætum
vegna fækkunar í ráðherraliði nú-
verandi stjórnar miðað við það
sem var í síðustu ríkisstjórn.
Að sögn Friðriks hefur ávallt
þurft að bæta við sætum fyrir
þingmenn þegar varamenn leysa
ráðherra af vegna þess að vara-
mennirnir sitja ekki í ráðherra-
stólum heldur í sætum þing-
manna. Friðrik sagði að alltaf
hefði verið gert ráð fyrir viðbót-
arsætum í þeirri innréttingu sem
nú er í sölum Alþingis og fyrst var
tekin í notkun á síðasta þingi.grh
Frœðsluvarp
Harkaleg
viðbrögð
Fréttir Þjóðviljans í gær um
fyrstu spor Fræðsluvarpsins hafa
Ieitt til harkalegra viðbragða.
Fræðsluvarp er fjarkennsla þar
sem styðjast á við útsendingar í
Ríkisútvarpi og -sjónvarpi.
Einkum hefur orðið að umræðu-
efni fyrirhuguð íslenskukennsla
Fræðsluvarpsins sem á að byggja
á nýju námsefni.
Heimir Pálsson, deildarstjóri
hjá bókaútgáfunni Iðunni, og
Valtýr Valtýsson, skólastjóri
Málaskólans Mímis, hafa athuga-
semdir fram að færa.
Sjá síðu 2
Foxtrot
Núllinu náð
37 þúsund manns hafa nú séð
spennumyndina Foxtrot, nýjustu
afurð íslenskrar kvikmyndagerð-
ar, og að sögn Hlyns Óskars-
sonar, fjármálastjóra Frostfilm,
má nú heita að núllinu í fjármála-
dæminu hafi verið náð.
Að sögn Hlyns eru aðstand-
endur myndarinnar nokkuð
ánægðir með þessar undirtektir,
en sýningar eru nú hafnar úti á
landi, auk þess sem áfram er sýnt
í tveimur kvikmyndahúsum í
Reykjavík. Hlynur sagði að
sýningar á Foxtrot hæfust innan
skamms á Norðurlöndum; „hún
verður frumsýnd í Noregi nær jól-
um og sýnd á sex stöðum þar í
landi, og síðan víðar á Norður-
löndunum,“ sagði hann. HS